Fleiri fréttir

Leit hætt að ferðamönnum

Leit að tuttugu ferðamönnum, sem hófst upp úr hádegi á fimmtudag eftir að neyðarkall kom í gegnum samtal á rás Ferðafélags Íslands, hefur verið hætt í bili. Jónína S. Sigurðardóttir, hjá ríkislögreglustjóra, segir aðspurð þó ekki inn í myndinni að taka neyðarkallið sem gabb. Kallið sé tekið trúanlegt og unnið sé út frá því.

Staða Kerrys sterk

Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum snýst í auknum mæli um að ná fótfestu í fjórum til fimm ríkjum sem talin eu ráða úrslitum um niðurstöðu kosninganna.

Setti líkið í þyngdan poka

Hákon Eydal, sem hefur játað að hafa banað fyrrum sambýliskonu sinni og barnsmóður með þungu barefli á heimili sínu í Stórholti sunnudaginn fjórða júlí, er enn í einangrun. Hákon segist hafa komið líki Sri fyrir í stórum drapplituðum sænskum póstpoka úr næloni. Samkvæmt heimildum blaðsins þyngdi hann póstpokann áður en hann varpaði honum í sjóinn.

Barði Sri með þungu barefli

Hákon Eydal hefur játað að hafa banað barnsmóður sinni, Sri Rahmawati, sunnudaginn 4. júlí. Hann hefur setið þögull í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins barði hann Sri með þungu barefli. </font /></b />

Ráðherra hissa á Reykjavíkurhöfn

Ákvörðun forráðamanna Reykjavíkurhafnar um 184% hækkun vörugjalda á tiltekna flokka neysluvara kom samgönguráðherra í opna skjöldu. Hann kveðst vonast til að forráðamenn hafna í landinu gæti hófs í slíkum gjaldtökum. </font /></b />

Alda og þari torvelduðu leit

Umfangsmikil leit lögreglu og björgunarsveitarmanna að Sri Rahmawati stóð yfir langt fram á kvöld í gær. Frekari leit að Sri er ekki áætluð í dag. Um klukkan ellefu verður sett út rekald og því fylgt eftir næstu tólf klukkutímana á eftir. </font /></b />

Hreyfing á menntamálum geðsjúkra

Eftir þriggja mánaða óvissutíma lítur út fyrir að komin sé hreyfing á menntamál geðsjúkra. Vel á annað hundrað manns hafa sótt um nám á haustönn, en fjárveitingu hefur skort. Öllum kennurum var því sagt upp, en nemendur lifa í voninni. </font /></b />

Blóðbað í Baqouba

Ein mannskæðasta sprengjuárás frá innrás Bandaríkjamanna í Írak kostaði 51 óbreyttan borgara lífið í borginni Baqouba í gær. Hryðjuverkaógn vofir yfir fulltrúafundi um næstu helgi sem leggja á grunn að þjóðþingi Íraka. </font /></b />

Eitur í barnamat

Bandaríska alríkislögreglan fann eiturefnið rísín í tveimur krukkum af barnamat við rannsókn á dögunum. Frá þessu var greint á blaðamannafundi í gærkvöldi. Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna segir þó að ekki hafi verið um hreint rísín að ræða heldur hafi efnablandan verið náttúruleg, sömu gerðar og finnst í baunum sem barnamaturinn er unnin úr.

Hagnaður KB mun meiri en í fyrra

Hagnaður KB banka fyrstu sex mánuði ársins nam liðlega sex milljörðum króna eftir skatta, eða um 1000 milljónum króna á mánuði. Þetta er rúmlega hundrað prósent meiri hagnaður en á sama tímabili í fyrra og nam hagnaður á hvern hlut rúmlega 14 krónum á móti 7,5 krónum í fyrra.

Edwards lofar Kerry

John Edwards, varaforsetaefni Demókrata, sagði í ræðu á flokksþinginu í Boston í gær að John Kerry, forsetaefnið, væri klár í baráttuna gegn hryðjuverkum. Líkt og aðrir Demókratar talaði hann þó gegn stríðsrekstri George Bush, Bandaríkjaforseta, og sagði að herafli yrði aðallega notaður til að verja Bandaríkin.

Leit hætt en fylgst með rekaldi

Umfangsmikilli leit 130 björgunarsveitarmanna að líkinu af Sri Ramawati á landi og sjó, lauk í gærkvöldi án áranagurs en fyrr um kvöldið köfuðu kafarar lögreglunnar. Fyrrverandi sambýlismaður hennar játaði í gær að hafa ráðið henni bana á heimili sínu, en í fyrradag vísaði hann á staðinn á Kjarnesi, þar sem hann varpaði líki hennar í sjóinn.

Tveir handteknir á Selfossi

Lögreglan á Selfossi handtók tvo menn í nótt eftir að þeir höfðu brotist inn á tannlækastofu í bænum og voru þar á útleið með tölvu og talsvert af lyfjum. Fyrr um daginn höfðu mennirnir verið reknir úr Byrginu á Efri Brú vegna umgengniserfiðleika.

Sameining tekur gildi 1. ágúst

Sameining sveitarfélaganna Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupsstaðar tekur gildi 1. ágúst. Félagsmálaráðuneytið staðfesti þann 20. júlí sl. sameiningu þeirra en íbúar beggja sveitarfélaganna samþykktu sameininguna í atkvæðagreiðslu sem fram fór samhliða forsetakosningum 26. júní sl.

Fordæma árásina í Baquba

Bandaríkjamenn fordæma sjálfsmorðssprengjuárásina í Baquba í Írak í gær. Talsmaður Hvíta hússins sagði í gærkvöldi að árásin myndi ekki draga úr áætlunum Bandaríkjamanna um uppbyggingu landsins.

Dómurinn mildaður um 36 ár

Stríðsglæpadómstóllinn í Hague mildaði í dag einn harðasta dóm sem hann hefur kveðið upp um 36 ár. Fyrrverandi hershöfðingi í her Króata í Bosníu, Tihomir Blaskic, var dæmdur árið 2000 fyrir stríðsglæpi og þjóðarhreinsanir í Bosníu árið 1993.

Gíslatökum linnir ekki

Hryðjuverkahópur Abu-Musab al-Zarqawi linnir ekki látum og heldur áfram gíslatökum og hótunum. Nýjasti gíslinn er vörubílstjóri frá Sómalíu, sem rænt var í morgun, þegar hann var við vinnu sína hjá fyrirtæki frá Kuwait, sem starfar í Írak.

Aukin löggæsla um helgina

Aukin löggæsla verður um verslunarmannahelgina en þá mun ríkislögreglustjóri aðstoða lögreglustjóra landsins. Lögreglustjórar bera ábyrgð á að halda úti löggæslu, hver í sínu umdæmi. Í því felst m.a. almenn löggæsla, eftirlit með fíkniefnum og umferðarlöggæsla. Þá verður fjölmennt lögreglulið í tengslum við útisamkomur.

Allt að 270 % verðmunur

Allt að 270 prósenta verðmunur reyndist á sömu vörutegundinni á milli verslana, í verðkönnun, sem Fréttablaðið gerði á höfuðborgarsvæðinu í gær, en 46 prósenta munur var á heilli matarkörfu með fimmtán vörutegundum í.

Tuttugu Frakkar týndir á hálendinu

Flugbjörgunarsveitin á Hellu er í viðbragðstöðu eftir að hjálparbeiðni barst frá hópi Frakka, væntanlega um 20 manns. Hópurinn kallaði í talstöð á rás sem Ferðafélag Íslands notar og heyrði einn af starfsmönnum félagsins hjálparbeiðnina. Þegar starfsmaðurinn kallaði til baka og bað um staðsetningu komu engin svör.

Umferð hleypt á Reykjanesbraut

Umferð verður hleypt á tvöfalda Reykjanesbraut í dag, um tólf kílómetra langan kafla. Slysum mun fækka til muna og ferðatíminn styttast, segir Vegagerðin.

Fullkomin peningafölsun

Falsaðir danskir hundrað krónu seðlar eru nú í umferð í Kaupmannahöfn og er óttast að þeir séu prentaðir ásamt Pundum, Dollurum og Evrum, í fullkominni prentsmiðju einhvers staðar í Austur- Evrópu.

