Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kveikti í tveimur húsum Húsráðendur á Vopnafirði sáu að kveikt hafði verið í gardínum í svefnherberginu þegar þeir komu heim úr ferðalagi í fyrrakvöld. 5.8.2004 00:01
Stefnir í stórslys við Geysi "Það stefnir í stórslys við Geysi ef ekki verða settar upp nákvæmar merkingar á svæðinu," sagði Harpa Harðar leiðsögumaður og starfsmaður í Goethestofnuninni í Reykjavík. Hún kveðst hafa orðið vitni að því að fólk hafi beinlínis sett sig í lífshættu við að standa of nærri Geysi í Haukadal, sem hafi þá gosið, öllum að óvörum. 5.8.2004 00:01
Óttaðist um líf sonar síns daglega Sólbjörg Linda Reynisdóttir, móðir fjögurra ára drengs með bráðaofnæmi fyrir jarðhnetum, óttaðist á hverjum degi í tvö ár um líf sonar síns, Arnþórs Birkis Sigurðssonar. Hún telur vítamíndropa hafa vakið ofnæmið en segist heldur vera farin að slaka á núna. 5.8.2004 00:01
Tekið fastar á aukaefnunum Í endurskoðaðri reglugerð um merkingar á matvælum með tilliti til hugsanlegra ofnæmisvalda verður tekið fastar á merkingu aukaefna heldur en í gildandi reglugerð, að sögn Helgu Bjarnadóttur, staðgengils forstöðumanns matvælasviðs Umhverfis- og heilbrigðisstofu. Endurskoðun reglugerðarinnar er þegar hafin. 5.8.2004 00:01
Arafat hylltur í Ramallah Hundruð stuðningsmanna Yassers Arafats, forseta Palestínu, voru samankomin á götum Ramallah borgar á Vesturbakkanum í dag til að hylla forsetann. Stuðningur við Arafat hefur minnkað síðustu misseri en samkoman í dag sýnir að hann nýtur enn mikils stuðnings meðal þegna sinna. 5.8.2004 00:01
Tvöfalt launakerfi nefndakónga Tveir alþingismenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar telja það vera almannahagsmuni að birta laun sem ríkið greiðir einstaklingum fyrir setu í nefndum og ráðum. Sérfræðingar úr einkageiranum, sem fegnir séu til að gefa nefndum aukna vigt, fá greidda útselda vinnu ofan á venjuleg nefndarlaun. 5.8.2004 00:01
Kaupa í Tékklandi Fjárfestahópur sem í eru meðal annars Íslenskir fjárfestar hefur keypt yfir 70 prósenta hlut í tékknesku fjarskiptafyrirtæki. 5.8.2004 00:01
Þjóðminjasafnið á áætlun Þjóðminjasafnið verður opnað 1. september næstkomandi og ekki deginum seinna. Framkvæmdir eru á lokastigi, segir þjóðminjavörður, og starfsmenn vinna nótt sem nýtan dag jafnt innan húss sem utan, til þess að ekki verði frekari tafir á opnun safnins. 5.8.2004 00:01
Vatn rauf skarð í varnargarð Hættuástand skapaðist við virkjunarframkvæmdir við Kárahnjúka í gærkvöldi þegar vatnsflaumur Jökulsár á Dal rauf skarð í varnargarðinn sem verndar vinnusvæði þeirra er starfa við byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Vatn hefur runnið undir garðinn og þurfti í gær að rýma vinnusvæðið. 5.8.2004 00:01
Dýrkeypt fyrir þjóðina Fjöldatakmarkanir í Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri munu reynast íslensku þjóðinni dýrkeyptar þar sem hundruð einstaklinga er gert ókleift að stunda æðri menntun, að því er þingflokkur Samfylkingarinnar heldur fram. 5.8.2004 00:01
Málið ekki í höfn "Þarna er um að ræða lítið skref í rétta átt en engu að síður er langt í land ennþá," segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. 5.8.2004 00:01
Ístak með lægsta tilboðið Ístak átti lægsta tilboð í nýjan kerskála og aðrar byggingar vegna þriðja áfanga Norðuráls á Grundartanga, þ.e. stækkunar álversins úr 90 þúsund tonnum í 180 þúsund tonn. Tilboðin voru opnuð 29. júlí sl. Tilboð Ístaks var upp á röska 3,2 milljarða króna en hæsta tilboðið, frá Íslenskum aðalverktökum, var rúmlega 3,6 milljarðar. 5.8.2004 00:01
