Ósáttir við Bandaríkjamenn 9. ágúst 2004 00:01
Bandarískir embættismenn kunna að hafa eyðilagt fyrir baráttunni gegn hryðjuverkamönnum með því að ljóstra því upp við blaðamenn að al-Kaídaliðinn Muhammad Naeem Noor Khan hafi verið handtekinn. Þetta hafa fréttamenn CNN eftir pakistönskum leyniþjónustumönnum. Pakistanskir leyniþjónustumenn notuðu Khan eftir að hann var handtekinn til að afla upplýsinga um og hafa uppi á al-Kaídaliðum víða um heim. Khan er tölvusérfræðingur og segja embættismenn að hann hafi hjálpað Osama bin Laden við að eiga samskipti við undirmenn sína. Því litu Pakistanar svo á að Khan gæti reynst mikilvægur í viðleitni þeirra við að handtaka al-Kaídaliða. Pakistönsku leyniþjónustumennirnir óttast hins vegar að uppljóstranir bandarískra embættismanna verði til að þeir hafi ekki frekari not af Khan. Bandarískir embættismenn greindu frá handtöku Khans eftir að varúðarstig vegna hættu á hryðjuverkum var hækkað í Bandaríkjunum. Þeir sögðu handtökuna eina af ástæðunum fyrir því að ástæða þótti til að auka varnarviðbúnað. Fjöldi al-Kaídaliða hefur verið handtekinn að undanförnu. Þeirra á meðal er Qari Saifullah Akhtar, háttsettur foringi í al-Kaída, sem hefur skipulagt tvö tilræði við Pervez Musharraf, forseta Pakistans. Í Hvíta húsinu telja menn hins vegar að síðasta vika hafi skilað miklum árangri í baráttunni gegn hryðjuverkum. Embættismenn sögðu í viðtölum að handtökur al-Kaídaliða og upplýsingaöflun hefðu orðið til að grafa undan tilraunum hryðjuverkamanna til að ráðast á Bandaríkin. "Ég tel víst að aðgerðir okkar nú hafi truflað þá," sagði Frances Fragos Townsend, ráðgjafi Bandaríkjaforseta í heimavarnarmálum, í viðtali á Fox-sjónvarpsstöðinni. "Spurningin er: Höfum við truflað alla starfsemina eða hluta af henni? Og við vinnum að því með rannsóknum að komast að því hvort sé raunin," sagði hann.
Erlent Fréttir Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fleiri fréttir Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Sjá meira