Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kennarar fá 90 þúsund á mánuði Samninganefndir sveitarfélaga og grunnskólakennara ætla að taka upp nýjar aðferðir eftir árangurslausar viðræður frá því í vor. Komi til verkfalls tuttugasta september fá kennarar níutíu þúsund krónur á mánuði úr verkfallssjóði en sjóðurinn mun duga í tvo mánuði. 12.8.2004 00:01
Sást síðast við Gullfoss Komið er í ljós að Ólöf A. Breiðfjörð Guðjónsdóttir, sem lögreglan í Hafnarfirði lýsir eftir, sást síðast við Gullfoss um klukkan átta á föstudagskvöldið. Áður hafði hún fengið far með bíl frá Reykjavík og austur í Þrastarlund og þaðan hefur hún að öllum líkindum fengið far með öðrum bíl upp að Gullfossi. Lögreglan í Hafnarfirði óskar eftir að ná tali af honum og svo þeim sem hugsanlega hafa tekið hana upp í bíla sína síðar. 12.8.2004 00:01
Sþ biðla til heimsins vegna flóða Sameinuðu þjóðirnar biðla nú til alþjóðasamfélagsins um neyðarhjálp til handa þeim fjölmörgu sem misst hafa aleiguna og uppskeruna í gríðarlegum flóðum í Bangladess. Talið er að fólkið þurfi matvælaaðstoð í að minnstakosti hálft ár, ella blasi hungursneyð við milljónum landsmanna. 12.8.2004 00:01
Byggðaþing að Hólum Byggðaþing verður haldið að Hólum í Hjaltadal í Skagafirði dagana 28. og 29. ágúst næstkomandi á vegum samtakanna Landsbyggðin lifi. Á þinginu halda fyrirlestra fólk víða af landinu um málefni tengd byggð og byggðaþróun. 12.8.2004 00:01
Norðmönnum afhent mótmæli Stefán Skjaldarson, sendiherra Íslands í Noregi, afhenti í dag norskum stjórnvöldum ítrekuð mótmæli íslenskra stjórnvalda við einhliða kvótaúthlutun Norðmanna á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum við Svalbarða. Það standist ekki fjölþjóðlegan samning um Svalbarða og feli í sér brot á hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna og brot á almennum reglum þjóðarréttar. 12.8.2004 00:01
Mismunandi afkoma kúabænda Mismunur á góðum bændum og búskussum kemur glöggt í ljós þegar skyggnst er í búreikninga kúabúa sem Bændasamtökin taka saman. Þar kemur í ljós að afkoma þerra kúabænda sem leggja sig fram um að fá sem mesta mjólk úr hverri kú er mun betri en þeirra sem fá að meðaltali minna úr hverri kú. 12.8.2004 00:01
Hvattir til uppgjafar Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, hvatti andspyrnuhreyfingu sjíta-múslima til að leggja niður vopn fyrr í dag en þeir hafa barist hatrammlega við hernámsliðið í nokkrum borgum Íraks í dag. Hann hvatti þá jafnframt til að ganga til liðs við „pólitíska framþróun“ landsins eins og það er orðað í erlendum fréttamiðlum. 12.8.2004 00:01
Nýr framkvæmdastjóri ráðinn Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Magnús Skúlason, deildarstjóra í heilbrigðisráðuneytinu, framkvæmdastjóra hinnar nýju Heilbrigðisstofnunar Suðurlands sem mun þjóna um sautján þúsund manns. 12.8.2004 00:01
Skjálftahrina austur af Grímsey Skjálftahrina er í hafinu austur af Grímsey. Milli tuttugu og þrjátíu skjálftar hafa komið fram á mælum síðan í gær. Sá stærsti var klukkan að ganga þrjú í dag og var hann 2,9 á Richter. Skjálftahrinur eru algengar á þessum slóðum. 12.8.2004 00:01
Íslensk sumargotssíld fyrir norðan Komið er á daginn að síldin, sem tók upp á því um síðustu helgi að vaða í haffletinum við síldarminjasafnið í Siglufirði, var íslensk sumargotssíld en ekki norsk-íslensk síld. 12.8.2004 00:01
