Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. ágúst 2026 07:24 Mark Zuckerberg er stofnandi Meta sem á samfélagsmiðlana Instagram og Facebook. EPA Bandarískur dómari hefur gert tæknifyrirtækinu Meta að greiða sekt upp á rúman hálfan milljarð Bandaríkjadollara fyrir að vara almenning ekki við áhættuna sem samfélagsmiðlar Meta kunna að hafa á börn. Þetta bætist við aðra sekt upp á hundruð milljóna dollara.
Um er að ræða stærsta dóm sem hefur fallið gegn fyrirtækinu vegna öryggis barna. Bryan Biedscheid, dómarinn í Nýja-Mexíkó, líkti Meta við verksmiðju sem framleiddi auglýsingar og efni en mengunin væri sálrænn skaði og kynferðisleg misnotkun barna. „Við erum ósammála dómnum og munum áfrýja,“ sagði talsmaður Meta við BBC. Meta rekur samfélagsmiðlana Facebook, Instagram og WhatsApp. „Við leggjum hart að okkur að tryggja öryggi fólks á miðlum okkar og höfum verið gagnsæ um áskoranirnar við að bera kennsl á og fjarlægja illgjarna aðila og skaðlegt efni. Við erum enn fullviss um að árangur okkar í að vernda unglinga á netinu og munum halda áfram að verjast fölskum fullyrðingum.“ Sektin er upp á 567 milljónir dala, rúma sjötíu milljarða króna. Fyrirtækið á að verja peningnum í að koma í veg fyrir að börn hljóti skaða af notkun samfélagsmiðlanna. Þá var Meta gert að fjarlægja tölur um hversu margir líka við (e. like) efnið fyrir börn undir átján ára og banna tilkynningar á reikningum barna frá miðlunum á milli klukkan 22 og 7 að morgni og á venjulegum skólatíma. Að lokum þarf Meta að innleiða takmarkanir á hversu miklum tíma börnin geta varið á miðlunum við níutíu klukkustundir á mánuði sem gera þrjár klukkustundir á dag. Dómurinn krafðist þess einnig að Meta myndi stilla aðganga barna á þann hátt að enginn fullorðinn einstaklingur gæti sent skilaboð á barn og ekki mætti senda eða fá sendar nektarmyndir. Þúsundir málaferla Álíka dómur féll sömuleiðis í Nýju-Mexíkó í mars þar sem Meta var talið bera ábyrgð á því hvernig samfélagsmiðlar stofnuðu börnum í hættu og útsettu þau fyrir grófu kynferðislegu efni. Þá ýti miðlarnir undir samskipti barna við kynferðisafbrotamenn. Í því máli þurfti Meta að greiða 375 milljónir dala, rúma 46 milljarða króna. Brotið hefði verið gegn lögum um óréttmæta viðskiptahætti vegna villandi upplýsinga til almennings varðandi öryggi miðla þeirra. Fyrrverandi starfsmenn báru vitni fyrir dómi þar sem þeir sögðu fyrirtækið meðvitað um að barnaníðingar notuðu miðla þess. Fyrirtækið á í þúsundum málaferla í Bandaríkjunum vegna svipaðra mála og auk þess að hafa tapað tveimur áðurnefndum málum tapaði fyrirtækið einnig í máli sem höfðað var í Los Angeles-borg í Kaliforníu.
Meta Erlend sakamál Samfélagsmiðlar Börn og uppeldi Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira