Fleiri fréttir

Uppsetning vinnubúða hafin

<span class="frettatexti">Akrafell, skip Samskipa, kom til Reyðarfjarðar á mánudag með fyrsta hluta vöruflutninga sem félagið annast fyrir Fjarðaál vegna uppsetningar vinnubúða fyrir álversuppbygginguna eystra. </span>

Harðir bardagar í Mósúl

Í það minnsta 20 létust í hörðum bardaga í borginni Mósúl í Norður-Írak í morgun. Þetta eru mannskæðustu átök í Írak frá því að Írakar tóku aftur við völdum í landinu. Barist var á nokkrum stöðum í borginni, þar á meðal í miðbænum.

Nafn mannsins sem lést

Maðurinn sem lést þegar vörubifreið valt við Krossanes í gær hét Þorgeir Ingi Ingason, til heimilis að Mánahlíð 9 á Akureyri. Þorgeir Ingi var þrjátíu og sex ára, ókvæntur og barnlaus og bjó í foreldrahúsum. Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir.

Væntir samkomulags við tollinn

Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, telur ekki að vandkvæði ættu að vera fyrir sægarpinn Hafstein Jóhannsson, kafara frá Akranesi, að afhenda Byggðasafni Akraness seglskútuna Eldingu að gjöf. "Hafsteinn er mikill sægarpur sem gert hefur garðinn frægan," segir Gísli.og vísar meðal annars til siglingarafreka Hafsteins.

3 kíló af amfetamíni í Dettifossi

Þrjú kíló af amfetamíni fundust í Dettifossi, skipi Eimskipafélagsins. Sjaldan hefur verið lagt hald á jafn mikið af efninu. Söluverðmæti þess gæti numið á fjórða tug milljóna króna.

Vegið að mannlegri virðingu fólks

Vegið er að mannlegri virðingu og sjálfræði hælisleitenda með því að greiða þeim ekki vasapeninga, að mati Ragnars Aðalsteinssonar hæstaréttarlögmanns. Um síðustu áramót tók félagsþjónusta Reykjanesbæjar við umsjá fólks sem hér leitar pólitísks hælis og um leið var látið af greiðslum vasapeninga.

Kveikt í fjórum bílum

Kveikt var í fjórum bifreiðum í vesturbæ Reykjavíkur í fyrrinótt og tilraun var gerð til að kveikja í einni til viðbótar. Bílarnir fjórir eru stórskemmdir.

Eignaverð hefur hækkað um 20%

Eignaverð hérlendis hefur hækkað um tuttugu prósent að raunvirði á síðustu 12 mánuðum samkvæmt eignaverðsvísitölu KB banka. Í henni er vegið saman markaðsvirði þriggja helstu eignaflokka landsins, þ.e.a.s. fasteigna, hlutabréfa og skuldabréfa.

Hækka afurðaverð á nautakjöti

Norðlenska og Borgarnes kjötvörur hafa ákveðið að hækka afurðaverð á nautgripakjöti til bænda auk þess sem þyngdarmörk innan UN1 flokksins hafa verið lækkuð, sem þýðir að nautgripir fara yngri í slátrun en áður.

Heitasti júlí í sjö ár

Hiti hefur mælst yfir meðallagi í Reykjavík 28 mánuði í röð samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Í júlímánuði mældist meðalhiti 11,5 stig á celsíus sem er 0,9 gráðum meira en í meðalári.

Gyðingar flytjast til Ísraels

Tvö hundruð og fimmtíu bandarískir og kanadískir gyðingar lentu á flugvellinum í Tel Avív í morgun en hópurinn ætlar að setjast að í Ísrael. Sérstök stofnun í Ísrael vinnur að því að fá gyðinga víðs vegar um heiminn til að flytjast til Ísraels og fá þeir góða styrki til að koma sér upp heimili.

ESB brýtur alþjóðalög

Niðurgreiðslur Evrópusambandsins til sykurframleiðanda innan landamæra sambandsins standast ekki alþjóðleg verslunarlög. Þetta er niðurstaða úrskurðanefndar Alþjóða viðskiptastofnunarinnar.

