Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrumuveður á Suðurlandi Þrumur og eldingar geisuðu á Suðurlandi í nótt og fylgdu úrhellis skúrir í kjölfarið. Um tíma fór rafmagn af Hveragerði og Ölfusi en ekki er vitað til þes að tjón hafi hlotist af. Að sögn veðurfræðings á Veðurstofunni var mjög hlýtt og rakt loft að ganga inn á landið sem olli ójafnvægi í loftstraumum og verður þá þrumuveður. 9.8.2004 00:01
Stíflan hækkuð enn frekar Þótt Jökulsá á Dal hafi setið á sér í gær ákváðu sérfræðingar Landsvirkjunar á fundi sínum í gær að hækka varnargarðinn ofan við stíflustæðið enn frekar en orðið er. Ætlunin er að stíflan nái 498 metra hæð yfir sjávarmáli. 9.8.2004 00:01
6 látnir og 17 særðir Bílsprengja varð sex manns að bana og særði sautján í borginni Baquba, norður af Bagdad, í Írak í morgun. Sprengjan sprakk fyrir utan hús ríkisstjóra á svæðinu sem var fluttur á spítala en ekki er vitað um afdrif hans. 9.8.2004 00:01
Slys á Gjábakkavegi Kona slasaðist, þó ekki lífshættulega, þegar jepplingur og rútubíll lentu í árekstri á Gjábakkavegi á milli Þingvalla og Laugarvatns í gær. Konan var í jepplingnum en engan í rútunni sakaði. Þá slasaðist frönsk ferðakona þegar bíll hennar valt á veginum inn í Lakagíga. 9.8.2004 00:01
Ástralska barnið fundið Áströlsk móðir er himinlifandi eftir að þriggja vikna dóttir hennar, sem var rænt frá henni fyrir utan verslunarmiðstöð í fyrrakvöld, er komin í leitirnar. 9.8.2004 00:01
Blindþoka á Holtavörðuheiði Nokkrir bílar fóru út af veginum yfir Holtavörðuheiði í blindþoku sem gerði þar upp úr miðnætti. Vegfarandi segir að um tíma hafi ekki sést handa skil og við það bættist að vegna vegaframkvæmda hafði Vegagerðin tekið niður stikur á nokkrum kafla og ekki var búið að mála miðlínu á veginn. 9.8.2004 00:01
Bjargað úr jarðgöngum á Indlandi Tuttugu byggingaverkamönnum, sem höfðu setið fastir í jarðgöngum eftir miklar rigningar í afskekktu þorpi á Himalayja-svæðinu á Indlandi, var bjargað í nótt. Göngin eru hluti byggingaframkvæmda við orkuver og höfðu mennirnir verið innilokaðir í sólarhring. 9.8.2004 00:01
Hlutur kvenna efldur Stjórn ungra Framsóknarmanna ályktaði á fundi sínum í gær að brýnt sé að efla hlut kvenna í forystusveit flokksins. Nú sé svo komið að erfitt sé að fá konur til að taka að sér störf innan ungliðahreyfingarinnar og endurnýjun kvenna þar hafi því verið hægari en æskilegt væri, og hið sama eigi við annars staðar í flokknum. 9.8.2004 00:01
Keyrði inn í matvöruverslun Maður ók inn um glugga á JL-húsinu við Ánanaust á ellefta tímanum í morgun. Hann var fluttur á slysadeild en ekki hafa fengist upplýsingar um líðan hans. 9.8.2004 00:01
Sprenging í kjarnorkuveri Fimm af tíu starfsmönnum kjarnorkuvers í Japan, sem voru fluttir í skyndingu á sjúkrahús eftir gufusprenging varð í kjarnorkuveri í borginni Mihama í nótt, eru látnir. Gufusprenging varð við einn kjarnakljúfinn en stjórnvöld staðhæfa að engin geislavirk efni hafi lekið út. Ekki er nánar tilgreint í hverju bilunin liggur. 9.8.2004 00:01
Fáar konur á breska þinginu Bretar hafa áhyggjur af því að hlutfall kvenna á breska þinginu sé ekki nógu hátt. Einungis 94 konur sitja á þingi fyrir hönd Verkamannaflokksins en heildarfjöldi þingmanna flokksins er 408. Fjórtán af 163 þingmönnum Íhaldsflokksins eru konur. 9.8.2004 00:01
Kjarabarátta kennara hefst að nýju Félag grunnskólakennara á fund með viðsemjendum sínum hjá ríkissáttasemjara á miðvikudaginn. Kennarar hafa boðað verkfall í grunnskólum landsins frá 20. september. 9.8.2004 00:01
Róðrarköppum bjargað á Atlantshafi Fjórum róðrarköppum var í gærkvöldi bjargað um borð í flutningaskip um 350 sjómílur vestur af Skotlandi en þeir voru á leið yfir Atlantshafið frá Kanada. Landhelgisgæslunni var tilkynnt um að bátsverjar hefðu sent út neyðarkall en þá var báturinn mun nær Skotlandi en Íslandi eftir 39 daga róður bátsverja. 9.8.2004 00:01
Eldsneytisgjald flugfélaga hækkar Flugfélagið British Airways er enn að hækka svonefnt eldsneytisgjald vegna hækkandi olíuverðs á heimsmarkaði. Gjaldið hefur haldist óbreytt hjá Flugleiðum frá því 1. júní. 9.8.2004 00:01
Landeigandi fær frest til andmæla Frestur landeigenda á Héraði til andmæla vegna fyrirhugaðs eignarnáms Landsvirkjunar á fimm jörðum hefur verið framlengdur um viku. 9.8.2004 00:01
Vill minnka mun á tekjuskatti Varaformaður efnahags-og viðskiptanefndar telur mismun á tekjuskatti og fjármagnstekjuskatti óeðlilega mikinn hér á landi. Hann segir rétt að hugað verði að breytingum í haust. 9.8.2004 00:01
Lofa að fara varlegar en áður Bandarískir hermenn í Afganistan munu fara sér varlegar í framtíðinni og taka aðeins meira tillit til heimamanna en hingað til. Þessu lofaði David Barno, hershöfðingi og æðsti yfirmaður Bandaríkjahers í Afganistan, á fundi með Hamid Karzai, forseta Afganistans. 9.8.2004 00:01
Ósáttir við Bandaríkjamenn Bandarískir embættismenn kunna að hafa eyðilagt fyrir baráttunni gegn hryðjuverkamönnum með því að ljóstra því upp við blaðamenn að al-Kaídaliðinn Muhammad Naeem Noor Khan hafi verið handtekinn. Þetta hafa fréttamenn CNN eftir pakistönskum leyniþjónustumönnum. 9.8.2004 00:01
Kosningaeftirlit í Bandaríkjunum Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu hefur ákveðið að vera með kosningaeftirlit í bandarísku forsetakosningunum. Íslensk kona er talsmaður kosningaeftirlitsins. 9.8.2004 00:01
Syndir 60 km í Breiðafirði Viktoría Áskelsdóttir, sem að undanförnu hefur verið á sundi í Breiðafirði og ætlar samanlagt að synda þar 60 kílómetra, eða sem svarar vegalengdinni frá Brjánslæk til Stykkishólms, er væntanleg til Stykkishólms á hádegi á morgun. 9.8.2004 00:01
Enn þungt haldin Líðan manns og konu á sjötugsaldri, sem slösuðust í hörðum árekstri við Kotströnd á Suðurlandsvegi um verslunarmannahelgina, er enn óbreytt. Þau liggja þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss og er báðum haldið sofandi og í öndunarvél. 9.8.2004 00:01
Sakaðir um morð og fjársvik Handtökutilskipun eftir verið gefin út á hendur frændunum Ahmed og Salem Chalabi. Ahmed átti sæti í framkvæmdaráði Íraks sem var leyst upp þegar bráðabirgðastjórnin tók við í lok júní. Salem er í forsvari fyrir dómstólinn sem kemur til með að rétta yfir Saddam Hussein. 9.8.2004 00:01
Hitamet slegin í dag? Spáð er yfir tuttugu stiga hita víða um land í dag eftir að hlýtt loft tók að streyma inn á landið í nótt með þrumum og eldingum á Suðurlandi. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur býst allt eins við að ný hitamet verði slegin í dag. Hann segir að afskaplega heitt loft hafi borist til landsins en hins vegar sé sólskin alls ekki mikið. 9.8.2004 00:01
Eurocorps tekur við í Afganistan Herdeildir Eurocorps tóku við yfirstjórn Atlantshafsbandalagsins, NATO, í Afganistan af kanadíska hernum í morgun en hann hefur stjórnað herdeildum NATO þar í landi frá því í janúar. Eurocorps var sett á laggirnar árið 1992 og er viðbragðsher sem NATO eða Evrópusambandið getur sent til átakasvæða með skömmum fyrirvara. 9.8.2004 00:01
Al-Kaída hagnast á upplýsingaleka Tilraunir Bandaríkjastjórnar til að réttlæta viðvaranir við hryðjverkaógn í síðustu viku kom að öllum líkindum í veg fyrir frekari handtökur á meðlimum Al-Kaída hryðjuverkasamtakanna í Bandaríkjunum, Evrópu og Pakistan. 9.8.2004 00:01
Heilsuvænir nammisjálfsalar Nammisjálfsalar standa vart undir nafni sem slíkir öllu lengur í Bandaríkjunum. Nú er svo komið að hlutur heilsusamlegra matvæla eykst stöðugt í slíkum sjálfssölum. 9.8.2004 00:01
Deila um fjárlögin Lítið virðist ganga í viðræðum tveggja stærstu stjórnmálaflokka Ísraels um myndun þjóðstjórnar. 9.8.2004 00:01
Erlend slúðurblöð elta Íslending Bandarísk slúðurblöð eltast nú við ungan Íslending sem starfar á Keflavíkurflugvelli vegna millilendingar leikarans Nicolas Cage þar í síðustu viku að því er fram kemur á vef Víkurfrétta. Þeim finnst sú staðreynd að hann hafi verið að ferðast með barnsmóður sinni, Kristina Fulton, vera mjög óvenjuleg þar sem að Cage giftist nú nýverið hinni 19 ára gömlu Alice Kim. 9.8.2004 00:01
Sjómenn og útvegsmenn funda Fundi sjómanna og útvegsmanna hjá Ríkissáttasemjara lauk í hádeginu í dag. Nýr fundur hefur verið boðaður á mánudaginn klukkan tíu. Sem kunnugt er ríkja deilur um laun sjómanna og var fundurinn í dag sá fyrsti á milli deiluaðila síðan í maí. 9.8.2004 00:01
Mikill hiti á landinu Hitinn er mikill á Íslandi um þessar mundir. Víða um land hefur mælst yfir tuttugu stiga hiti í dag eftir að hlýtt loft tók að streyma inn á landið í nótt með þrumum og eldingum á Suðurlandi. Sérstaklega hlýtt er á hálendinu og til að mynda var hitinn á Hveravöllum 23 stig klukkan 14 og 22 stig voru við Veiðivatnahraun. 9.8.2004 00:01
Ekki merki um þjóðarmorð Fulltrúar Evrópusambandsins segjast ekki hafa fundið merki um þjóðarmorð í Darfúr-héraði í Súdan líkt og haldið hefur verið fram að hafi átt sér þar stað undanfarið. Pieter Feith, ráðgjafi Javier Solana sem er yfirmaður utanríkismála ESB, sagði fyrr í dag að augljóst væri að „hljóðlát og hæg" manndráp, sem og þorpsbrennur, færu þar fram í stórum stíl. 9.8.2004 00:01
200 þúsund ferðamenn á árinu Rúmlega 200 þúsund ferðamenn höfðu heimsótt Ísland í byrjun ágúst og er það aukning um sautján prósentustig frá fyrra ári. Söluaukning vegna ferðamannanna var þó öllu lægri á fyrri hluta þessa árs, eða um tíu prósent. 9.8.2004 00:01
Líðan mannsins ókunn Engar upplýsingar hafa fengist um líðan mannsins sem ók jeppa inn um glugga á JL-húsinu við Ánanaust á ellefta tímanum í morgun. Hann fékk aðsvif undir stýri og var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild. Ekki er vitað hað olli aðsvifinu en að sögn lögreglu er talið líklegt að hann hafi fengið hjartastopp. 9.8.2004 00:01
Kransar úr 3000 ára gömlum trjám Sigurvegarar í maraþonhlaupi karla og kvenna á Ólympíuleikunum í Aþenu sem hefjast á föstudaginn munu fá kransa sem búnir eru til úr greinum elstu olívutrjáa Grikklands. Um er að ræða tvö tré, hvort í sínu þorpinu á grísku eyjunni Krít, sem sögð eru meira en 3000 ára gömul. 9.8.2004 00:01
