Innlent

Minningarstundir vegna andlátanna

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Blóm, kerti og krossar eru þar sem ungmennin létust.
Blóm, kerti og krossar eru þar sem ungmennin létust. Vísir/Anton Brink

Minningarstund verður haldin í Lágafellskirkju vegna andláts Arndísar Höllu Guðlaugsdóttur. Einnig verður minningarstund um Benjamín Guðmundsson í Háteigskirkju. Þau létust bæði í umferðarslysi á Krísuvíkurvegi aðfaranótt mánudags.

Arndís Halla var sextán ára þegar hún lést, fædd árið 2009. Benjamín var 21 árs, fæddur árið 2005. Þau, ásamt annarri stúlku sem var fædd árið 2007 og var erlendur ríkisborgari sem stundaði nám hér á landi, lentu í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags. Nafn þriðju stúlkunnar hefur ekki verið gert opinbert.

Í gærkvöldi var boðað til kyrrðarstundar á vegum Menntaskólans við Sund í Langholtskirkju vegna slyssins en önnur stúlknanna var nemandi þar. Tvö hundruð ungmenni sóttu kyrrðarstundina.

Minningarstundin í Háteigskirkju hefst klukkan sex á morgun og hefur Helga Soffía Konráðsdóttir sóknarprestur umsjón með athöfninni. Í Lágafellskirkju hefst minningarstundin klukkan hálf sex á morgun, miðvikudag. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tildrög slyssins til rannsóknar. Samkvæmt heimildum Vísis voru fleiri bílar á vettvangi og segir lögregla það vera einn þátt sem sé til rannsóknar. Sömuleiðis er til skoðunar hvort að um hraðaakstur hafi verið að ræða.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×