Spenging heyrðist í Santander Sprenging heyrðist í spænsku borginni Santander rétt áðan að sögn Reuters-fréttastofunnar. Ekki liggur fyrir hvort einhverjir séu særðir, né hvers kyns sprengingin er. Reuters hefur þetta eftir talsmanni á borgarskrifstofu Santander sem er í norðurhluta Spánar. </font /> 12.8.2004 00:01
Önnur sprengja á Spáni Fyrstu tíðindi af sprengingunni í Santander á Spáni eru að hún hafi verið minniháttar og líklega séu engir sárir. Einnig heyrðist sprenging í Gijon-borg nú fyrir stundu en ekki liggur fyrir um mannskaða þar. 12.8.2004 00:01
Bæjarráð Kópavogs mótmælir Bæjarráð Kópavog mótmælir þeirri skoðun sem kemur fram í samþykkt Borgarráðs Reykjavíkur frá 10. ágúst um að eignarhald á Vatnsendakrikum sé umdeilt. Þetta kemur fram í ályktun fundar ráðsins frá því fyrr í dag. 12.8.2004 00:01
Fangelsisvist fyrir ferðamenn Fyrrverandi pólitískir fangar í stærsta kvennafangelsi fyrrum Austur-Þýskalands mótmæltu í dag ráðgerð þýska fyrirtækisins Artemis GmbH að bjóða ferðamönnum að eyða nótt í fangelsinu gegn borgun. Þúsundir kvenna þurftu að líða pyntingar og kúgun innan veggja fangelsins, sem staðsett er í miðaldakastala á hæð fyrir ofan bæinn Stollberg, á árunum 1950-1989. 12.8.2004 00:01
Öflugur jarðskjálfti í Kína Hundruð þúsunda manna misstu heimili sín í öflugum jarðskjálfta í Kína í fyrradag. Ekki var skýrt opinberlega frá þessu fyrr en í dag. Jarðskjálftinn, sem mældist 5,6 á Richter-kvarða, varð í Ludian-sýslu í Yunnan héraði en sýslan er með þeim fátækustu í landinu. 12.8.2004 00:01
Drengur brenndist í Laugarvatni Engar merkingar hafa verið við Laugarvatn til að vara fólk við hitalaugum sem geta myndast fyrirvaralaust. Ungur drengur brenndist á fæti þegar hann var að vaða í fjöruborðinu þar í gærkvöldi. 12.8.2004 00:01
Sumarblíða en engin met Einmuna veðurblíða var á Suður- og Austurlandi í dag. Íbúar höfuðborgarinnar gerðu sitt besta til að sinna daglegu amstri utan dyra, hvort sem um var að ræða tómstundir, vinnu eða líkamsrækt. Engin hitamet voru slegin í dag en heitast var á Þingvöllum þar sem hitinn fór upp í 26,2 stig um miðjan dag. 12.8.2004 00:01
360 fallnir og þúsundir flúnar Bandaríkjamenn segjast hafa fellt þrjú hundruð og sextíu uppreisnarmenn í stórsókn sinni í borginni Najaf. Þúsundir borgarbúa hafa flúið vegna bardaganna. 12.8.2004 00:01
Kröfur kennara sanngjarnar? Sveitarfélögin búa sig undir kennaraverkfall í haust. Deilan snýst ekki um það hvort félögin hafi efni á að greiða kennurum hærri laun, heldur hvort kröfur kennara séu sanngjarnar. 12.8.2004 00:01
Of blint fyrir blindflug Kvöldfluginu frá Reykjavík til Egilsstaða síðasta sunnudag var snúið við skammt frá áfangastað vegna þoku sem myndaðist við upphaf hitabylgjunnar sem þá reið yfir. Þar er þó fullkominn blindflugsbúnaður, enda alþjóðaflugvöllur á Egilsstöðum. 12.8.2004 00:01
Flugu lágt yfir miðbænum Nokkuð margir litu upp frá ísnum sínum á Lækjartorgi um klukkan hálf þrjú í gær þegar herþyrla varnarliðsins flaug lágflug yfir miðbæ Reykjavíkur. Þyrlan var svo enn á ferð lágt yfir borginni upp úr klukkan fjögur síðdegis. 12.8.2004 00:01
Beðið eftir bæjarstjóra Umfjöllun um vasapeningamál hælisleitenda hér á landi sem bíða úrskurðar Útlendingastofnunar hefur verið frestað hjá Reykjanesbæ þar til Árni Sigfússon bæjarstjóri snýr aftur úr sumarleyfi undir lok mánaðarins. 12.8.2004 00:01
Einungis ein tilnefning borist Einungis ein tilnefning hefur borist fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar um fjölskylduvænt fyrirtæki í bænum. Frestur til að skila tilnefningum hefur verið framlengdur til 20. ágúst næstkomandi. 12.8.2004 00:01
