Fleiri fréttir

Varaforsetinn vill að herinn hörfi

Varaforseti íröksku bráðabirgðastjórnarinnar, Ibrahim Jaafari, vill að liðsmenn hernaðarbandalags Bandaríkjanna hörfi frá borginni Najaf, þar sem bardagar hafa geisað milli fjölþjóðahersins og íraskra uppreisnarmanna.

Sprengjuhótun á flugvelli í Sofiu

Komusal flugvallarins í Sofíu, í Búlgaríu, var lokað um hálfsjöleytið í morgun, að íslenskum tíma, vegna sprengjuhótunar, samkvæmt innanríkisráðuneytinu í landinu. Stjórnendur flugvallarins segja að ekki hafi þurft að fresta flugi en fjölmiðlar í landinu segja að tuttugu mínútna seinkun hafi orðið á lendingu vélar frá Tyrklandi vegna málsins.

Olíuverð í sögulegu hámarki

Olíuverð í Bandaríkjunum náði sögulegu hámarki í gær, eða um 45 dollurum fyrir tunnuna, eftir að fregnir bárust af því að dregið yrði úr olíuvinnslu við Mexíkóflóða vegna yfirvofandi óveðurs.

Áheitasund yfir Faxaflóann

Í dag þreyja sundmenn úr Sundfélagi Akraness sitt árlega áheitasund yfir Faxaflóann frá Reykjavík til Akraness, um 18 km langa leið. Ferðin hófst á því að sundfólkið sigldi með hafnsögubátnum Leyni til Reykjavíkur, þar sem sundið hófst kl. 9:30 frá syðri innsiglingarvitanum í Reykjavíkurhöfn.

Ungmennabúðir að Laugum í vetur

Ungmenna- og tómstundabúðir verða opnaðar í vetur að Laugum í Dalasýslu. Að rekstrinum koma Ungmennafélag Íslands og Dalabyggð og munu Dalabyggð og Saubæjarhreppur leggja mannvirkin að Laugum til rekstursins.

Vilja fella neyðarlög úr gildi

Tíu útlendingar, sem haldið hefur verið í Bretlandi í nærri því þrjú ár án ákæru, töpuðu áfrýjunarmáli í morgun. Þeir eru grunaðir hryðjuverkamenn. Mannréttindasamtök og breskir þingmenn hafa hvatt stjórnvöld í Bretlandi til að fella úr gildi neyðarlög sem þau settu eftir hryðjuverkin ellefta september.

Nýja kerfið reynist vel

Reynslan af nýju símkerfi lögreglunnar í Reykjavík hefur reynst vel segir í fréttatilkynningu frá embættinu. Lögreglan í Reykjavík tók í síðasta mánuði upp Centrexkerfi þar sem öll símanúmer og símar hafa verið sameinuð í eitt kerfi með nýju símanúmeri 444-1000.

Spassky hvetur til eigin handtöku

Skáksnillingurinn Boris Spassky, gamall keppinautur Bobbys Fishers, hefur hvatt stjórnvöld í Bandaríkjunum til að handtaka sig og setja í fangaklefa með Fisher þar sem báðir mennirnir brutu í bága við viðskiptabann Bandaríkjanna í Júgóslavíu árið 1992.

Hitamet í Reykjavík

Nærri þrjátíu ára hitamet í Reykjavík er að öllum líkindum fallið þar sem hiti er kominn yfir 25 stig. Veðurfræðingar vilja þó ekki staðfesta metið fyrr en eftir mælingar í lok dags. Það má með sanni segja að Ísland sé heitt þessa dagana.

Tvö börn vitni að líkamsárás

Sjö manns, þar á meðal tvö börn, voru á vettvangi í Öxnadal þar sem karlmaður á þrítugsaldri á að hafa höfuðkúpubrotið annan mann í síðustu viku. Hinn grunaði hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögreglan á Akureyri yfirheyrir nú þá sem voru á staðnum.

