Fleiri fréttir

Forseti Austurríkis látinn

Thomas Klestil, forseti Austurríkis, lést í gærkvöldi, sjötíu og eins árs að aldri. Hann fékk tvö öflug hjartaáföll fyrr í vikunni og var fluttur á sjúkrahús.

SUF vill fara aðrar leiðir

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna vill fara allt aðrar leiðir varðandi fjölmiðlafrumvarpið en forysta flokksins stefnir að og vill bíða með að að lögfesta fjölmiðlalög á ný. Þetta kemur fram í ályktun SUF sem samþykkt var í gærkvöldi.

Fimm látnir á Srí Lanka

Að minnsta kosti fimm manns létu lífið og um tugur særðist í sjálfsmorðsárás uppreisnarmanna í Kólombó á Srí Lanka í morgun. Hjördís Finnbogadóttir, talsmaður norrænu friðargæslunnar á Srí Lanka, segir spennu og ótta hafa aukist í landinu að undanförnu. </font />

Flugskeytaárás á Gaza

Fjöldi manna særðist í flugskeytaárás Ísraelsmanna á Gaza-svæðinu í morgun. Ísraelsk herþyrla skaut nokkrum flugskeytum á bifreiðar í Zeitoun hverfinu sem Ísraelsmenn telja bækistöðvar herskárra Palestínumanna. Ekki er vitað hvort einhver hafi látið lífið í árásinni.

Nýja frumvarpið þinglegt

<span class="frettatexti">Halldór Blöndal, forseti Alþingis, úrskurðaði í upphafi þingfundar í morgun að nýtt stjórnarfrumvarp um eignarhald á fjölmiðlum væri þinglegt. Var úrskurðurinn kveðinn upp samkvæmt beiðni formanna þingflokka stjórnarandstöðunnar. </span>

Allt að 10 daga gæsluvarðhald

Krafist verður allt að tíu daga gæsluvarðhalds nú í hádeginu yfir rúmlega fertugum manni sem grunaður er um aðild að hvarfi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður. Konan, sem er um þrítugt, hefur ekki sést síðan aðfararnótt sunnudags. 

Ný öryggislög í Írak

Ríkisstjórn Íraks birti í morgun ný öryggislög til að berjast gegn herskáum uppreisnarmönnum í landinu. Á sama tíma og ráðherra kynnti áætlunina héldu bardagar áfram á götum Bagdad.

Fimm slösuðust í Pamplóna

Fimm voru fluttir slasaðir á sjúkrahús eftir hið árlega nautahlaup í Pamplóna á Spáni í morgun. Þúsundir manna hlupu í dauðans ofboði á undan fimm nautum sem vega hvert um sig hálft tonn og hafa banvæn horn á höfði.

Lóðakaup Sparisjóðs Hafnarfjarðar

Engu er líkara en að Hafnfirðingar séu að hefja mikla landvinninga í Reykjavík því borgarráð samþykkti í gær að selja Sparisjóði Hafnarfjarðar lóðir undir 61 íbúð í öðrum áfanga Norðlingaholts.

Fjörugar umræður í þinginu

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, kvað upp þann úrskurð við upphaf þingfundar í morgun að fjölmiðlafrumvarpið nýja væri tækt til umræðu í þinginu. Hann úrskurðaði að beiðni stjórnarandstöðunnar sem vildi vita hvort málið væri þinglegt. Eftir að forseti kvað upp úrskurðinn sköpuðust fjörugar umræður í þinginu um fundarstjórn forseta.

Laxi í Elliðaánum verði sleppt

Mælst er til þess í nýrri skýrslu um Elliðaárnar að veiðimenn hlífi laxinum í sumar og sleppi sem flestum. Seiðauppeldi efst í ánum verður rannsakað og eflt.

Stendur við fyrri yfirlýsingar

Bandaríska rannsóknanefndin sem hefur rannsakað aðdraganda hryðjuverkaárásanna 11. september segist standa við fyrri yfirlýsingar sínar um að al-Kaída hafi haft mjög takmörkuð samskipti við Írak fyrir árásirnar. Forsvarsmenn hennar segja enn fremur að ekki verði annað séð en að nefndin hafi haft aðgang að sömu skjölum og Dick Cheney varaforseti. Cheney, sem hefur gert mikið úr samskiptum al-Kaída og Íraka, hafði sagt að líklega hefði hann haft aðgang að meiri gögnum en nefndin.

Sátt um Gjábakkaveg

Ragnar Sær Ragnarsson, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, óttast ekki að það hafi áhrif á vegaframkvæmdir við Gjábakkaveg að Þingvellir hafi verið samþykktir á heimsminjaskrá. Hann segir að sátt hafi þegar náðst um það hvar vegurinn eigi að liggja.

Tveggja vikna gæsluvarðhald

Karlmaður um fertugt var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en maðurinn er grunaður um aðild að hvarfi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður. Konan, sem er um þrítugt, hefur ekki sést síðan aðfararnótt sunnudags.

Mótmælafundur við Alþingi á morgun

Þjóðarhreyfingin - viðbragðshópur sérfræðinga svokallaður, sem hafinn var handa við að hvetja landsmenn til að hafna fjölmiðlalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fyrirhuguð var, mun efna til mótmælafundar við Alþingishúsið á morgun klukkan 12:30.

Álagning virðist hafa minnkað

Olíufélögin virðast vera farin að minnka meðalálagningu sína á bensínlítrann í ljósi þess að þau hækka ekki bensínverð, þrátt fyrir stöðugar hækkanir á heimsmarkaði. 

Bílvelta á Reykjanesbraut

Jeppabifreið valt á Reykjanesbrautinni og endaði á ljósastaur rétt fyrir hádegi í dag. Ökumaðurinn virðist hafa keyrt út af vinstra megin á veginum og farið aftur upp á veg með þeim afleiðingum að bíllinn valt og endaði á ljósastaur.

Risadósin fjarlægð

Risa Majónesdós sem komið var fyrir við þjóðveginn, rétt vestan Þjórsárbrúar, verður fjarlægð og flutt að höfuðstöðvum Gunnars Majónes í Hafnarfirði. Forsvarsmenn fyrirtækisins sendu frá sér yfirlýsingu í dag og segir þar að vegna misskilnings beri þeim ekki saman við sýslumanninn á Selfossi.

Frumvarpinu vísað í aðra umræðu

<span class="frettatexti">Nýju fjölmiðlafrumvarpi ríkisstjórnarinnar var í dag vísað til annarrar umræðu á Alþingi eftir að fyrstu umræða hafði farið fram. Hún var í styttra lagi enda ræðutími þingmanna takmarkaður. </span><span class="frettatexti">Í atkvæðagreiðslu sem fram fór með nafnakalli um hvort vísa ætti frumvarpinu áfram greiddu 29 atkvæði með því en 25 þingmenn stjórnarandstöðunnar greiddu ekki atkvæði. </span>

Höfðu mök á sviðinu

Tónleikar hljómsveitarinnar Cumshot á Quartstónleikahátíðinni í Kristiansand tóku nokkuð aðra stefnu en tónleikagestir höfðu gert ráð fyrir í upphafi. Skömmu eftir að tónleikarnir hófust kallaði söngvari sveitarinnar par á sviðið. Parið unga afklæddist og byrjaði að hafa mök en hljómsveitin hélt spili sínu áfram.

Nafn stúlkunnar sem lést

Litla stúlkan sem lést eftir að hafa hrapað í fjallinu Kubbanum í Skutulsfirði í gær hét Sunneva Hafberg, fædd 17. mars 1995, til heimilis að Reynimel 82 í Reykjavík. Foreldrar hennar eru Kristjana Nanna Jónsdóttir og Einar Hafberg.