Auglýst eftir hirðfífli

Opinber stofnun í Bretlandi, sem hefur varðveislu staða með menningarsögulegt gildi á sinni könnu, hefur auglýst eftir starfskrafti í stöðu hirðfífls ensku krúnunnar. Ekkert hirðfífl hefur verið starfandi í Bretlandi í rúmlega 350 ár.

Súdanir mótmæla ályktun SÞ

Rúmlega 100 þúsund manns komu saman á götum Khartúm, höfuðborgar Súdans, og mótmæltu ályktun Sameinuðu þjóðanna sem veitir súdönskum yfirvöldum mánaðarfrest til að stöðva ofsóknir vígasveita í Darfur-héraði. Mótmælin voru skipulögð af hinu opinbera.

90 ár frá fyrri heimsstyrjöldinni

Þess var minnst í Bretlandi í dag að 90 ár eru liðin frá upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar. Einungis tuttugu og þrír breskir hermenn sem börðust í stríðinu eru enn á lífi og fjórir voru nógu hraustir til að vera viðstaddir minningarathöfnina.

Fangar struku í Svíþjóð

Þrír menn struku úr fangelsi í grennd við Stokkhólm í Svíþjóð með aðstoð grímuklæddra manna sem báru skotvopn. Þetta er í annað skiptið á rúmri viku sem fangar strjúka úr sænsku fangelsi.

Brúnni yfir Jöklu lokað aftur

Búið er að loka brúnni yfir Jökulsá á Dal aftur vegna vatnavaxta og er ekki útilokað að vatnsyfirborðið nái hærra en í flóðinu í gær. Ákveðið hefur verið að hækka varnarstíflu um fimm metra í varúðarskyni. Önnur hjárennslisgöngin hafa ekki undan, væntanlega vegna stíflu.

Morðvopnið hjá líkinu í gjótunni

Lögregla fann í dag kúbein sem talið er að Hákon Eydal hafi notað til að myrða Sri Ramawati. Það lá í sömu gjótu og líkið af henni sem fannst í Hafnarfjarðarhrauni í gær. 

Vildi bjarga fólkinu

„Ég verð að bjarga fólkinu,“ flaug í gegnum huga Guðjóns Magnússonar vörubílstjóra áður en hann steyptist rúma tíu metra niður í stórgrýti. Guðjón, sem vinnur hjá Bergverki í Borgarnesi, var að flytja möl á stórum fjögurra öxla vörubíl þegar hann kom að einbreiðri brú yfir Laxá í Laxárdal.

Hélt ég myndi deyja

Guðjón Magnússon, 24 ára bifreiðastjóri frá Borgarnesi segist þakka æðri máttarvöldum að enginn hefði meiðst alvarlega þegar 28 tonna trukkur sem hann ók steyptist rúma 10 metra niður í stórgrýttan árfarveg Laxár á Dölum við Búðardal. Ástæðan var sú að jeppi var fyrir á einbreiðri brúnni.

Ráðist á lögfræðing

Viktor Stefán Pálsson, lögfræðingur og sviðsstjóri hjá Vestmannaeyjabæ tilkynnti líkamsárás til lögreglu um helgina. Samkvæmt heimildum DV átti árásin sér pólitískar rætur.

Ónákvæm kort Landmælinga Íslands

Dæmi eru um að ár renni upp í mót og heilu og hálfu fjöllin vanti á landakort af Íslandi frá Landmælingum Íslands. Forstjóri stofnunarinnar kennir fjárskorti um.

Mótmæla leðurfatnaði í Gay Pride

Íslenskur dýravinur, hommi, lesbía og Búkolla mótmæltu því á Austurvelli í dag að samkynhneigðir íklæddust leðri. Þau segja að á bak við hverja leðurskó, svipu eða leðurjakka liggi ólýsanleg þjáning dýra og að föt úr gervileðri eða gúmmíi séu jafn kynþokkafull og leðrið. 

