Innlent

Fleiri hækka afurðaverð nautakjöts

Norðlenska og Borgarnes kjötvörur hafa nú bæst í hóp þeirra sláturleyfishafa sem hækkað hafa afurðaverð á nautgripakjöti til bænda að undanförnu að því er fram kemur á vefsíðu Landssambands kúabænda. Báðir sláturleyfishafarnir hafa jafnframt lækkað þyngdarmörk innan hins svokallaða UN 1 flokks. Flestir sláturleyfishafar hafa nú hækkað verð á nautgripakjöti til bænda og samkvæmt heimildum Landssambandsins eru fyrirhugaðar breytingar hjá þeim sem enn hafa ekki tilkynnt sambandinu um verðbreytingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×