Varað við orkudrykkjum og áfengi

Umhverfisstofnun varaði í dag við neyslu á orkudrykkjum og áfengi samhliða hreyfingu. Viðvörunin fylgir í kjölfar tilkynningar dönsku Matvælastofnunarinnar fyrir stuttu þar sem fólk er beðið um að sýna varkárni við neyslu á orkudrykkjum sem innihalda meðal annars koffín og taurín.

Kirkja í greiðslustöðvun

Erkibiskupsumdæmið í Portland í Bandaríkjunum hefur farið fram á greiðslustöðvun, fyrst allra kirkjudeilda í Bandaríkjunum. Þetta er gert til að vernda erkibiskupsumdæmið gegn skaðabótamálum sem forsvarsmenn kirkjunnar óttast að geti riðið henni að fullu.

Hundruðir tonna af olíu lekið út

Megnið af þeirri olíu sem var um borð í togaranum Guðrúnu Gísladóttur þegar skipið sökk fyrir norðurströnd Noregs fyrir tveimur árum síðan hefur lekið út.

Breyttar reglur um styrkt fóstur

"Þarna er ekki um stórvægilegar breytingar að ræða heldur meira verið að uppfæra núgildandi reglur," segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, en embættið hefur sent félagsmálaráðuneytinu drög að nýrri reglugerð um fóstur.

Þúsund krónur á ferðamann

Nýlega var tilkynnt að kynningarátakið Iceland Naturally sem er samstarfsverkefni ríkisins og sjö íslenskra fyrirtækja vestur í Bandaríkjunum yrði framlengt með óbreyttu sniði næstu fjögur árin.

Breyttar áherslur að skila sér

Fíkniefnabrotum fjölgaði um tæp fimmtíu prósent milli áranna 2002 og 2003 að því er fram kemur í ársskýrslu lögreglustjórans í Reykjavík sem kynnt var í gær.

SUF vill ekki ný lög strax

Ungir framsóknarmenn vilja ekki að ný fjölmiðlalög verði samþykkt heldur verði núgildandi lög felld úr gildi og ný sett eftir samráð við stjórnarandstöðuna og hagsmunaaðila. Þetta kemur fram í ályktun frá Sambandi ungra framsóknarmanna.

Loðnuveiðar heimilaðar

Innan sjávarútvegsráðuneytisins hefur verið ákveðið að heimila loðnuflotanum að veiða rúmlega 220 þúsund lestir af loðnu en undanfarið hefur farið fram ítarleg leit að loðnu.

Mest aðsókn til Noregs

"Á þessu ári hafa 72 komið til landsins til að vinna og 76 íslenskir unglingar farið til hinna Norðurlandanna hingað til," segir Alma Sigurðardóttir, tómstundafulltrúi hjá Norræna félaginu, en félagið sér um allar umsóknir vegna Nordjobb sem er mannskiptaáætlun Norðurlandanna.

Íslenskt viðmót í ágúst

Í næsta mánuði verður fáanlegt íslenskt viðmót á nýjasta skrifstofuhugbúnaðarvöndul Microsoft og stýrikerfi. Hægt verður að kaupa hugbúnaðinn með íslensku viðmóti eða hlaða viðmótinu niður af vef Microsoft.

Svipting kosningaréttar

Ólafur Hannibalsson, talsmaður Þjóðarhreyfingarinnar - svokallaðs viðbragðshóps sérfræðinga, segir þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja nýtt fjölmiðlafrumvarp fyrir Alþingi, eftir að því fyrra hafi verið vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu, sé svipting á kosningarétti landsmanna og stjórnarskrábundinna réttinda þeirra.

Kafbátur í óskilum

Ómannaður kafbátur sem fannst undan ströndum Svíþjóðar í síðasta mánuði tilheyrir breska sjóhernum að sögn sænskra flotayfirvalda. Bretar hafa þó litlar tilraunir gert til að nálgast þennan kafbát sinn. Hann er hlaðinn myndavélum og sónar og er rúmlega 70 milljóna króna virði.

