Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jafnrétti kemur ekki af sjálfu sér Samdrykkja um kúgun kvenna verður haldin á Súfistanum á Laugavegi í kvöld. Konur úr Bríeti, félagi ungra feminista, munu fjalla um ritið Kúgun kvenna eftir John Stuart Mill, sem einmitt er lærdómsrit mánaðarins í bókaverslunum. 14.6.2004 00:01
Ráðuneytisstjóri myrtur Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis Íraks var myrtur í morgun. Hann er fyrsti háttsetti embættismaðurinn, sem ráðinn er af dögum síðan ný bráðabirgðaríkisstjórn tók við völdum um síðustu mánaðamót. 13.6.2004 00:01
Fíkniefni og vopn í Þorlákshöfn Lögreglan á Selfossi réðst til inngöngu í einbýlishús í Þorlákshöfn í gærmorgun. Við húsleit fannst nokkuð magn fíkniefna og búnaður til sölu þeirra. Einnig fundust skotvopn, skotfæri og önnur vopn, svo sem hnífar, axir og kylfur. 13.6.2004 00:01
Slys við Kárahnjúka Erlendur starfsmaður við Kárahnjúka liggur á gjörgæsludeild Fjórungssjúkrahússins á Akureyri eftir að dráttarvír slóst utan í hann í gærkvöldi. Hann er þó talinn hafa sloppið ótrúlega vel og verður útskrifaður af gjörgæslu í dag. 13.6.2004 00:01
Ekki tekinn af lífi Terry Nichols, sem fundinn var sekur um aðild að sprengjutilræðinu í Oklahoma-borg 1995, verður ekki dæmdur til dauða, eins og búist hafði verið við. Kviðdómur klofnaði í afstöðu sinni til refsingar og því verður hann líklega dæmdur í lífstíðarfangelsi, með möguleika á skilorði. 13.6.2004 00:01
Viðurkenna þjóðarmorð Bosníu-Serbar hafa í fyrsta skipti viðurkennt að hafa drepið um 8 þúsund múslima í Srebrenitsa í Bosníu sumarið 1995. Það ár var Bosníustríðið enn í hámarki og alþjóðasamfélagið stóð ráðþrota gagnvart glæpum gegn mannkyni. Srebrenitsa er hluti af yfirlýstu öryggissvæði Sameinuðu þjóðanna í Bosníu, en undir stjórn Bosníu-Serba. 13.6.2004 00:01
Bíll stakkst í tjörn Ungur piltur, sem grunaður er um ölvun við akstur, var hætt kominn þegar bíll hans stakkst ofan í tjörn skammt utan Flateyrar í Önundarfirði. Slysið varð um hálffjögurleytið í nótt, að sögn lögreglunnar á Ísafirði. 13.6.2004 00:01
Hlaupa fyrir Reykjanesbraut Ungmenni úr íþróttafélögunum Víði í Garði og Reyni í Sandgerði hlupu frá Keflavík til Hafnarfjarðar nú fyrir hádegi með áskorun á ríkisstjórn um að flýta framkvæmdum við tvöföldun Reykjanesbrautar. 13.6.2004 00:01
Stal bíl og barni Bíl, með fjögurra mánaða barni í aftursætinu, var stolið í Sóltúni í Reykjavík um hádegisbil. Svo virðist sem bílþjófurinn hafi ekki ætlað sér að gerast mannræningi því um fimmtán mínútum síðar hringdi hann sjálfur úr síma sem var í bílnum og lét vita af barninu. 13.6.2004 00:01
SMS áróður á Ítalíu Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, var gagnrýndur harkalega fyrir að senda 30 milljónum ítalskra kjósenda skilaboð í gsm síma, vegna kosninganna til Evrópuþingsins. Ítalar ganga að kjörborðinu í dag, ásamt Tékkum, Lettum og Möltubúum, en kosningunum lýkur á morgun. 13.6.2004 00:01
Hvetur til rannsókna á Alzheimer John Kerry, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum, hvetur stjórnvöld til að veita meira fé til rannsókna á Alzheimer sjúkdómnum. Kerry hefur haft hægt um sig opinberlega eftir að Ronald Reagan, fyrrverandi forseti, lést fyrir viku en Reagan var haldinn Alzheimer í meira en áratug. 13.6.2004 00:01
Hald lagt á 150 DVD myndir Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur lagt hald á rúmlega 150 ólöglega afritaðar kvikmyndir á DVD-diskum, sem Íslendingur reyndi að smygla til landsins. Að minnsta kosti ein myndanna er nú í kvikmkyndahúsum hér á landi og hefur hvergi í heiminum verið gefin út á DVD. 13.6.2004 00:01
Fann kannabis á dvalarstað Kona um fertugt var tekin á Selfossi í fyrrakvöld grunuð um að aka undir áhrifum lyfja eða fíkniefna. Í kjölfarið var gerð húsleit á dvalarstað konunnar og fundust þar sautján grömm af kannabis. 13.6.2004 00:01
Tíu létust í Pakistan Tíu létust þegar ráðist var á bílalest hershöfðingja í pakistönsku borginni Karachi. Hershöfðinginn slapp hins vegar lifandi. Miklar róstur hafa verið í borginni undanfarið. Stutt er síðan 25 létust í þriggja daga átökum í kjölfar morðs á klerki í borginni. 13.6.2004 00:01
Mjög skýr markmið Reagans "Það var mér alveg ljóst í þessum samtölum að það var ekki tilviljun ein að hann hafði náð þessari lýðhylli og þessum áhrifum í Bandaríkjunum," segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, um Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem hann ræddi við í opinberri heimsókn til Bandaríkjanna árið 1988. 13.6.2004 00:01
Endurráðinn í lögregluna Lögreglumaður, sem sýknaður var í Hæstarétti í síðasta mánuði fyrir ólögmæta handtöku, ranga skýrslugjöf og brot í opinberu starfi, hefur verið endurráðinn hjá lögreglunni. 13.6.2004 00:01
Kvikmyndamiðstöðin braut reglugerð Menntamálaráðuneytið hefur fellt úrskurð Kvikmyndamiðstöðvar Íslands um að neita kvikmyndafyrirtækinu Passport um kynningarstyrk vegna myndarinnar Þriðja nafnið úr gildi. Kvikmyndamiðstöðinni er gert að taka málið upp að nýju þar sem ekkert formlegt mat fór fram áður en ákveðið var að hafna umsókninni. 13.6.2004 00:01
Sjálfsvígum fækkar Sjálfsvígum bandarískra ungmenna hefur fækkað undanfarin ár og aðferðirnar sem þau beita til þess hafa breyst. Fyrir tólf árum frömdu að meðaltali 6,2 af hverjum hundrað þúsund tíu til nítján ára Bandaríkjamönnum sjálfsvíg. Árið 2001 var tíðnin komin niður í 4,6 sjálfsvíg á hver 100.000 ungmenni. 13.6.2004 00:01
Endurbætur Reykjanesbrautar Framkvæmdir eru að hefjast við endurbætur á Reykjanesbraut í gegnum Hafnarfjörð en Ístak átti lægsta tilboð: 533 milljónir króna. Lækjargötu í Hafnarfirði verður lokað frá og með næsta þriðjudegi en tvöfalda á Reykjanesbraut frá Lækjargötu að Kaplakrika og á verkinu að vera lokið fyrir 1. nóvember, innan fimm mánaða. 13.6.2004 00:01
Nýr prestur á Þingvöllum Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur falið sr. Kristjáni Val Ingólfssyni prestsþjónustu í Þingvallaprestakalli til loka ágústmánaðar. Mun hann meðal annars sinna helgihaldi á Þingvöllum yfir sumarmánuðina en það verður með fjölbreyttum hætti og verður leitast við að koma til móts við þarfir þeirra er sækja þennan þjóðarhelgidóm. 13.6.2004 00:01
Maður um þrítugt í gæsluvarðhald Maður um þrítugt var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald, grunaður um aðild að stóru fíkniefnamáli, þar sem maður var handtekinn í Leifsstöð 24. maí síðastliðinn með eitt kíló af amfetamíni og annað eins af kókaíni. Meintur samverkamaður var handtekinn síðdegis í fyrradag og yfirheyrður í gær. 13.6.2004 00:01
Vill fresta skattalækkunum Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, vill fresta fyrirhuguðum skattalækkunum haldi verðbólga áfram að hækka. Formaður Bandalags háskólamanna, Halldóra Friðjónsdóttir, segir einnig skattalækkanir ekki ráðlegar í haust, þær leiði til frekari niðurskurðar annars staðar í velferðarkerfinu. 13.6.2004 00:01
Chesterfield vatnið hvarf Íbúar við Chesterfield-vatn, nálægt Saint Louis í Bandaríkjunum, eru skelfingu lostnir eftir að vatnið þurrkaðist upp og hvarf á aðeins örfáum dögum. Chesterfield vatn var áður 10 hektarar, en eftir miklar rigningar fyrir nokkrum vikum hækkaði vatnsborðið verulega þar til um síðustu helgi að það var sem tappi væri tekinn úr baðkari og vatnið hvarf niður um holu eða öllu heldur niðurfall í því miðju. 13.6.2004 00:01