Búið að leita þar sem líkið fannst Lík Sri Rahmawati fannst í hraunsprungu í Almenningi fyrir sunnan Hafnarfjörð í gær. Líkið var vandlega hulið með grjóti og erfitt að sjá að nokkuð hefði verið sett í sprunguna sem er um þriggja metra djúp. Felustaðurinn er innan þess svæðis sem lögregla og björgunarsveitarmenn höfðu leitað á síðustu daga. 4.8.2004 00:01
Burðarás á bankaveiðum Fjárfestingarfélagið Burðarás keypti í gær 3,38 prósenta hlut í breska bankanum Singer and Friedlander sem KB banki á fimmtung í. 4.8.2004 00:01
Ógnarstjórn flæmir burt starfsmenn Á annan tug íslenskra starfsmanna hefur flæmst úr starfi að Kárahnjúkum vegna hrokafullrar framkomu yfirmanna undirverktakafyrirtækisins Sodexho. Kvartanir hafa streymt frá starfsfólkinu, en yfirmennirnir láta ekki segjast. Trúnaðarmaður á svæðinu staðfestir þetta. 4.8.2004 00:01
Stöðugleiki forsenda alls Halldór Ásgrímsson tekur við embætti forsætisráðherra 15. september. Hann boðar ekki miklar breytingar heldur segist ætla að halda áfram því góða starfi sem hefur verið unnið á undanförnum árum. Mikilvægt að endurskoðun stjórnarskrár fari ekki fram í ljósi ákveðins máls. </font /></b /> 4.8.2004 00:01
Hlaup í Jökulsá á Dal Hlaup kom í Jökulsá á Dal síðdegis í gær og um klukkan hálf sjö var brúnni við Fremri- Kárahnjúk lokað, enda var vatnsyfirborðið þá alveg að ná upp í brúargólfið og farið var að skola úr fyllingum við brúarendana. 4.8.2004 00:01
Drap einn og særði 5 í Noregi Víðtæk leit stendur enn yfir að manni sem stakk einn mann til bana og særði fimm í sporvagni í Osló í Noregi síðdegis í gær. Maðurinn sem lést var tuttugu og þriggja ára en meðal hinna særðu er tveir lífshættulega slasaðir, kona á fertugsaldri og rúmlega fimmtugur karlmaður. 4.8.2004 00:01
Banaslys við Krossanesbraut Karlmaður á fertugsaldri beið bana þegar stór grjótflutningabíll sem hann ók fór fram af háum vegkanti við Krossanesbraut og valt þegar hann hafnaði ofan í fjöru. Þetta var svonefnd búkolla og vann ökumaðurinn að því að breikka veginn. 4.8.2004 00:01
Bjargað úr brennandi tjaldi Vörður á tjaldstæðinu í Laugardal í Reykjavík bjargaði í nótt tveimur mönnum út úr brennandi tjaldi og sakaði þá ekki. Þeir höfðu sofnað út frá logandi kerti sem líklega hefur oltið um. 4.8.2004 00:01
Öryggisviðbúnaður aukinn Öryggisviðbúnaður hefur verið aukinn á ellefu flugvöllum og í tveimur höfnum til viðbótar í Bandaríkjunum. Tom Ridge, yfirmaður heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna, segir þetta gert í kjölfar rannsóknar á gögnum Al-Kaída. 4.8.2004 00:01
Slapp ótrúlega lítið meiddur Ökumaður á stórum malarflutningabíl slapp ótrúlega lítið meiddur eftir að hann ók út af brúnni yfir Laxá í Laxárdal í gær og bíllinn hafnaði á hvolfi í grýttum árfarveginum, meira en tíu metrum neðar. Ökumaðurinn var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Reykjavík. 4.8.2004 00:01
Fellibylur í Norður-Karólínu Fellibylurinn Alex olli flóði í Norður-Karólínu ríki Bandaríkjanna í gær. Hundruð heimila og bíla urðu vatninu að bráð og rafmagn fór af hjá þúsundum íbúa. Íbúar á svæðinu segja þetta versta veður sem hafi gengið yfir svæðið í þrjátíu ár. Vindhraði náði 160 kílómetra hraða á klukkustund. 4.8.2004 00:01
