Ekki árás Valhallar 12. ágúst 2004 00:01
Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn segir ekkert hæft í ásökunum Gunnars I. Birgissonar, flokksfélaga síns í Kópavogi, um að höfnun borgarráðs á vatnslögn Kópavogsbæjar um land Reykjavíkurborgar sé árás Valhallar á sjálfstæðismenn í Kópavogi. Hann segir afstöðu sjálfstæðismanna í borgarráði byggjast á faglegri umsögn borgarlögmanns. Borgarráð hefur hafnað beiðni bæjaryfirvalda í Kópavogi um framkvæmdaleyfi fyrir stofnlögn vatnsveitu en ætlunin var að bora eftir vatni í Vatnsendakrikum og leggja vatnsleiðslu fyrir kalt vatn inn í Kópavog um Heiðmörk. Það vatn sem streymir nú úr krönum á heimili í Kópavogi er keypt af Reykjavíkurborg. Í umsögn borgarlögmanns segir að borsvæðið umdeilda sé á þeim hekturum sem borgin tók eignarnámi árið 1949 en bæjaryfirvöld í Kópavogi segja það í sinni lögsögu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík, greiddi atkvæði gegn vatnslögninni í borgarráði. Í Fréttablaðinu í dag lýsir Gunnar I. Birgisson, verðandi bæjarstjóri í Kópavogi, þeim gjörningi sem árás Valhallar á Sjálfsæðismenn í Kópavogi og segir að verið sé að stuðla að sundrungu Sjálfstæðisflokksins. Vilhjálmur segir ekkert hæft í þeim ásökunum. Í fyrsta lagi hafi hann aldrei verið aðstoðarframkvæmdastjóri flokksins, eins og segir í Fréttablaðinu, og í öðru lagi komi þetta mál Valhöll ekkert við. Hér sé um ágreiningsefni milli tveggja sveitarfélaga að ræða og að afstaða sín og og borgarráðs byggist eingöngu á faglegri umsögn borgarlögmanns en ekki einhverri geðþóttaákvörðun. Í ályktun frá bæjarráði Kópavogs segir að ráðið harmi að samskipti sveitarfélaganna sé komið í þennan farveg og bæjarstjóranum, Sigurði Geirdal, er falið að hitta borgarstjórann, Þórólf Árnason, og ræða málið. Reykjavík fer yfir lögsögu Kópavogs vegna Hellisheiðarvirkjunar og aðspurður hvort ekki væri eðlilegt að borgin sýndi Kópavogi viðlíka greiðasemi segir Vilhjálmur þetta ekki snúast um greiðasemi heldur lögfræðilegt deilumál um eignarhald á landi. Hann segir það málinu ekki viðkomið að Kópavogur kaupi vatn af Reykjavíkurborg. Borgin hefur áður lent í viðlíka deilum við einstök sveitarfélög en þá hafa ekki heyrst upphrópanir eins og núna að sögn Vilhjálms. Á myndinni eru þrír af borgarfulltrúm Sjálfstæðisflokksins, f.v. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Björn Bjarnason og Kjartan Magnússon.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira