Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Búlgarskir hælisleitendur Búlgörsk hjón með tvö börn komu með Norrænu í gær og sóttu um hæli á Íslandi. Hjónin gáfu sig fram við lögreglu um hádegisbil og var skýrsla tekin af þeim í kjölfarið. 29.7.2004 00:01
SÞ ályktar um Súdan Vígamenn hlekkja óbreytta borgara saman og kveikja í þeim í Darfur héraði í Súdan, en það eru engar blikur á lofti sem benda til þess að ógnaröldin sé á undanhaldi. 29.7.2004 00:01
Dómstóll kannar stríðsglæpi Alþjóðasakadómstóllinn í Haag hefur hafið rannsókn á meintum voðaverkum í norðurhluta Úganda, þar sem ríkistjórnin hefur barist við uppreisnarmenn í átján ár. Þetta er önnur formleg rannsókn Alþjóðasakadómstólsins, en í næsta mánuði hefst rannsókn á meintum stríðsglæpum í Kongó. 29.7.2004 00:01
Páfagarður kannar barnaklám Vatíkanið hefur meinað austurískum biskup að tjá sig opinberlega um barnaklámsmál sem kom upp í kaþólskum prestaskóla í umdæmi hans fyrir skemmstu. 29.7.2004 00:01
Aldrei í stríð af hentisemi John Kerry tók við útnefningu demókrata í gær sem frambjóðandi þeirra í forsetakosningunum í nóvember næstkomandi. 29.7.2004 00:01
Handtekin fyrir súkkilaðiát Kona var handtekin af lögreglu og haldið í gæslu í þrjár klukkustundir fyrir að borða súkkulaðistöng á neðanjarðarlestarstöð í Washington þar sem neysla matvæla er bönnuð. 29.7.2004 00:01
Sauma þurfti 56 spor í hálsinn Ásgeir Elíasson leigubílstjóri slapp ótrúlega vel eftir að einn manna sem hann ók skar hann á háls þegar kom að greiðslu fargjaldsins. Skurðurinn á hálsi Ásgeirs er sextán sentímetra langur og sauma þurfti 56 spor. </font /></b /> 28.7.2004 00:01
Hákon kom líkinu í sjó Hákon Eydal hefur viðurkennt fyrir lögreglu að hafa komið líkinu af Sri Rahmawati, fyrrum eiginkonu sinni, í sjó. Hann hefur þó ekki viðurkennt að hafa orðið Sri að bana en vísbending hans er fyrsta staðfesting þess að hún sé látin. 28.7.2004 00:01
Þjóðverjar latastir Slóvenar eru uppteknastir Evrópubúa meðan Þjóðverjar og Norðmenn eru meðal þeirra sem mest slæpast samkvæmt nýrri könnun á frítíma Evrópubúa. 28.7.2004 00:01
Tvær bílveltur Þrír menn sluppu lítið meiddir þegar bíll þeirra valt út af veginum í Vatnsskarði austur á Héraði í gær. Þeir voru fluttir á Heilsugæslustöðina á Egilsstöðum, þar sem gert var að sárum þeirra. 28.7.2004 00:01
Hélt barni og móður föngnum Saksóknari í máli Michaels Jacksons heldur því fram að poppstjarnarn hafi haldið barni og móður þess föngnum á Neverlandi búgarði sínum, og neytt þau til að taka upp myndband til að kveða niður ásakanir um kynferðislega áreitni Jacksons gagnvart ungum drengjum. 28.7.2004 00:01
Mannskæðasta árás í mánuð Yfir fimmtíu manns létust og að minnsta kosti 70 særðust þegar öflug bílsprengja sprakk í Baqouba í Írak í morgun. Þetta er mannskæðasta sprengjuárás í Írak síðan þeir tóku aftur við völdum fyrir nákvæmlega mánuði. 28.7.2004 00:01
Þorskkvótinn búinn Búið er að veiða allan þorskkvóta á þessu fiskveiðiári, eða 209 þúsund tonn, þótt mánuður sé í nýtt fiskveiðiár. Þetta er samkvæmt tölum Fiskistofu, en eitthvað er hægt að halda veiðum áfram með því að flytja kvóta á milli fiskveiðiára. 28.7.2004 00:01
Öryggisvörður skaut þrjá Öryggisvörður í sendiráði Chile, á eyjunni Costa Rica, skaut þrjá manns til bana í gær og tók eigið líf í framhaldi. Síðdegis í gær tók hann tíu manns í gíslingu, embættismenn og aðra starfsmenn sendiráðsins. 28.7.2004 00:01
Há sjálfsmorðstíðni hermanna Sjálfsmorðstíðni meðal rússneskra hermanna hefur aukist verulega á þessu ári að sögn rússneska hersins. Fyrstu sex mánuði ársins frömdu 109 rússneskir hermenn sjálfsmorð, sem er 38% aukning frá síðasta ári. 28.7.2004 00:01
Hringja beint gegnum tölvuna Nú geta tölvueigendur hringt beint í heimilissíma og farsíma úr tölvunni ef þeir útvega sér nýtt forrit. 28.7.2004 00:01
Skýrslutökur halda áfram Jón Gerald Sullenberger mætti til frekari skýrslutöku hjá Ríkislögreglustjóra klukkan hálf tólf í dag en hann var í rúmar sex klukkustundir að gefa skýrslu þar í gær um viðskipti sín við Baug. 28.7.2004 00:01
Greiddu ekki lausnargjald Egyptar hafa neitað fréttum þess efnis að stjórn landsins hafi greitt hryðjuverkamönnum tugi milljóna í lausnargjald fyrir háttsettan erindreka Egypta í Írak, sem skæruliðar tóku í gíslingu fyrir tæpri viku. 28.7.2004 00:01
5000 manns til Eyja Um 5000 manns stefna á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Að minnsta kosti 16 skipulagðar hátíðir verða haldnar víða um land. Allt stefnir í farþegamet hjá ferjunni Herjólfi um verslunarmannahelgina en þrjár auka næturferðir verða farnar fyrir og eftir helgi. 28.7.2004 00:01
Enn haldið sofandi í öndunarvél Ástand mannsins sem slasaðist í bílveltu við Vatnsskarðsnámur á veginum til Krýsuvíkur á laugardagskvöld, er enn mjög alvarlegt. Honum er haldið sofandi í öndunarvél. Hann kastaðist úr bílnum og lenti undir honum. Maðurinn er erlendur ríkisborgari en hefur verið búsettur hér á landi um skeið vegna starfs síns. 28.7.2004 00:01
Kerry ausinn lofi á flokksþingi John Kerry mun leiða baráttuna gegn hryðjuverkum betur en George Bush, endurvekja von hjá fólkinu í landinu og stuðla að jafnrétti. Þetta segir hver ræðumaðurinn á fætur öðrum á flokksþingi Demókrata, sem nú stendur sem yfir í Boston. 28.7.2004 00:01
Alka Selzer á íslenskan markað Verkjalyfið fræga Alka Selzer, sem ferðamenn hafa borið með sér að utan í áraugi, fæst nú í fyrsta sinn í apótekum hér á landi en yfir 60 ár eru síðan lyfið kom fyrst á markað. Samkvæmt upplýsingum frá lyfjastofnun hafði enginn sóst eftir því að markaðssetja lyfið hér á landi fyrr en nú, og fékk PharmaNor hf, markaðsleyfi fyrir lyfinu fyrr á árinu. 28.7.2004 00:01
Enn leitað að Sri Kafarar lögreglunnar og björgunarsveitarmenn munu í dag halda áfram leit að líkinu af Sri Ramawati, konunni sem saknað hefur verið í tæpan mánuð, eftir að fyrrverandi sambýlismaður hennar játaði í gær að hafa kastað líkinu í sjóinn við Prestshúsatanga á Kjalarnesi. 28.7.2004 00:01
Aukin hætta á innbrotum um helgina Lögreglan í Reykjavík sendi út tilkynningu í dag þar sem hún biður fólk að ganga vel frá eigum sínum fyrir verslunarmannahelgina. Hún bendir á að hægt sé að sækja upplýsingar um innbrotavarnir á vefsíðu embættisins <a href="http://www.lr.is/">www.lr.is</a>. 28.7.2004 00:01
Eldur í Arnborgu Eldur kom upp í stýrisvélarrúmi togarans Arnarborgu í Hafnarfjarðarhöfn um klukkan níu í morgun, en engan sakaði. Verið var að búa togarann, sem skráður er í Lettlandi, til veiða og höfðu viðgerðarmenn verið að logsjóða í stýrisvélarrúminu, en fóru svo í kaffi. 28.7.2004 00:01
Tekinn á tvöföldum hámarkshraða Lögreglan stöðvaði í morgun ökumann, eftir að hann mældist á 183 kílómetra hraða á þjóðveginum í Kollafirði. Hann var sviftur ökuréttindum á staðnum enda var hann á liðlega tvöföldum hámarkshraða. Auk ökuleyfissviftingar á hann háa sekt yfir höfði sér. 28.7.2004 00:01
Tvöföld Reykjanesbraut opnuð Nýr kafli tvöfaldrar Reykjanesbrautar við Strandarheiði opnaður fyrir umferð á morgun. Samgönguráðherra mun opna kaflann í athöfn við vesturenda framkvæmdarinnar sem er um 3 km. austan afleggjara að Vogum. Þetta er fyrsti áfangi breikkunar Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar. Brautin sem tekin verður í gagnið nú er 12,1 km. 28.7.2004 00:01
Sex farast í sprengingu í Kabúl Sex manns fórust í sprengingu sem varð í mosku í Kabúl í Afganistan í dag. Tveir þeirra voru starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, sem unnu að undirbúningi kosninga í landinu, en öfgafullir múslimar eru andvígir kosningunum. Ekki er þó fullyrt að þeir beri ábyrgð á tilræðinu. 28.7.2004 00:01
Skipað að hætta sölu á olíu Rússnesk yfirvöld hafa skipað olíurisanum Yukos að stöðva sölu á olíu. Yukos selur að meðaltali um 1,7 milljónir tunna á dag sem er 20 prósent af heildarolíuframleiðslu Rússlands. Ef af verður er líklegt er að þetta muni flýta fyrir hruni fyrirtækisins sem láðist að borga skatta upp á marga milljarða dollara. 28.7.2004 00:01
Læknar án landamæra frá Afganistan Samtökin, Læknar án landamæra, hafa ákveðið að hverfa frá Afganistan eftir 24 ára veru þar. Ástæður eru slæm öryggisskilyrði fyrir starfsmenn samtakanna en fimm voru drepnir í byrjun júní og hætta er á fleiri árásum. 28.7.2004 00:01
Bilun í leiguvél Sumarferða Leiguvél ferðaskrifstofunnar Sumarferða, sem þurfti að lenda í Barselóna í morgun vegna bilunar, er aftur komin í loftið áleiðis til Íslands og er væntanleg til Keflavíkur klukkan hálf sjö. 28.7.2004 00:01
Tala látinna komin í 68 Tala látinna, eftir bílsprenginguna í Baquba í Írak í morgun hækkar enn og er komin í 68. Þetta er því orðið lang mannskæðasta tilræði skæruliða í landinu til þessa. Bíllinn sprakk í loft upp fyrir utan lögreglustöð við fjölfarna götu í borginni á háannatímanum í morgun. 28.7.2004 00:01
Hakkarar meiri ógnvaldar en mafían Rússneskir tölvuhakkarar eru að verða mun meiri ógnvaldar en rússneska mafían, sem þó er illræmd víða um heim. Að sögn yfirmanns í rússnesku lögreglunni, sem gerði Pútín forseti grein fyrir þessu. 28.7.2004 00:01
Skógareldar í Portúgal Miklir skógareldar hafa brotist út víða í Portúgal. Yfir 400 slökkviliðsmenn berjast nú við eldinn til að koma í veg fyrir að hann nái að valda jafn miklu tjóni og í fyrra þegar minnst 18 manns fórust. 28.7.2004 00:01
Margir nýta netþjónustu Rúmlega 16 þúsund framteljendur höfðu skoðað álagningaseðla sína á netinu klukkan hálf þrjú í dag, samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra. Álagningaseðlar verða sendir heim til skattborgenda á föstudag. 28.7.2004 00:01
Árásir í vesturhluta Íraks Skæruliðar gerðu árás á nokkrum stöðum á vesturhluta Íraks í dag með þeim afleiðingum að tveir erlendir hermenn létust og tvær flugvélar voru þvingaðar til nauðlendingar. Ekki er ljóst hvers lenskir hermennirnir voru en flestir hermenn á svæðinu eru bandarískir. 28.7.2004 00:01
Lífshættuleg snuð bönnuð Löggildingarstofa hefur lagt bann við sölu á blikkandi snuðum, sem áttu að verða einskonar tískuleikföng á útihátíðum helgarinnar. Snuðið sakleysislega er ætlað stálpuðum krökkum og unglingum en alsjáandi umhyggjusamir verndarar fólksins á Evrópska efnahagssvæðinu telja snuðið hinsvegar geta verið háskalegt og jafnvel lífshættulegt. 28.7.2004 00:01
Sendiráð opnuð á ný í Írak Sádi-Arabía hefur ákveðið að opna aftur sendiráð í Írak, segir forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi. Sendiráðum Sádi-Arabíu var lokað árið 1991 í Persaflóastríðinu en bandaríski heraflinn var staðsettur í Sádi-Arabíu á meðan á stríðinu stóð. 28.7.2004 00:01
Reagan talaði hjá demókrötum Ræða Ron Reagans á flokksþingi demókrata í fyrradag hefur vakið mikla athygli. Ron er sonur Ronalds Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sem er afar dáður af repúblikönum vestra. 28.7.2004 00:01
Reykjavíkurhöfn hækkar vörugjöld Reykjavíkurhöfn hækkaði vörugjöld á áfengi og ýmsar aðrar vörur um síðustu mánaðamót í því skyni að ná aftur tekjum sem ríkið hafði fellt niður. Ranglega var fullyrt í fréttum í gær að fjármálaráðuneytið bæri ábyrgð á verulegri hækkun vörugjalda sem er meðal annars til þess fallin að halda verði á áfengi háu í landinu. 28.7.2004 00:01
Fæstar kærur enda með dómi Af sjö til tíu kærum sem berast lögreglu á ári hverju vegna áfengisauglýsinga enda fæst mál með dómi. Fyrir þremur árum lagði vinnuhópur Ríkislögreglustjóra til endurskoðun laga, þar sem ekki væri hægt að beita þeim gegn áfengisauglýsingum. Lögin hafa ekkert breyst. 28.7.2004 00:01
Ung landnámskona hlaðin skarti Eigandi skartgripanna sem fundust norður af Vestdalsheiði fyrir viku hefur líklega verið ung kona, sem uppi var á fyrri hluta tíundu aldar. Þetta er mat fornleifafræðinga sem í gær fundu fleiri skartgripi og mannabein á vettvangi. 28.7.2004 00:01
1700 vinna að niðurlögum eldanna Grikkir, Spánverjar og Ítalir hafa sent flugvélar til Portúgals til þess að hjálpa til við að slökkva skógarelda sem geisað hafa í landinu undanfarna daga. Þó að fleiri eldar hafi komið upp í ár en í fyrra hefur tjón vegna þeirra verið mun minna. 28.7.2004 00:01
Tilkynningum um nauðganir fækkar Síðustu tvö ár hefur tilkynningum um nauðganir um verslunarmannahelgina fækkað. V-dagssamtökin, sem berjast gegn nauðgunum, segja tilætlaðan árangur ekki nást fyrr en nauðganir hafi verið stöðvaðar algjörlega um þessa helgi og hætt verði að líta á þær sem eðlilegan fylgifisk útihátíða. 28.7.2004 00:01
Úttekt á íbúð ekki enn lokið Úttekt á íbúð þroskahefts manns í Breiðholti, sem hafði verið lofað fyrir þremur mánuðum, er ekki enn lokið. Maðurinn hefur búið í ósamþykktum bílskúr í tvö ár. 28.7.2004 00:01