Flóð í Jöklu í hámarki annað kvöld

Búist er við að flóðin í Jöklu nái hámarki annað kvöld og rennslið verði þá álíka mikið og þegar það varð mest á fimmtudag í síðustu viku. Þetta er samkvæmt reiknilíkani verkfræðistofunnar Vatnaskila, sem spáir fyrir um rennsli út frá veðurspá og hefur aðferðin reynst áreiðanleg.

900 milljónir í verkfallssjóði

Kennarar eru tilbúnir að eyða 900 milljóna króna verkfallssjóði sínum, segir formaður Félags grunnskólakennara. Fyrsti fundur deilenda eftir sumarhlé hefst klukkan eitt í dag og má búast við stífum fundarhöldum á næstunni.

Harðir bardagar í Najaf

Enn geisa bardagar í borginni Najaf í Írak. Varaforseti landsins krefst þess að Bandaríkjamenn fari frá borginni. Barist er í Najaf sjöunda daginn í röð. Bandaríski herinn telur að dregið hafi úr átökunum í gær og í dag en þeir segja að yfir 350 uppreisnarmenn hafi látið lífið síðustu daga.

15 særast í árásum Ísraelshers

15 særðust, þar á meðal tvö börn, í árásum Ísraelshers á Gazasvæðinu í nótt. Herinn segist hafa skotið flugskeyti að palestínskum vígamönnum á opnu svæði. Tíu ísraelskir skriðdrekar og nokkrir valtarar voru þar til að brjóta niður hús Palestínumanna.

Þurrkatíð rýrir afkomu bænda

Þurrkatíðin að undanförnu rýrir afkomu bænda þar sem gróður fölnar og er ekki eins kjarngott fóður og ella. Jóhanna Pálmadóttir á Akri í Húnavatnssýslu segir þetta hafa ótvíræð áhrif á afkomu sauðfjárbænda þar sem lömbin dafni hægar en ella , en nú styttist í sláturtíð.

Klóna stofnfrumur í lækningaskyni

Vísindamenn í Newcastle-háskóla í Bretlandi ætla að klóna stofnfrumur úr mönnum til að finna lækningu við sykursýki. Bresk stjórnvöld hafa veitt mönnunum leyfi til að klóna stofnfrumurnar í þágu læknavísinda.

Ermasundsgöngunum lokað um stund

Ermarsundsgöngunum milli Bretlands og Frakklands, var lokað rétt fyrir ellefu í morgun vegna bilana í merkjabúnaði lestarkerfis. Lokunin hefur áhrif á Eurostar-lestirnar sem flytja farþega á milli Parísar, Brussel, Lille og Lundúna, sem og lestir sem flytja bíla á milli Parísar og Lundúna.

Bátur brann og sökk

Skipverjinn á hraðfiskibátnum Eyrarröst slapp ómeiddur þegar eldur kom upp í bátnum í hádeginu og hann sökk. Ekkert neyðarkall barst frá manninum, en Landhelgisgæslunni barst tilkynning um það klukkan hálf eitt að reykjarstrókur sæist á hafinu um það bil sex sjómílur vest-norðvestur af Garðskaga.

Leitað að sprengju á baðströnd

Spænska lögreglan leitar nú dyrum og dyngjum að 150 kílóa sprengju, sem á að vera falin einhverstaðar á baðströndum í Tarragona, á miðjarðarhafsströndinni. Lögreglu barst nafnlaust símtal eftir hádegi, þar sem sagt var að aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA , hefði komið sprengjunni fyrir.

Finnar kaupa mest af sterku áfengi

Finnar kaupa mest af sterku áfengi á Norðurlöndum. Þetta kemur fram í tölum um áfengissölu sem Stakes, rannsóknastofnun um félags- og heilsuvernd, hefur birt. Árlega kaupa Finnar, 15 ára og eldri, að meðaltali 13 hálflítra flöskur af sterku áfengi. Það er nær tvisvar sinnum meira en Norðmenn og Svíar kaupa.