Skuldajöfnun ekki sjálfvirk

Komið getur upp sú staða í reikningshaldi Orkuveitu Reykjavíkur að viðskiptavinir skuldi peninga á einum stað, en eigi inni annars staðar vegna ofáætlunar, t.d. á heitavatnsnotkun.

Þriðjungur hugbúnaðar stolinn

Meira en þriðjungur alls tölvuhugbúnaðar í heiminum er stolinn. Þetta er niðurstaða úttektar Business Software Alliance, BSA, samtaka eigenda hugbúnaðarréttar. Samkvæmt því er 36 prósent alls hugbúnaðar sem tölvunotendur settu upp á síðasta ári stolinn.

Kanar finnast varla undir stýri

Innan við fimmti hver leigubílstjóri í New York er fæddur í Bandaríkjunum og hefur hlutfall þeirra aldrei verið lægra.

Minni mjólkurframleiðsla

Mjólkurframleiðsla er um tveim milljónum lítra minni nú en á sama tíma í fyrra, að því er fram kemur á vef Landssambands kúabænda. Þar segir að mjólkurframleiðsla þurfi að aukast töluvert til að greiðslumark yfirstandandi verðlagsárs nýtist til fulls.

Þriggja ára fangelsi

Maður var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir Héraðsdómi Suðurlands sl. föstudag fyrir að misnota kynferðislega tvær dætur sínar og vinkonu annarrar þeirra. Honum var að auki gert að greiða stúlkunum skaðabætur og til að greiða allan málskostnað.

Bíða eftir Bandaríkjamönnum

Enginn sérstakur tímarammi er kominn á varðandi áframhald viðræðna um framkvæmd varnarsamnings Bandaríkjanna og Íslands þrátt fyrir fund Davíðs Oddssonar með George Bush Bandaríkjaforseta í vikunni.

Bannað að vitna í umræður

Á fundi borgarráðs sl. þriðjudag var lagt fram minnisblað þar sem áréttaðar voru reglur um hvað má fjalla um að loknum lokuðum fundum í nefndum og ráðum borgarinnar.

Sala fasteigna fyrir 1,2 milljarða

Tillaga meirihluta bæjarráðs Vestmannaeyja, að fela bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Fasteign hf. um sölu á fasteignum bæjarins fyrir allt að 1,2 milljarð króna, var samþykkt á fundi bæjarráðs í gær. Fulltrúi minnihlutans lagðist gegn tillögunni.

Stefna forstjóra Heilsugæslunnar

Félag hjúkrunarfræðinga ætlar að stefna forstjóra Heilsugæslunnar í Reykjavík fyrir Félagsdóm brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Forstjórinn segir enga vinnudeilu hafa átt sér stað.</font /></b />

Hefur ekki játað

Maðurinn sem úrskurðaður var í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að hvarfi fyrrverandi sambýliskonur sinnar var yfirheyrður stuttlega fyrir dómi í dag. Að sögn Sigurbjörns Víðis Eggertssonar hjá rannsóknardeild lögreglunnar liggur engin játning fyrir í málinu.

Dómur í fíkniefnamáli

Liðlega þrítugur maður var dæmdur í 30 daga óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi í dag fyrir fíkniefnabrot. Maðurinn framdi brotin í fyrra og hitteðfyrra og var hann meðal annars fundinn sekur um ræktun tuga kannabisplantna.

Eldar í Grikklandi

Einn maður fórst og fjöldi heimila eyðilagðist í gríðarlegum skógareldum sem geisað hafa undanfarna daga í grennd við Aþenu, höfuðborg Grikklands. Slökkviliðsmönnum tókst loks í dag að ná stjórn á eldunum en björgunarstarf hefur reynst erfitt vegna hita og mikilla vinda.

Sjá næstu 50 fréttir