Vilja banna umferð jeppa Jeppaeigendur í París munu eiga um sárt að binda árið 2006 ef nýjar hugmyndir innan borgarstjórnar Parísar ganga eftir um að banna akstur allra jeppa í borginni. Er forsendan sú að létta örlítið á hinni gríðarlegu umferð sem teppir götur borgarinnar oft á dag og eru rökin þau að enginn þurfi á jeppa að halda í borgum. 13.6.2004 00:01
Færri hross flutt út Færi hross voru flutt út á fimm fyrstu mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Þá höfðu verið flutt út 619 hross á móti 591 nú. Ef litið er á útflutning til hinna ýmsu landa hafa verið flutt 30 hross til Austurríkis á móti 17 á sama tíma í fyrra. Samtals 116 hafa farið til Þýskalands nú á móti 91 í fyrra. 13.6.2004 00:01
Innheimta skatttekna eykst Innheimta skatttekna ríkisins jókst um 14,4 prósent á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra samkvæmt því sem kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. 13.6.2004 00:01
Lést við Bláa lónið Bandarískur ferðamaður af skemmtiferðaskipi hné skyndilega niður og lést á göngustíg við Bláa lónið í gær. Maðurinn, sem var hjartasjúklingur, kom með rútubíl að Bláa lóninu og var á göngu á stígnum um hraunið milli bílastæðisins og þjónustuhússins. 13.6.2004 00:01
Kosið á Evrópuþing í dag 19 Evrópuþjóðir ganga að kjörborðinu í dag og kjósa fullrúa til Evrópuþingsins, en þegar hafa sex af þjóðunum 25 lokið kosningu. Þetta eru fyrstu kosningar eftir stækkun Evrópusambandsins og eru um 350 milljónir manna á kjörskrá. 13.6.2004 00:01
Fiskifræði Hafró gengur ekki upp "Þessar tillögur frá Hafrannsóknarstofnun sanna það enn einu sinni að starfsmenn hennar vita ekkert í þennan heim né annan þegar kemur að fiskveiðum," segir Ásgeir Guðbjartsson, fyrrverandi skipstjóri á Ísafirði, vegna tillagna Hafró fyrir næsta fiskveiðiár. 13.6.2004 00:01
Írar skerða möguleika útlendinga Írskir kjósendur samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu tillögu ríkisstjórnarinnar um að skerða möguleika útlendinga á að hljóta ríkisborgararétt. Enda þótt niðurstaðan hafi verið talin afgerandi þar í landi, hefði hún ekki verið talin gild, ef ýmsar hugmyndir um þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi hefðu verið til hliðsjónar. 13.6.2004 00:01
Deilt á minnisvarða Yfirvöld í Karelíuhéraði í Rússlandi hafa reist minnisvarða til heiðurs Júrí Andropov, fyrrum leiðtoga Sovétríkjanna, sem var um fimmtán ára skeið yfirmaður leyniþjónustunnar KGB. Fjöldi ungmenna mótmælti þessu við afhjúpun minnisvarðans og færði lögregla fólkið á brott. 13.6.2004 00:01
Fundu 20 ára gamalt lík Lík karlmanns fannst í yfirgefnu fjölbýlishúsi á dögunum, rúmlega tuttugu árum eftir að hann er talinn hafa látist. Líkið fannst þegar verkamenn voru að ganga frá húsinu til niðurrifs. Ekkert var eftir af manninum nema beinagrindin og náttföt sem hann var klæddur í. 13.6.2004 00:01
Tíu ára afmæli Reykjanesbæjar "Besta afmælisgjöfin er líklega mjög góð niðurstaða í svokölluðu Bertelsmannsprófi sem er alþjóðlegur mælikvarði á gæði í stjórnsýslu," sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, á tíu ára afmæli bæjarins í gær. 13.6.2004 00:01
Metaðsókn í Kennaraháskólann Annað árið í röð er metaðsókn í Kennaraháskóla Íslands. Nemendur skólans er nú rúmlega 2300 og hefur fjölgað verulega á síðustu árum, að því er segir í frétt fá skólanum. Umsóknir um nám hafa aldrei verið fleiri en nú í vor. Því miður verður aðeins hægt að bjóða tæplega helmingi þessa hóps skólavist vegna fjárhagsramma skólans. 13.6.2004 00:01
Þrjár hrefnur veiddar Búið er að veiða þrjár hrefnur það sem af er sumri af þeim 25 sem stendur til að veiða í ár. Í fyrra tók það þrjú skip hálfan annan mánuð að veiða dýrin. Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Hafró eru dýrin af svipaðri stærð og þau sem veiddust í fyrra en þau þóttu í magrara lagi. 13.6.2004 00:01