Upplagseftirlit á fyrri hluta árs

Meðaltalssala Morgunblaðsins frá janúar til júní 2004 var 53.135 eintök á dag. Á sama tíma á síðasta ári var hún um 350 blöðum meiri. Prentuð blöð Fréttablaðsins á frá janúar til júní í ár, voru að meðaltali um 101 þúsund eintök á dag. Þetta kemur fram í upplagseftirliti Verslunarráðs Íslands.

Brjóta ekki gegn EES samningi

Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel (ESA) hefur samþykkt að starfsskilyrði Íbúðalánasjóðs brjóti ekki gegn ákvæðum EES-samningsins. Stofnunin samþykkir einnig hækkun hámarksláns Íbúðalánasjóðs í 90% af kaupverði íbúðar.

Gæsluvarðhald framlengt

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst eftir hádegi á þá kröfu lögreglunnar að framlengja gæsluvarðhald yfir Hákoni Eydal, sem myrti fyrrverandi sambýliskonu sína fyrr í sumar, til 5. nóvember. Jafnhliða gæsluvarðhaldinu sætir hann geðrannsókn.

Torri Edwards í tveggja ára bann

Heimsmeistarinn í 100 metra hlaupi kvenna, Torri Edwards, hefur hlotið tveggja ára keppnisbann eftir að hún féll á lyfjaprófi. Edwards hafði áður verið valin í Bandaríska liðið á Ólympíuleikana.

Lestarslys í Tyrklandi

Sex fórust og um hundrað slösuðust þegar tvær lestir rákust saman í vestur Tyrklandi í dag. Ekki er enn vitað um tildrög slyssins, en það varð skammt frá þeim stað þar sem 39 manns fórust í lestarslysi í síðasta mánuði.

Forseti Alþingis til Kaliforníu

Halldór Blöndal, forseti Alþingis og eiginkona hans munu heimsækja Kaliforníu dagana 12. - 19. ágúst í boði efri deildar fylkisþings Kaliforníu. Með þeim í för verða Guðmundur Árni Stefánsson og Gunnar Birgisson ásamt mökum og starfsmanni Alþingis.

Djúpsprengja kom í troll togara

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyddu í gær djúpsprengju sem kom í troll togarans Þórunnar Sveinsdóttur. Skipstjórinn á Þórunni Sveinsdóttur hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kl. 10 í gærmorgun og óskaði eftir aðstoð.

Lýst eftir konu

Lögreglan í Hafnarfirði lýsir eftir Ólöfu A. Breiðfjörð Guðjónsdóttur. Ekkert hefur spurst til hennar síðan á föstudaginn var í Garðabæ. Ólöf er þrítug, 173 til 175 sentimetrar á hæð, dökkhærð, með hár rétt niður fyrir axlir og grannvaxin. Þeir sem vita eitthvað um ferðir hennar eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Hafnarfirði í síma 525 3300.

Ekki meira kossaflens

Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, er orðin hundleið á stöðugu kossaflensi karlmanna sem hún hittir. Hún frábiður sér nú frekari atlot. Arroyo segist vera siðprúð og hún muni aðeins kyssa eiginmann sinn héðan í frá.

Kviknaði í slökkvistöðinni

Slökkviliðsmenn á Flórída eru ekki óvanir því að eiga við elda sem kvikna í kjölfar eldinga. Þeir voru hins vegar teknir í bólinu þegar eldingu laust niður í gamla slökkvistöð í timburhúsi í dreifbýli norðarlega á Flórídaskaganum.