Lítið vantar uppá á hótel Búðum

Hótelstjórinn á Búðum segir óeðlilegt að gistiheimili fái rekstrarleyfi séu brunavarnir ófullnægjandi. Síðasta vetur voru settar upp eldvarnahurðir á hótelinu en eftir er að setja upp handrið á þaki þess.

Kerry heldur ræðu sína í dag

John Kerry tekur í dag formlega við útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata á flokksþingi þeirra í Boston. Hann segir ræðuna sem hann heldur í tilefni dagsins vera þá mikilvægustu á ferli sínum.

Karlmenn segja NEI

Karlmenn verða að standa saman allir sem einn í að koma í veg fyrir nauðganir, segir karlahópur Femínistafélagsins, sem stendur fyrir átaki um verslunarmannahelgina gegn nauðgunum.

FÍB með viðbúnað um helgina

Líkt og undanfarna ríflega hálfa öld verður FÍB með mikinn viðbúnað á þjóðvegum landsins um verslunarmannahelgina í ár í því skyni að veita neyðarþjónustu. Hátt á annan tug þjónustufarartækja félagsins verða á vegum landsins

Sjúkum slakað aftan úr skútu

Áhöfn á stórri franskri seglskútu dó ekki ráðalaus þegar þyrla Landhelgisgæslunnar kom til að sækja slasaðan bátsverja í nótt, heldur lét hinn slasaða í gúmmíbát og slakaði svo bátnum langt aftur úr skútunni, svo engin hætta stafaði af möstrum skútunnar.

Frestað að setja út rekald

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur frestað því vegna veðurs, að setja út rekald við Presthúsatanga á Kjalarnesi til að kanna hvert líkið af Sri Ramawati hefur hugsanlega rekið.

Rauði kross Íslands í Darfur

Þrír reyndir sendifulltrúar Rauða kross Íslands eru að störfum á neyðarsvæðunum í Darfur í Súdan. Rauði kross Íslands hefur auk þess veitt nær tíu milljónir króna til hjálparstarfsins þar. Ennfremur starfar Alþjóða Rauði krossinn að því að vernda óbreytta borgara gegn brotum á alþjóðlegum mannúðarlögum, sameina fólk sem orðið hefur viðskila og tryggja réttindi fanga.

Hóta blóðbaði í Evrópu

Samtök sem sögð eru tengjast Al-Qaida hafa hótað að standa fyrir blóðbaði í Evrópu á næstunni. Í yfirlýsingu samtakanna, sem birtist á Netinu í dag eru Evrópuríki fordæmd fyrir að hafa ekki dregið herlið sín heim frá Írak og Afghanistan.

Slæmt útlit fyrir flug til Eyja

Þoka, hvassviðri og rigning eru nú í Vestmannaeyjum, en von er á fjölda þjóðhátíðargesta þangað í dag og svonefnt húkkaraball verður í kvöld. Þrátt fyrir veðrið er Herjólfur að leggja af stað frá Þorlákshöfn með 500 manns, eða fullt skip, en slæmt útlit er fyrir flug til Eyja í dag.

Fólki undir 18 ára vísað frá

Ungmennum undir 18 ára aldri verður ekki hleypt inn á tjaldsvæði Akureyrarbæjar nema í fylgd með forráðamanni um verslunarmannahelgina. Á Akureyri verður haldin fjölskylduhátíðin "Ein með öllu". Fólki undir 18 ára verður vísað frá

Aðstæður til leitar slæmar

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Rangárvallasýslu eru komnar til leitar á sunnanverðu hálendinu, í nágrenni við Laugaveginn svo kallaðan, leiðina á milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Þá er TF-SIF þyrla Landhelgisgæslunnar kominn á svæðið

Fá áfram að selja olíu

Rússneski olíurisinn Yukos fær áfram að framleiða og selja olíu þrátt fyrir fyrri kröfur dómsvalda um að öll sala á afurðum fyrirtækisins yrði stöðvuð. Dómsmálaráðuneytið rússneska sagði bannið ekki ætlað að stöðva olíuframleiðslu Yukos.

