Sumarblíða en engin met 12. ágúst 2004 00:01
Einmuna veðurblíða var á Suður- og Austurlandi í dag. Íbúar höfuðborgarinnar gerðu sitt besta til að sinna daglegu amstri utan dyra, hvort sem um var að ræða tómstundir, vinnu eða líkamsrækt. Engin hitamet voru slegin í dag en heitast var á Þingvöllum þar sem hitinn fór upp í 26,2 stig um miðjan dag. Í Skaftafelli náði hitinn upp í 24, 4 stig og hitinn á Mývatni klukkan þrjú var 22,5 stig. Um og yfir 20 stiga hiti hefur svo verið á hálendinu. Til að kæla sig í mestu hitunum brá fólk á það ráð að baða sig í ám og vötnum landsins og um að gera að nýta tækifærið því veðurfræðingar búast við að á næstu dögum fari hitinn hægt og rólega niður á við. Fylgifiskur hitanna er mistur sem legið hefur yfir og fólk þekkir helst frá heitari löndum. Það er svo sem lítil rómantík að baki þeim því þetta er ryk og óhreinindi, aðallega frá Evrópu, en eitthvað berst af hálendinu vegna þurrka. Erlendir ferðamenn vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið í blíðunni á Þingvöllum í dag en sumir vilja allt annars konar veður, og þá helst alíslenskt rok og rigningu. Hjón frá Ástralíu sem hafa upplifað íslenska rigningu voru hins vegar himinlifandi. Í Reykjavík brugðu menn á það ráð að færa ýmsan rekstur og þjónsutu út. Villi Þór rakari snyrti kolla undir berum himni. Taflmenn Hróksins þoldu illa við inni í sumarhitanum og þustu út til að tefla fjöltefli við danskan stórmeistara. Stæltir kroppar sem æfa hjá líkamsræktarstöðinni Laugum var svo boðið upp á að svitna, bæði vegna áreynslu og sólskins.
Fréttir Innlent Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira