Innlent

Þórarna skipuð for­stjóri HSA

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þórarna er nú skipaður forstjóri.
Þórarna er nú skipaður forstjóri. Vísir/Samsett

Þórarna Gró Friðjónsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands til næstu fimm ára. Hún varð settur forstjóri eftir að Guðjón Hauksson flutti sig yfir á Sjúkrahúsið á Akureyri.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sér um skipunina og taldi ráðgefandi hæfnisnefnd Þórörnu vel hæfa til að gegna embættinu. Hún tók fyrst til starfa hjá HSA árið 2018 sem rekstrarstjóri og varð síðar framkvæmdastjóri mannauðs. Frá 1. júní hefur Þórarna verið settur forstjóri.

Þórarna er með meistarapróf í fjármálum fyrirtækja, B.S. gráðu í sálfræði og hefur lokið sextíu eininga grunndiplómu í uppeldis- og menntunarfræðum. Hæfnisnefndin taldi að þekking Þórörnu á áætlanagerð, fjármálum hins opinbera, opinberri stjórnsýslu og reynsla á sviði rekstrar og stjórnunar mannauðsmála komi sér afar vel.

„Fram undan eru spennandi verkefni og tækifæri og ég hlakka til að takast á við þau í góðri samvinnu við starfsfólk og samstarfsaðila, með það að markmiði að veita íbúum Austurlands góða heilbrigðisþjónustu,“ er haft eftir Þórörnu í tilkynningu á vefsíðu Stjórnarráðsins.

Guðjón Hauksson var áður forstjóri HSA en var síðan skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Hann hafði gegnt embættinu frá árinu 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×