Flutti líkið í póstpoka

Hákon Eydal flutti líkið af fyrrverandi sambýliskonu sinni, Sri Rhamawati, í póstpoka úr næloni, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Þar er sagt að atvikið tengist ekki fíkniefnanotkun og að ástæðan hefði verið bæði langvarandi og skyndileg. Í tilkynningu lögreglunnar eru málavextir reifaðir í stórum dráttum.

Hakakrossar í kirkjugarði

Skemmdarvargar máluðu hakakrossa og tákn djöfladýrkenda á 32 leiði í kirkjugarði franskra gyðinga í gær. Maður sem færði blóm að leiði ættingja síns í kirkjugarðinum gerði lögreglu viðvart. Svo virðist sem skemmdarvargarnir hafi takmarkaða þekkingu á þeim málstað sem þeir predika, enda voru sumir hakakrossanna öfugir og líktust því fremur gamla einkennismerki Eimskipa en tákni um nasisma.

Ráðstefnu frestað í Írak

Ráðstefnu sem halda átti í Írak á laugardaginn hefur verið frestað til 15. ágúst að beiðni Sameinuðu þjóðanna. Forsvarsmenn ráðstefnunnar neita því að hryðjuverkin í gær hafi orðið þess valdandi að ákveðið var að fresta henni.

Fáar nauðganir verða að dómsmálum

Hvorug tilkynningin um nauðgun um síðustu verslunarmannahelgi hefur enn leitt til ákæru. Þó náðust ljósmyndir af öðru tilvikinu. Tilkynntar nauðganir um verslunarmannahelgina 2001 voru 21 en fáar ef nokkur enduðu með dómsmeðferð.

Edwards ber Kerry lofi

John Kerry tekur í dag formlega við útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata á flokksþingi þeirra í Boston. Ræðan sem hann heldur í kvöld er líklega sú mikilvægasta á ferli hans.

Engin ákvörðun enn tekin

Borgarfulltrúar Reykjavíkurlistans fullyrða að ákvörðun um að rífa ekki Austurbæjarbíó hafi verið tekin fyrir rúmum mánuði. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður skipulagsnefndar, þverneitar því og segir enga ákvörðun hafa verið tekna. Hún var ósátt við þá ákvörðun forseta borgarstjórnar að nánast lýsa því yfir í fjölmiðlum í vikunni að Austurbæjarbíó yrði ekki rifið.

Allsherjarleit að 20 ferðamönnum

Búið er að bæta við björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Vestur-Skaftarfellssýslu við leitina að hópi ferðamanna sem leitað hefur verið að frá því um miðjan dag. Þá hafa björgunarsveitir frá Rangárvallasýslu verið við leit frá kl.15 í dag.

Samningur um lækkun lyfjaverðs

Heilbrigðisráðherra hefur gert samning við fulltrúa lyfjaframleiðenda innan Félags stórkaupmanna um að lækka lyfjaverð til samræmis við verð annars staðar á Norðurlöndum. Stefnt er að því að lyfjaverð hér á landi verði sambærilegt við meðalverð á Norðurlöndunum innan tveggja ára.

Fyrsta hraðbraut Íslands

Tvíbreið Reykjanesbraut frá mörkum Hafnarfjarðar og nánast inn að Vogum á Vatnsleysuströnd var opnuð fyrir umferð í gær. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, hleypti umferð á nýja vegarkaflann sem er 12,1 kílómetra langur.

GSM-kerfi Símans eykur öryggi

GSM-sendar Símans hafa gjörbylt starfsaðferðum Neyðarlínunnar 112. Síðustu tvö árin hafa sendarnir meðal annars verið nýttir til að staðsetja vettvang slysa. Það hefur komið í veg fyrir að björgunarsveitir séu sendar í leiðangra á fölskum forsendum. Ísland er fyrst ríkja til að nýta þessa tækni.

Ekki sett út rekald á morgun

Ekki verður sett út rekald á morgun í Hofsvík á Kjalarnesi vegna leitarinnar að Sri Rhamawati. Í tilkynningu frá slysavarnarfélaginu Landsbjörgu segir að ákveðið hafi verið að fresta því fram á sunnudag eða mánudag en þá verði sjávarföll svipuð og þegar líki Sri var varpað í sjó fram. Þá geri veðurspá einnig ráð fyrir betra veðri á þeim tíma.

Sjá næstu 50 fréttir