Umdeild lög sett í Rússlandi

Rússneska þingið samþykkti í dag lög sem kveða á um að ýmis niðurgreiðsla á opinberri þjónustu verði felld niður. Lögin er hluti af umsvifamiklum umbótum á velferðakerfinu í Rússlandi.

Sri Chinmoy lyfti 308 kg manni

Hinn 73 ára gamli Shri Chinmoy lyfti rúmlega 300 kílógramma Bandaríkjamanni í síðustu viku. Tilgangurinn með því var að vekja fólk til meðvitundar um offituvandann.

Jarðgöng biluð

Vatnavextir í Jöklu sem ollu því að brú fór undir vatn eru ekki meiri en búast má við í venjulegu sumri. Mesta flæðið á síðustu dögum var 820 rúmmetrar á sekúndu en að sögn Ómars R. Valdimarssonar, talsmanns Impregilo, er alvanalegt að flæði fari upp í 900 rúmmetra á sekúndu yfir sumarið.

Vítamíndropar taldir valda ofnæmi

Grunur leikur á því, að notkun A- og D-vítamíndropa, sem innihéldu jarðhnetuolíu hafi hleypt af stað jarðhnetuofnæmi hjá ungabörnum hér á landi. Lyfjastofnun innkallaði þessa dropa í fyrra. Hópur foreldra þarf að hafa bráðasprautur við hendina, vegna þessa illvíga ofnæmis. </font /></b />

Rökin eingöngu pólitísk

Íslendingar eru meðal þeirra þjóða sem greiða mest til landbúnaðar. Helstu rök gegn því að hætta stuðningi við íslenskan landbúnað eru pólitísk og ástæðurnar huglægar, segir Gylfi Magnússon hagfræðingur. Formaður landbúnaðarnefndar vill halda stuðningi áfram. </font /></b />

Bráðasprautan alltaf við hendina

Tveggja ára snáði, Kjartan Sveinn Guðmundsson greindist með jarðhnetuofnæmi fyrir fáeinum vikum. Foreldrar hans hafa neyðarsprautuna alltaf við hendina. Þau þurfa ætíð að vera á vaktinni, ekki einungis varðandi það sem barnið lætur ofan í sig, heldur með hvað þau borða sjálf.</font /></b />

Endurmæling hnitakerfis hafin

Hafin er endurmæling á hnitakerfi landsins, svo kölluðu grunnstöðvaneti. Þetta umfangsmikla verkefni hófst við mælistöð nálægt Reykholti í Borgarfirði. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra var viðstödd og hóf fyrstu mælinguna ásamt mælingamönnum frá Landmælingum Íslands. Að því loknu hófu 19 mælingahópar mælingar á 34 mælistöðvum á Norðurlandi.

Banaslys við Krossanes

Banaslys varð á Akureyri síðdegis í dag þegar malarflutningabíll valt ofan í fjöru sunnan við Krossanes, skammt utan Akureyrar. Ökumaður á fertugsaldri lést. Tildrög slyssins eru ekki ljós. Unnið er að breikkun á vegi á þessum stað en stór vinnuvél, sem oft er kölluð búkolla, var að flytja jarðefni þegar hún lenti fram af vegi og valt ofan í fjöru.

Steyptist 27 metra í stórgrýti

Það liggur við að hægt sé að tala um kraftaverk að vörubílsstjóri skyldi komast lítið skaddaður úr slysi sem varð í Búðardal síðdegis í dag. Maðurinn var að flytja möl í vörubíl til Búðardals þegar hann kemur að einbreiðri brú yfir Laxá við Laxárdal.

Friðardúfur til Aþenu

Fimm friðardúfum, sem bera boðskap fimm trúarleiðtoga, var sleppt í Róm í dag. Þeim er ætlað að fljúga á Ólympíuleikana í Aþenu. Boðskapurinn sem dúfurnar flytja er frá Jóhannesi Páli páfa og æðstu trúarleiðtogum gyðinga og múslima.

Geimganga Padalka og Fincke

Bandarískur og rússneskur geimfari, fóru í dag í geimgöngu frá Alþjóðlegu geimstöðinni. Þeir bjuggu sig meðal annars undir að taka á móti nýrri tegund af birgðaflaugum, sem verið er að hanna í Evrópu.