3 kíló af amfetamíni haldlögð Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík og Tollgæslan í Reykjavík hafa lagt hald á þrjú kíló af amfetamíni sem smyglað var til landsins með Dettifosi en andvirði þess gæti numið yfir 30 milljónum króna. 4.8.2004 00:01
Brennuvargur kveikti í bílum Kveikt var í þremur bílum vestur á Melum í Reykjavík í nótt og tilraun gerð til að kveikja í þeim fjórða. Kveikt var í fyrsta bílnum um klukkan tvö og hinum tveimur með klukkustundar millibili. Slökkviliðið var kallað á vettvang í öllum tilvikum og skemmdust bílarnir mikið. 4.8.2004 00:01
Fólkið enn þungt haldið Maður og kona liggja enn þungt haldin á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss eftir harðan árekstur jeppa og fólksbíls við Kotströnd á Suðurlandsvegi á mánudaginn. Þau eru ekki úr lífshættu og er báðum haldið sofandi og í öndunarvél. 4.8.2004 00:01
Ný stjórn í Tékklandi Forseti Tékklands, Vaclav Klaus, skipaði í morgun hina nýju ríkisstjórn landsins formlega í embætti undir forystu forsætisráðherrans, Stanislavs Gross, sem er aðeins 34 ára gamall og yngsti forsætisráðherra í Evrópu. Þrjátíu og níu dagar eru liðnir síðan fráfarandi forsætisráðherra Tékklands, Vladimir Spidla, sagði af sér. 4.8.2004 00:01
Átök í Mósúl í morgun Til harðra átaka kom í borginni Mósúl í Norður-Írak á milli uppreisnarmanna og íröksku lögreglunnar í morgun og hafa átökin nú staðið yfir í nokkra klukkutíma. Samkvæmt upplýsingum frá Reuters-fréttastofunni brutust út átök á fleiri en einum stað í borginni og mátti heyra í það minnsta sex háværar sprengingar. 4.8.2004 00:01
Útskrifaður eftir rannsókn Ökumaður malarflutningabílsins sem ók út af brúnni yfir Laxá í Laxárdal í gær var útskrifaður af slysadeild eftir rannsókn. Bíllinn hafnaði á hvolfi í grýttum árfarveginum, meira en tíu metrum neðar, en áður hafði bíllinn sópað sterku vegriði á brúnni niður á löngum kafla. 4.8.2004 00:01
Milljarða framkvæmdir í hættu? Óttast er að grjóthrun hafi stíflað hjárennslisgöng fram hjá virkjanaframkvæmdunum við Kárahnjúka þannig að milljarða framkvæmdir gætu verið í hættu. Göngin voru grafin inn í gljúfurvegginn ofan við vinnusvæðið við aðalstífluna og opnast svo neðan við vinnusvæðið. 4.8.2004 00:01
Gíslar látnir lausir Uppreisnarmenn hafa látið nokkra gísla lausa í Írak í morgun en þeir eru flestir bílstjórar eða vinna fyrir erlend fyrirtæki sem starfa fyrir Bandaríkjaher. Fyrirtækin hafa í flestum tilfellum lofað að draga starfsemi sína út úr Írak til að fá gíslana lausa. Á meðal þeirra sem látnir hafa verið lausir eru tveir Tyrkir. 4.8.2004 00:01
Aldrei meiri verðmunur Meðaltalsverðmunur á bensínlítranum í Reykjavík og Hafnarfirði er nú kominn upp í sjö krónur eftir að Orkan í Reykjavík hækkaði lítrann í 107,30 krónur í morgun. Munurinn hefur aldrei verið svona mikill á sjálfsafgreiðslustöðvunum, Hafnfirðingum í vil, en þar í bæ má enn fá bensínlítrann á u.þ.b. hundrað krónur. 4.8.2004 00:01
Starfsmenn Sþ heim frá Gaza Sameinuðu þjóðirnar ætla að draga næstum alla erlenda starfsmenn sína frá Gaza-svæðunum í Palestínu í kjölfar þess að Ísraelsher hefur fjölgað árásum sínum á svæðið. Tuttugu starfsmenn voru sendir heim í síðasta mánuði og enn fleiri verða sendir heim á næstu dögum. 4.8.2004 00:01
70 slasaðir í lestarslysi Sjötíu slösuðust, þar af nokkrir mjög alvarlega, í lestarslysi í Zimbabwe í morgun. Tvær farþegalestir skullu saman við aðallestarstöðina í höfuðborginni Harare. Talið er að um mannleg mistök hafi verið að ræða. 4.8.2004 00:01