Lítill drengur með eldspýtur Lítill drengur sem var að fikta með eldspýtur, kveikti í rúminu sínu í kjallaraíbúð í fjölbýli við Flókagötu. Slökkviliðinu var tilkynnt um brunann fimm mínútur yfir átta í gærkvöldi og hafði lokið störfum tuttugu mínútum síðar. Reykkafarar slökktu eldinn og reykræsta þurfti íbúðina. Töluvert miklar skemmdir urðu á herbergi drengsins. 13.6.2004 00:01
Dómur kveðinn upp á morgun Dómur í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar, fyrrverandi aðaleiganda Norðurljósa, gegn Davíð Oddssyni forsætisráðherra verður kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Jón Ólafsson stefndi Davíð skömmu fyrir áramót vegna ummæla sem féllu í viðtali við Ríkisútvarpið eftir að Jón hafði selt eigur sínar hér á landi með milligöngu Kaupþings-Búnaðarbanka. 13.6.2004 00:01
Eldur á Flókagötu Slökkvilið var kvatt að húsi við Flókagötu í Reykjavík í gærkvöldi en þar logaði eldur í rúmdýnu í lítilli íbúð. Eldurinn barst ekki út fyrir dýnuna og tókst fljótlega að kæfa hann. Mikill svartur reykur myndaðist hins vegar í íbúðinni, enda var þetta svampdýna sem brann, en íbúana sakaði ekki. Talið er að barn hafi kveikt í dýnunni. 13.6.2004 00:01
Bílstuldur á Selfossi Gestkomandi fólk á Selfossi kemst nú ekki til síns heima þar sem jeppanum þeirra var stolið fyrir utan hús ættingja þeirra í gærmorgun. Jeppinn er vínrauður á litinn af gerðinni Mitsubishi Pajero, árgerð 1990. Númer bílsins er SK-268. Lögreglan á Selfossi biður þá sem hafa orðið varir við bílinn að hafa samband. 13.6.2004 00:01
Esjudagur fjölskyldunnar Árlegur Esjudagur fjölskyldunnar er í dag en eins og nafnið gefur til kynna felst hann í því að ganga á Esju, borgarfjall Reykjavíkur. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis stendur fyrir Esjudeginum og er þetta sjötta árið í röð sem hann er haldinn. Í tilkynningu frá Sparisjóðnum segir að þetta sé sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem hver og einn geti fundi eitthvað við sitt hæfi. 13.6.2004 00:01
Þorskeldi við hlið stóriðju Tvær fiskikvíar í Hvalfirði gegnt álveri Norðuráls hafa vakið athygli margra vegfarenda um Hvalfjörðinn síðustu mánuði og hafa þeir bent Fréttablaðinu á að fyrir utan nálægð álversins við kvíarnar séu viðkvæmar laxveiðiár í grenndinni. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er þarna um þorskeldi að ræða í annarri kvínni en hin stendur auð. 13.6.2004 00:01
HIV-sýkt börn eftir blóðgjöf Eftirlit með indverskum blóðbönkum hefur verið hert til muna eftir að fregnir bárust af því að 30 börn hefðu smitast af HIV-veirunni við blóðgjöf á síðustu þremur árum. Fjölmiðlar í Kalkútta greindu frá því að börn niður í þriggja ára hefðu smitast en alls eru 58 blóðbankar starfræktir á vegum yfirvalda í Kalkútta. 13.6.2004 00:01
Bæjarstjóri sýknaður Líkurnar á því að Jason West, bæjarstjóri í New Paltz í New York-ríki, fari í fangelsi fyrir að gefa samkynhneigð pör saman minnkuðu heldur þegar dómari vísaði ákæru á hendur honum frá dómi. Ákæruvaldið getur þó áfrýjað úrskurðinum. 13.6.2004 00:01
Geta haft ungabörn í fangelsinu Heimilt er að konur hafi börn að eins og hálfs árs aldri innan fangelsisveggja, segir Erlendur S. Baldursson, afbrotafræðingur og starfsmaður Fangelsisstofnunnar. Ófrísk kona var handtekin í Leifsstöð með 5.005 E-töflur í bakpoka á föstudag. Hún verður í einangrun á Litla-Hrauni til tveggja vikna og á fjögurra til sex ára dóm yfir höfði sér verði hún sakfelld. 13.6.2004 00:01
Reykingalöggjöf hafnað? Frjálshyggjufélagið hvetur stjórnvöld til að hafna öllum hugmyndum um sérstaka löggjöf um reykingar í fréttatilkynningu sem félagið sendi út. Þar segir að slík löggjöf sé óþörf þar sem eignarréttur leysi allan þann vanda sem reykingar kunna að valda öðrum en reykingamönnum. 13.6.2004 00:01