Schwarzenegger mjög vinsæll

Arnold Schwarzenegger er vinsælasti ríkisstjóri í Kaliforníu í þrjátíu ár, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Um 65% kjósenda í ríkinu styðja leikarann og hasarhetjuna sem hefur gegnt embætti í níu mánuði.</font />

Gildistöku vegabréfalaga frestað

Forseti Bandaríkjanna skrifaði í gær undir lög sem fresta gildistöku laga um vegabréf með lífkenni, um eitt ár fyrir þau lönd sem þurfa ekki áritun til Bandaríkjanna, en áður hafði reglugerðin verið samþykkt árið 2002. Með þessu frestast gildistaka laganna til 26. október 2005

Níræður í handjárnum

Sjónvarpsmaðurinn góðkunni úr fréttaskýringaþættinum 60 mínútum var handjárnaður og færður á lögreglustöð eftir að hafa lent í útistöðum við stöðumælaverði í New York á þriðjudag.

Bloggari fangelsaður

Yfirréttur í Kína staðfesti í gær dóm undirréttar yfir manni sem dæmdur hafði verið í þriggja ára fangelsi fyrir að grafa undan kínverskum yfirvöldum með því að halda úti pólitískri vefsíðu.

Sauma fyrir munn sér

Afganskir flóttamenn í Indónesíu hafa saumað fyrir munn sér og hafið hungurverkfall til að þrýsta á um að þeim verði veitt hæli.

Spilltar löggur fengu þunga dóma

Þrír lögreglumenn fengu þunga fangelsisdóma þegar dómstóll í Moskvu komst að þeirri niðurstöðu að þeir væru meðlmir í glæpasamtökum. Sá sem þyngstan dóm hlaut var dæmdur í 23 ára fangelsi.

Schröder heimsækir gröf föður síns

Gerhard Schröder kanslari Þýskalands mun heimsækja gröf föður síns í fyrsta sinn þegar hann fer í opinbera heimsókn til Rúmeníu í dag.

Fortíð CIA-stjóra á huldu

Porter J. Goss, sem tilnefndur var í gær sem næsti forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, var leyniþjónustumaður í Mið-Ameríku á miklum umbrotatímum í bandarískum öryggismálum á 7. áratugnum. Margt er á huldu um fortíð Goss sem verið hefur formaður leyniþjónustunefndar bandaríska þingsins.

Sænskum börnum haldið á Gaza

Palestínskur maður hefur numið á brott fimm börn sín sem hann á með sænskri konu og dvelur nú með þau í Gaza-borg.

Íranar hóta öllu illu

Íranar hóta Bandaríkjamönnum öllu illu vegna bardaganna í írösku borginni Najaf en þar berjast Bandaríkjamenn við fylgismenn shíta- klerksins Muqtada al-Sadr og er mannfall mikið.</font />

Ósló og París dýrastar

Ósló og París eru dýrustu borgir Evrópu samkvæmt nýrri könnun rannsóknarstofnunarinnar EIU.

Glæpsamleg vanræksla

Stjórnendur sjúkrahússins Ullevål í Osló viðurkenndu í gær að mistök hefðu átt sér stað við meðferð geðsjúka mannsins sem sakaður er um að hafa stungið mann til bana í miðborg Óslóar í síðustu viku.

Stórárás vofir yfir

Harðir bardagar hafa staðið í Najaf í heila viku. Bandaríkjamenn undirbúa stórárás á borgina. Sjíaklerkurinn al-Sadr hvetur sína menn til dáða. </font /></b />

90 prósent lán í haust

Árni Magnússon félagsmálaráðherra mun í haust leggja fram frumvarp á Alþingi um breytingu á húsnæðislánakerfinu þannig að heimild verði til að veita lán fyrir 90 prósent af kaupverði íbúðar.

Górillu tvíburar

Það er ekki á hverjum degi sem tveir górilluungar líta dagsins ljós, hvað þá að þeir séu tvíburar. Móðirin var stolt á að líta með ungana sína tvo fyrir framan myndavélarnar en hún býr ásamt karli sínum í friðuðum þjóðgarði í Rúanda þar sem 16 górilluungar hafa komið í heiminn síðasta árið.

Sjá næstu 50 fréttir