Samningar ekki fullreyndir Þórólfur Árnason, borgarstjóri í Reykjavík, segir að víst sé uppi ágreiningur um landareign Reykjavíkur og Kópavogs í Heiðmörk. "Það heitir ágreiningur þegar annar aðilinn er ekki sáttur við það sem hinn segir," segir borgarstjórinn. 12.8.2004 00:01
Enginn vilji til samkomulags Oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík segir formann bæjarráðs í Kópavogi misskilja deilu sveitarfélaganna um vatnsleiðslu frá Vatnsendakrika um Heiðmörk. Kópavogsbær ætlar að kalla eftir upplýsingum frá óbyggðanefnd um stöðu mála. 12.8.2004 00:01
Gatnagerð og lokanir í Hafnarfirði Í vikunni átti að hefjast steypuvinna við brúargólf í Lækjargötu í Hafnarfirði. Á mótum Lækjargötu og Hringbrautar er unnið að gerð hringtorgs, auk lagningar regnvatnslagna frá hringtorginu að Ljósutröð. Umferð á aftur að vera komin á Lækjargötuna með hringtorgi um 29. ágúst næstkomandi. 12.8.2004 00:01
Óvissa um rekstrargrundvöll Tetru Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segja óvíst að 250 prósenta hækkun á þjónustugjöldum Tetra Ísland tryggi rekstrargrundvöll fyrirtækisins. Í bókun í borgarráði eru þjónustugjöld sögð hækka úr 17,5 milljónum á ári í 60,4 milljónir. 12.8.2004 00:01
Flóðahætta jafnvel liðin hjá Yfirborð Jökulsár á Dal lækkar óðum og telja menn að flóðahætta sé jafnvel liðin hjá. Enn er ekki vitað af hverju frárennslisgöngin fluttu ekki eins mikið vatn og þeim var ætlað. 12.8.2004 00:01
Krían sækir í flugvöllinn Síðsumars sækir krían meira í flugvöllinn í Grímsey með þeim afleiðingum að stundum verða árekstrar fugla og flugvéla í aðflugi. Flugmálastjórn segir reynt að fæla fugl með óhljóðum en hann venjist þeim jafnharðan. 12.8.2004 00:01
Ólafar enn leitað Ólöf A. Breiðfjörð Guðjónsdóttir, þrítug kona sem ekki hefur sést síðan á föstudagskvöld, hefur ekki enn komið fram. Síðast er vitað um ferðir Ólafar við Gullfoss. Ekki hefur ennþá verið ákveðið að hefja formlega leit að Ólöfu en víðtæk eftirgrennslan lögreglu er í gangi. 12.8.2004 00:01
Sáttagreiðsla upp á tæpan milljarð Hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software í Noregi, sem Íslendingurinn Jón S. von Tetzchner stýrir, fékk greiddar á árinu rúmlega 900 milljónir króna í sáttagreiðslu í dómsmáli. Ekki fást nánari upplýsingar um tilurð greiðslunnar, en ákvæði sáttarinnar komi í veg fyrir að fyrirtækið tjái sig frekar um málið. 12.8.2004 00:01
Stórsóknin hafin í Najaf Bandarískar og íraskar hersveitir hófu stórsókn inn í Najaf í gær. Þeim tókst ekki að hafa hendur í hári shíta-klerksins Muqtada al-Sadrs. Kveða á niður uppreisn shíta. Uppreisnarmenn verjast í helgustu byggingum borgarinnar</font /></b /> 12.8.2004 00:01
Hjónaböndin dæmd ógild Hæstiréttur Kaliforníu ógilti í gær næstum fjögur þúsund hjónabönd samkynhneigðra. Pörin voru gefin saman í San Fransisco fyrr á árinu og hlutu staðfestingu hjá borgaryfirvöldum þar. 12.8.2004 00:01
Smáríki gegna stóru hlutverki Minni ríki innan Evrópusambandsins munu hafa mikil áhrif í nýskipaðri framkvæmdastjórn sambandsins undir forsæti Portúgalans Jose Manuels Barroso. Stóru ríki þrjú; Þýskaland, Frakkland og Bretland, munu þó fara með stjórn efnahagsmála að mestu. 12.8.2004 00:01
