Sala fasteigna fyrir 1,2 milljarða 7. júlí 2004 00:01
Tillaga meirihluta bæjarráðs Vestmannaeyja, að fela bæjarstjóra að ganga til viðræðna við Fasteign hf. um sölu á fasteignum bæjarins fyrir allt að 1,2 milljarð króna, var samþykkt á fundi bæjarráðs í gær. Fulltrúi minnihlutans lagðist gegn tillögunni. Þetta kemur fram á vefnum www.sudurland.net í dag. Vestmannaeyjabær mun gerast aðili að félaginu með hlut upp á 15% af söluverðmætinu. Í greinagerð fulltrúa meirihlutans, þeirra Andrésar Sigmundssonar (B) og Stefáns Jónasonar (V), segir m.a. að ljóst sé að verkefninu fylgja bæði kostir og gallar. Séu þeir hins vegar metnir telja þeir að kostirnir séu þyngri á metunum en gallarnir. Losað sé um fjármagn til að greiða niður óhagstæð lán sem eru íþyngjandi fyrir rekstur bæjarins og farið verður í að koma þeim fasteignum sem seldar verða í gott horf. Einnig er ljóst að Vestmannaeyjabær verður aðili að stærri rekstrareiningu og í því felist nokkrir kostir, s.s. áhættudreifing, lægri viðhalds- og endurnýjunarkostur, minni rekstrarumsvif og gegnsæi í útgjöldum vegna fasteigna félagsins. Arnar Sigurmundsson (D) lagðist gegn tillögunni og gerði það að tillögu sinni að skoðaðir verði kostir þess að Vestmannaeyjabær stofni eigið fasteignafélag líkt og sveitarfélagið Árborg gerði fyrir skömmu. Telur hann mikilvægt að bæjarfélagið verði eigandi þeirra mannvirkja sem nauðsynleg eru til þess að halda uppi lögboðnum verkefnum bæjarfélagsins og nýta sem best þá krafta sem felast í þekkingu og reynslu heimamanna við byggingu og viðhald fasteigna Vestmannaeyjabæjar.
Fréttir Innlent Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Sjá meira