Nautakjötið hækkar enn 9. ágúst 2004 00:01 "
Ég held að það sé alveg ljóst að nautakjöt eigi eftir að hækka. Afurðaverð var hækkað um sex prósent að meðaltali og það hefur ekkert fyrirtæki hér á landi sýnt að það sé þess megnugt að taka slíkar hækkanir á sig án þess að grípa til einhverra aðgerða," segir Reynir Eiríksson, forstjóri Norðlenska. Flestir sláturleyfishafar landsins hafa hækkað afurðaverð sitt til kúabænda eða munu gera það innan skamms. Fram að árslokum í fyrra hafði verið offramboð á nautakjöti sem og á kjúklinga- og svínakjöti sem leiddi til verðlækkana á nautakjötsmarkaði. Það sem af er ári hefur markaðurinn einkennst af vöntun og hefur verðið á nautakjöti því smá saman verið að stíga upp. Sláturfélag Suðurlands hafa hækkað afurðaverð sitt til bænda en Steinþór Skúlason, forstjóri SS, segir að sú hækkun muni ekki skila sér í markaðsverð þar sem sú hækkun kom í kjölfar verðhækkana á neytendamarkaði. Hann segir þó að vöntun á kjöti geti leitt til áframhaldandi verðhækkana. "Það er mikilvægt að reyna að halda stöðugleika og reyna að stjórna framboðinu, en við sjáum ekki tilgang að vera með hraðan tröppugang í verðbreytingum." Steinþór segir að tímaramminn í kjötvinnslu sé stór og offramboð geti orðið á markaði eftir tvö ár ef bændur setja marga kálfa á núna út af háu kjötverði. Hann segir að viðsnúning hafa orðið á kjötmarkaði því ekki hafi þótt arðbært að rækta naut. "Bændur hafa líka náð góðum árangri og meðalnyt á hverja mjólkurkú hefur aukist. Þar sem færri kýr eru nýttar við mjólkurframleiðslu fæðast færri kálfar." Sigurður Hall, matreiðslumeistari, er með þá stefnu að kaupa aðeins íslenskt nautakjöt. Hann segir meira en afurðaverð spila inn í minnkandi framleiðslu, fóður sé líka srjúpur partur af nautaeldi. "Mér þætti það mikil synd ef íslenskt nautakjöt yrði svo dýrt að við þyrftum að kaupa innflutt kjöt. Íslenskur landbúnaður þarf að vera starfræktur eins og verið hefur gert. Þetta er flottasti landbúnaður í heimi."
Fréttir Innlent Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fleiri fréttir Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Sjá meira