Svíar orðnir níu milljónir Svíar urðu í gær níu milljón talsins. Samkvæmt opinberum áætlunartölum fæddist barnið sem kom fólksfjöldanum í níu milljónir klukkan 12.58 að íslenskum tíma. Svíum hefur fjölgað um eina milljón síðan árið 1969 og því er spáð að þeir verði orðnir tíu milljón talsins fyrir árið 2027. 12.8.2004 00:01
Áfram mjög hlýtt Áfram verður mjög hlýtt loft yfir landinu þrátt fyrir að heldur fari að draga úr hlýindunum, fyrst vestast á landinu. Á sunnudag er gert ráð fyrir svalara veðri og auknum líkum á skúrum. Veðurblíðan síðustu daga einsdæmi, segir veðurfræðingur. 12.8.2004 00:01
Ekki árás Valhallar Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn segir ekkert hæft í ásökunum Gunnars I. Birgissonar, flokksfélaga síns í Kópavogi, um að höfnun borgarráðs á vatnslögn Kópavogsbæjar um land Reykjavíkurborgar sé árás Valhallar á sjálfstæðismenn í Kópavogi. Hann segir afstöðu sjálfstæðismanna í borgarráði byggjast á faglegri umsögn borgarlögmanns. 12.8.2004 00:01
Palestínumenn reiðir eigin mönnum Margir Palestínumenn eru reiðir eftir sprengjuárás sem beint var gegn Ísraelum. Sprengjan sprakk í grennd við landamærastöð á Vesturbakkanum í gær. Hún varð tveim Palestínumönnum að bana og særði tíu. Auk þess særðust sex ísraelskir hermenn. 12.8.2004 00:01
Skattadeilur hjá stjórnarflokkum? Sjálfsstæðismenn eru reiðubúnir að lækka tekjuskatt um meira en fjögur prósent á kjörtímabilinu eða meira en kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum. Líklegt er að deilt verði um þessi mál á stjórnarheimilinu í haust en eins og fréttastofan komst að hafa þingmenn ólíkar skoðanir á því hvernig eigi að útfæra loforð um skattalækkanir. 12.8.2004 00:01
Fjölmörg atriði á Menningarnótt Heilgrillað naut, tilfinningaþrungið torg og bongótrommu-maraþon er meðal fjölmargra atriða sem boðið verður upp á á menningarnótt eftir rúma viku. Stjórn menningarnætur var í sumarskapi þegar hún bauð til blaðamannafundar í blíðviðrinu í dag en laugardaginn 21. ágúst verður hátíðin haldin hátíðleg í níunda skipti. 12.8.2004 00:01
Skaðvaldsskiltið fært Talsvert minni líkur eru nú á því en áður að þeir sem eiga leið um Hálsabraut, skemmi bílinn sinn. Á mótum Krókháls og Hálsabrautar hefur staðið akreinaskilti undanfarin ár sem hefur líklega eyðilagt bíla fyrir margar milljónir króna eins og Stöð 2 greindi frá á dögunum. Úr þessu var hins vegar bætt í gær þegar skiltið var fært u.þ.b. einum metra aftar. 12.8.2004 00:01
Harlem Sophisticate í Loftkastala Andi svartra tónlistarmanna svífur yfir vötnum í Loftkastalanum en á morgun verður söngskemmtunin Harlem Sophisticate frumsýnd þar. Fjöldi bandarískra og íslenskra tónlistarmanna kemur fram í sýningunni en alls verður verkið sýnt fjórum sinnum. 12.8.2004 00:01
Hitamet fellur í Reykjavík Veðurstofan hefur aldrei mælt hærri hita í Reykjavík en í dag. Talið er að hitabylgjan í landinu hafi náð hámarki. Verslunum var lokað og fundum frestað vegna veðurs. Það var mollulegt um að litast í höfuðborginni í dag, svo heitt að fólk þusti út í sólina að njóta blíðunnar. 11.8.2004 19:00
Bush berst gegn staðreyndum George W. Bush heldur því fram að efnahagsástandið í Bandaríkjum sé gott. Hagtölur sýna hið gagnstæða. Vont efnahagsástand í lykilríkjum gæti reynst Bush dýrkeypt í kosningunum. </font /></b /> 11.8.2004 00:01
Útlánaeftirlit stóraukist Samkeppni um hag hluthafa bankanna hefur orðið til þess að útlánaeftirlit hefur stóraukist í bankakerfinu. Bankarnir hafa tekið upp nýjar innri reglur. Eftirlit með innheimtu hefur einnig verið aukið. Afskriftahlutfall sagt of hátt hér á landi. 11.8.2004 00:01