Erlent

Starfsmenn Sþ heim frá Gaza

Sameinuðu þjóðirnar ætla að draga næstum alla erlenda starfsmenn sína frá Gaza-svæðunum í Palestínu í kjölfar þess að Ísraelsher hefur fjölgað árásum sínum á svæðið. Tuttugu starfsmenn voru sendir heim í síðasta mánuði og enn fleiri verða sendir heim á næstu dögum. Að sögn flóttamannaráðs Sameinuðu þjóðanna verða einungis um níu útlendingar eftir á Gaza á vegum þess.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×