Innlent

Öllum upp­lýsinga­full­trúum borgarinnar sagt upp

Lovísa Arnardóttir skrifar
Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri.
Hildur Björnsdóttir er borgarstjóri. Vísir/Lýður Valberg

Tíu manns hefur verið sagt upp á skrifstofu samskipta og viðburða hjá Reykjavíkurborg. Sviðið hefur verið lagt niður og einhverjum sagt upp á meðan starfsmenn á sviði viðburða hafa verið fluttir til.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Önnu Kristinsdóttur, mannréttindastjóra Reykjavíkurborgar, einnig verið sagt upp og samkvæmt frétt RÚV hefur mannréttindaskrifstofa borgarinnar verið lögð niður líkt. 

Meðal þeirra sem störfuðu á sviði samskipta og viðburða eru upplýsingafulltrúar borgarinnar. Þeir voru sjö og hefur öllum verið sagt upp. Eva Bergþóra Guðbergsdóttir hefur síðustu ár starfað sem samskiptastjóri og undir henni störfuðu svo sex upplýsingafulltrúar á hverju sviði fyrir sig. 

Samkvæmt heimildum fréttastofu tekur breytingin gildi strax og hefur ekki verið óskað eftir áframhaldandi vinnuframlagi þeirra.

Starfsfólk á sviðinu fékk í morgun bréf um fyrirhugaðar breytingar og var svo kallað á fund borgarritara Þorsteins Gunnarssonar. Auk upplýsingafulltrúa var starfsfólki á sviðinu sagt upp sem hefur sinnt ljósmyndun og myndbandagerð. 

Nýr meirihluti tók við eftir kosningar sem hefur talað fyrir hagræðingu í rekstri borgarinnar. Á fyrsta fundi borgarráðs var skipaður hagræðingarhópur sem hefur það hlutverk að fara yfir rekstur borgarinnar. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, er formaður hópsins og á hann að skila tillögum jafnóðum og þær eru til. Vinnu hópsins á að vera lokið um mitt kjörtímabil, 2028.

Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×