Stórsóknin hafin í Najaf 12. ágúst 2004 00:01
Bandarískar hersveitir gripu í tómt þegar þær réðust til inngöngu á heimili shíta-klerksins Muqtada al-Sadr í borginni Najaf í Írak í gær. Harðir bardagar geisuðu í Najaf eftir að stórsókn íraskra og bandarískra hersveita hófst þar snemma í fyrrinótt. Með árásinni vilja Bandaríkjamenn og bráðabirgðastjórnvöld í Írak ráða niðurlögum andspyrnuhreyfingar al-Sadr i Najaf og kveða þar með niður uppreisn shíta í Írak. Óljóst er um afdrif al-Sadrs en hann hvatti í fyrradag liðsmenn sína til að berjast til síðasta manns. Ayad Allawi, forsætisráðherra Íraks, hvatti uppreisnarmenn í gær til að leggja niður vopn og yfirgefa miðborg Najaf þar sem þeir hafast við í helgum byggingum shíta. Bandaríkjamenn staðfestu í gær að Allawi þyrfti að heimila sérstaklega að ráðist yrði til atlögu við uppreisnarmenn í hinum helgu byggingum og að einungis íraskar hersveitir myndu taka þátt í slíku áhlaupi. Þúsundir bandarískra hermanna tóku þátt í árásinni á Najaf í gær. Bandarísk hermálayfirvöld takmörkuðu mjög fréttaflutning frá Najaf í gær en árásin hófst með því að skriðdrekar Bandaríkjamanna mynduðu fylkingu í kirkjugarði í útjaðri borgarinnar, herþyrlur sveimuðu yfir og skyttur komu sér fyrir á húsþökum. Uppreisnarmenn vörðust með sprengjuvörpum en hörfuðu innar í borgina eftir því sem á leið. Mannfall varð í röðum óbreyttra borgara en þeir höfðu verið hvattir til að yfirgefa borgina áður en árásin hófst. Engar fregnir bárust af mannfalli í röðum stríðandi fylkinga. Harðir bardagar geisuðu víðar um Írak í gær og féllu hundruð manna. Stjórnvöld í arabaríkjum og Íran hvöttu í gær til að bardögum í hinni helgu borg Najaf yrði hætt.
Erlent Fréttir Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Erlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Fleiri fréttir Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Sjá meira