Halda upp á hertöku Gíbraltar

Bretar halda uppá það í dag að 300 ár eru liðin frá því að þeir hertóku Gíbraltarklettinn. Spánverjum er ekki skemmt, en Bretar segja að þetta komi þeim ekki við. Hátíðin er haldin til þess að minnast þess að breski flotinn hertók Gíbraltar árið 1704.

Vitlaus verðlagagning papriku

Vegna mistaka í vörumerkingu hefur ein íslensk paprika kostað tæpar 300 krónur í verslunum Tíu ellefu um nokkurt skeið og það án þess að nokkur hafi gert athugasemd við það.

Lítil stemning á heimleið úr Eyjum

Nokkur hundruð strandaglópar framlengdu Þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum um sólarhring, þar sem þoka kom í veg fyrir flug. Verulega var dregið af ungum Þjóðhátíðargestum sem komu með Herjólfi í dag, eftir annasama skemmtanahelgi.

Jákvætt í garð lækna og lögreglu

Yfir 80 prósent þjóðarinnar eru jákvæð í garð lækna, lögreglu og kennara. Þingmennska virðist þó ekki vera til vinsælda fallin, því innan við þriðjungur þjóðarinnar er jákvæður gagnvart alþingismönnum. Þetta kemur fram í Þjóðarpúlsi Gallup þar sem fólk var spurt hvort það væri jákvætt eða neikvætt í garð nokkurra starfstétta.

Rekaldið hefur ekkert hreyfst

Lögregla er engu nær um það hvert líkið af Sri Ramawati hefur rekið eftir að Hákon Eydal varpaði því fyrir björg. Rekald, sem sett var út í gær til að kanna rekið, hefur ekkert hreyfst.

Ragnar í gæsluvarðhald

Taílensk yfirvöld framseldu um helgina Ragnar Sigurjónsson, fyrrverandi skreiðarútflytjanda, sem hvarf sporlaust í Lundúnum fyrir fimm árum. Í gær úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness Ragnar í gæsluvarðhald hér á landi til 23. ágúst.

Skotmaður á geðdeild

Maður sem skaut úr haglabyssu á tvö hús á Reykhólum í Barðastrandarsýslu hefur verið vistaður á geðdeild. Annar maður hefur játað að eiga 170 kannabisplöntur sem fundust í húsnæði í Reykjavík, þar sem byssumaðurinn hafði dvalið.

Þrír biðu bana á Gaza

Þrír Palestínumenn biðu bana í dag, þegar sprengja sem þeir hugðust granda ísraelskri jarðýtu með, sprakk í höndunum á þeim. Sprengingin varð í Rafha flóttamannabúðunum, á Gaza svæðinu, og dæmigerðar fyrir það sem gerist á nær hverjum degi, einhversstaðar á sjálfstjórnarsvæðum palestínumanna.

Kallið barst frá bíl í byggð

Neyðarkall sem barst í síðustu viku um að tuttugu manna hópur Frakka væri í nauðum staddur á hálendinu barst úr bíl í byggð á Suðurlandi. Gabb sem þetta er refsivert og biður lögreglan hvern sem getur veitt upplýsingar að hafa samband.

Nefndarkóngar eru ríkisleyndarmál

DV fær ekki aðgang að lista sem fjársýsla ríkisins gerði um nefndakónga ríkisins. Einn þeirra sem sat í sjö nefndum árin 2000 til 2002 fékk 9,5 milljónir króna. Nafn hans er ríkisleyndarmál.

Húsbílaklósett tæmd í leyfisleysi

"Við viljum að þessu sé fylgt eftir í lögreglusamþykkt þannig að öllum geti verið ljóst að kjósi menn að leggja húsbíl eða tjalda innan bæjarmarkana verði þeir að greiða gjald. Vilji þeir ekki gera það verði þeir að fara út fyrir bæjarmörkin.

Sjá næstu 50 fréttir