Bakkus hrjáir 9% Bandaríkjamanna Um níu prósent Bandaríkjamanna glíma við áfengisvandamál og fimmtán prósent þeirra þjást af persónuleikatruflunum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rannsókn sem birtist í blaðinu <em>Journal of Clinical Psychiatry</em>. 4.8.2004 00:01
Dæmd fyrir að nauðga nemanda sínum Mary Kay Letounreau, kennari sem átti í ástarsambandi við tólf ára nemanda sinn, var látin laus úr fangelsi í Washington í Bandaríkjunum í morgun. Mary var dæmd í sjö ára fangelsi fyrir nauðgun en hefur nú afplánað dóminn. 4.8.2004 00:01
Flugskeyti með kjarnavopnum Í nýlegri skýrslu frá Bandaríkjunum er sagt líklegt að Norður-Kóreumenn hafi komist yfir flugskeytabúnað sem getur sent flugskeyti með kjarnavopnum alla leið til Bandaríkjanna. Tæknin virðist vera sambærileg þeirri sem finnst á rússneskum kafbátum sem bendir til þess að norðurkóresk stjórnvöld hafi fengið utanaðkomandi hjálp við þróun búnaðarins. 4.8.2004 00:01
Fyrir ofan meðalhita í 28 mánuði Meðalhitinn í Reykjavík hefur nú mælst fyrir ofan meðallag í 28 mánuði í röð samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofunni. Meðalhitinn í höfuðborginni í júlímánuði mældist 11,5 stig, sem er 0,9 stigum hærri en í meðalári. 4.8.2004 00:01
Réðst á leikskólabörn með hnífi Starfsmaður í leikskóla í Pekíng í Kína gekk af göflunum í vinnunni og réðst á fimmtán nemendur og þrjá kennara með eldhúshnífi í morgun. Eitt barn lést og tvö særðust illa. Starfsmaðurinn er í haldi lögreglu en hann er fimmtíu og eins árs gamall og var vörður við skólann. Ekki er vitað hvers vegna maðurinn framdi verknaðinn. 4.8.2004 00:01
Fleiri hækka afurðaverð nautakjöts Norðlenska og Borgarnes kjötvörur hafa nú bæst í hóp þeirra sláturleyfishafa sem hækkað hafa afurðaverð á nautgripakjöti til bænda að undanförnu að því er fram kemur á vefsíðu Landssambands kúabænda. Báðir sláturleyfishafarnir hafa jafnframt lækkað þyngdarmörk innan hins svokallaða UN 1 flokks. 4.8.2004 00:01
Bráðabirgðastífla hækkuð um 5 m Ákveðið hefur verið að hækka bráðabirgðastíflu við Kárahnjúka um fimm metra vegna stíflunar í hjárennslisgöngum fram hjá virkjanaframkvæmdunum á svæðinu. Göngin eiga að veita vatni fram hjá endanlegu stíflumannvirki á meðan það er í byggingu. 4.8.2004 00:01
Fuglaflensa í Suður-Afríku Landbúnaðaryfirvöld í Suður-Afríku gruna að fuglaflensufaraldur eigi sér nú stað í þremur fuglabúum þar sem strútar eru aldir í austurhluta landsins. Landbúnaðarráðherra héraðsins segir að sýni úr fuglabúunum þremur hafi a.m.k. til bráðabirgða verið greind sem afbrigði fuglaflensunnar sem herjað hefur í Asíu undanfarin misseri. 4.8.2004 00:01
Ráðherrar Norðurlandanna funda Forsætisráðherrar Norðurlandanna munu hittast á fundi í Sveinbjarnargerði við Eyjafjörð næstkomandi sunnudag, 8. ágúst, að því er segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Á fundinum verður fjallað um norræn málefni, Evrópumál og önnur alþjóðamál. 4.8.2004 00:01
Skuldsetja sig út áratuginn Útlit er fyrir að ólympíuleikarnir verði mun dýrari en grísk stjórnvöld stefndu að. Nú er svo komið að sérfræðingar eru farnir að lýsa áhyggjum af því að leikarnir íþyngi gríska ríkinu svo mjög að það kunni að taka gríska skattborgara tíu ár, hið minnsta, að borga reikninginn. 4.8.2004 00:01
Réðist á börn vopnaður hnífi Eitt barn lést og fimmtán slösuðust, þar af tvö alvarlega, þegar starfsmaður leikskóla réðst með hnífi að leikskólabörnum og kennurum þeirra. Þrír kennarar særðust í árásinni. 4.8.2004 00:01