Kennarar fá 90 þúsund á mánuði 12. ágúst 2004 00:01
Samninganefndir sveitarfélaga og grunnskólakennara ætla að taka upp nýjar aðferðir eftir árangurslausar viðræður frá því í vor. Komi til verkfalls tuttugasta september fá kennarar níutíu þúsund krónur á mánuði úr verkfallssjóði en sjóðurinn mun duga í tvo mánuði. Fyrsti fundur samningsaðila eftir sumarhlé var hjá ríkissáttasemjara í gær. Fundurinn var stuttur og voru framhaldsviðræður skipulagðar. Samninganefnd sveitarfélaga stakk upp á því að ný leið yrði farin með óformlegum vinnufundum. Kennarar samþykktu það og segir Birgir Björn Sigurjónsson, formaður samninganefndar sveitarfélaga, að sitt fólk ætli að hitta kennara í húsnæði Kennarasambands Íslands á mánudag og miðvikudag. Í framhaldinu verður fundur hjá ríkissáttasemjara næsta fimmtudag. Finnbogi Sigurðsson, formaður félags grunnskólakennara, segir að til standi að ræða um vinnutíma en kennarar vilja meðal annars lækka kennsluskyldu um tvær klukkstundir á viku, úr 28 í 26, og auka undirbúningstíma fyrir hverja kennslustund úr tuttugu mínútum í þrjátíu. Kennarar hafa samþykkt að fara í verkfall tuttugasta september hafi viðræður ekki skilað árangri. Birgir Björn segir að kennaraverkfall muni ekki bara skaða börn, foreldra og sveitarfélögin heldur einnig kennara sjálfa. Vísar hann þar til tekjumissis kennara sem fá verkfallsstyrk úr vinnudeilusjóði Kennarasambandsins sem nemur þrjú þúsund krónum fyrir hvern verkfallsdag. Tekið er tillit til allra almanaksdaga og því er mánaðargreiðsla um níutíu þúsund krónur. Myndin er af Birgi Birni Sigurjónssyni, formanni samninganefndar sveitarfélaga.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fleiri fréttir Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Sjá meira