Kenna tóma vitleysu Ríki Bandaríkjanna eru 53 talsins en fáninn "hefur ekki verið uppfærður til að taka tillit til þriggja síðustu ríkjanna - Hawai, Alaska og Púerto Ríkó". Seinni heimsstyrjöld hófst 1938 og henni lauk fjórum árum síðar. Þingið skiptist í tvennt, öldungadeildina og fulltrúadeildina, önnur er fyrir demókrata en hin fyrir repúblikana. 9.8.2004 00:01
Fjórir létust í kjarnorkuveri Fjórir létust og og sjö slösuðust vegna gufuleka í kjarnorkuveri í borginni Mihama í Japan í gær. Tvísýnt er um líf eins hinna slösuðu. 9.8.2004 00:01
Nautakjötið hækkar enn "Ég held að það sé alveg ljóst að nautakjöt eigi eftir að hækka. Afurðaverð var hækkað um sex prósent að meðaltali og það hefur ekkert fyrirtæki hér á landi sýnt að það sé þess megnugt að taka slíkar hækkanir á sig án þess að grípa til einhverra aðgerða," segir Reynir Eiríksson, forstjóri Norðlenska. 9.8.2004 00:01
Vinnan rýrir tekjurnar "Ég hélt að svona gerðu menn ekki," segir Sigurður Jónas Jónasson, 67 ára gamall ellilífeyrisþegi sem ber út dagblöð sér til heilsubótar og kaupauka. Honum finnst hins vegar súrt í broti að þær tekjur sem hann fær fyrir blaðburðinn eru dregnar af tekjutryggingu hans, auk þess sem meiri skattur er tekinn af laununum en væri tekinn af lífeyrinum 9.8.2004 00:01
Kornabarn kom í leitirnar Áströlsk móðir er himinlifandi eftir að þriggja vikna dóttir hennar, sem var rænt frá henni fyrir utan verslunarmiðstöð í Melborne í Ástralíu í fyrrakvöld, kom í leitirnar. Karl og kona á þrítugsaldri rændu barninu. 9.8.2004 00:01
Strangari reglur en tíðkast hafa Öryggiskröfur þess fyrirtækis sem sér um að reisa álver Alcoa í Reyðarfirði eru svo miklar að gengið hefur fram af mörgum þeim starfsmönnum sem þegar hafa hafið þar störf. Hafa þeir flestir langa reynslu af ýmis konar framkvæmdum en fullyrða að aldrei fyrr hafi jafn viðamiklum reglum verið fylgt jafnhart eftir hér á landi. 9.8.2004 00:01
Sprenging í kjarnorkuveri í Japan Fjórir létust og sjö særðust í gufusprengingu í kjarnorkuveri í Mihama í Vestur-Japan í morgun. Mennirnir hlutu alvarleg brunasár undan hita gufunnar sem var yfir 250 stig á selsíus. 9.8.2004 00:01
Dorgað í blíðunni Fátt er vænlegra fyrir íbúa Neskaupstaðar til að ná sér niður eftir innrás þúsunda ferðamanna á Neistaflug sem fram fór þar í bæ um verslunarmannahelgina en að tylla sér á bryggjukant í blíðviðri og dorga. 9.8.2004 00:01
Sjúkrabílar fá ekki fulla skoðun Aðeins ein þeirra fjögurra sjúkrabifreiða sem eru til taks á vinnusvæði ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo sem vinnur að gerð Kárahnjúkavirkjunar hefur fengið fulla skoðun við bifreiðaeftirlit síðan þeir voru keyptir hingað til lands. 9.8.2004 00:01
Láta veðrið ráða för "Það er nánast komin hefð á þetta og við erum hvergi nærri hættir enn," segir Gylfi Árnason, forstjóri Opinna kerfa, en hann var á ferð um landið um síðustu helgi ásamt Jónasi G. Jónassyni, forstjóra Mode. Ferðast þeir báðir um leðurklæddir frá toppi til táar enda þeysa þeir um á mótorhjólum, Gylfi á Kawasaki og Jónas á Harley Davidson. 9.8.2004 00:01
Ferðamenn verða að snúa við "Við gerum ekki ráð fyrir að hleypa almennri umferð um brúna yfir Jökuldalsá fyrr en í lok mánaðarins," segir Sigurður St. Arnalds, almannatengslafulltrúi Landsvirkjunar. Gríðarmikil umferð ferðamanna og forvitinna heimamanna hefur verið að framkvæmdasvæðinu við Kárahnjúka í allt sumar. 9.8.2004 00:01