Fjölmörg atriði á Menningarnótt 12. ágúst 2004 00:01
Heilgrillað naut, tilfinningaþrungið torg og bongótrommu-maraþon er meðal fjölmargra atriða sem boðið verður upp á á menningarnótt eftir rúma viku. Stjórn menningarnætur var í sumarskapi þegar hún bauð til blaðamannafundar í blíðviðrinu í dag en laugardaginn 21. ágúst verður hátíðin haldin hátíðleg í níunda skipti. Boðið verður upp á um 200 atriði og dagskráin því mjög viðamikil. Hægt er að skoða hana á vef Reykjavíkurborgar, Reykjavík.is. Þetta er í fimmta sinn sem Reykjavíkurmaraþon og menningarnótt eru haldin á sama degi. Í þetta sinn munu listamenn spila á bongótrommur og hvetja hlaupara til dáða víða á leiðinni. Meðal þess sem boðið verður upp á er heilgrillað naut við undirleik Smaladrengjanna, Brúarlandsbongó og Tilfinningatorgið sem er verðlaunahugmynd Elísabetar Jökulsdóttur úr hugmyndasamkeppni Landsbankans. Sif Gunnarsdóttir, verkefnastjóri menningarnætur, segir að þar eigi fólk að geta tjáð tilfinnningar sínar, hvort sem það ástarjátning, reiðiskast, afbrýðisemiskast eða eitthvað annað. Hátíðin stendur í tólf tíma, eða frá klukkan 11 til 23, en henni líkur líkt og vanalega á flugeldasýningu á Hafnarbakkanum. Talið er að um 100 þúsund manns hafi verið staddir þar í fyrra. Eins og við er að búast gengur umferðin seint á slíkum dögum. Lögreglan segir að mikil töf verði á umferð enda verði margar götur í miðbænum lokaðar. Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hvetur fólk til þess að fara í bæinn með því hugarfari að það verði að leggja bílnum talsvert langt frá, eða einfaldlega nota almenningssamgöngur. Lögreglan verður þó ekki eingöngu við gæslustörf heldur mun hún einnig taka virkan þátt í hátíðarhöldunum. Lögreglukórinn syngur við lögreglustöðina við Hverfisgötu og boðið verður upp á óvænta uppákomu sem Karl Steinar vill ekki tjá sig um - enda óvænt.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira