Eze skaut Arsenal aftur á toppinn 25. apríl 2026 18:27 Eze fangar marki sínu í dag sem var glæsilegt í einu orði sagt. Vísir/Getty Eberechi Eze tryggði Arsenal mikilvægan sigur gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Með sigrinum tyllir Arsenal sér aftur á topp deildarinnar en varð um leið fyrir blóðtöku í leiknum. Lokatölur 1-0 sigur Arsenal. Fyrir leik sat Manchester City á toppi deildarinnar á fleiri skoruðum mörkum en Arsenal en lærisveinar Pep Guardiola áttu ekki leik í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem liðið var að spila í undanúrslitum enska bikarsins og vann þar 2-1 sigur gegn Southampton. Leikmenn Arsenal vissu því fyrir leik að með sigri myndu þeir koma liði sínu aftur í toppsætið og varpa um leið pressunni yfir á Manhcester City fyrir næsta leik liðsins í deildinni. Aðeins eitt mark var skorað í leik dagsins. Það skoraði Eberechi Eze á níundu mínútu með þrumuskoti fyrir utan teig eftir hornspyrnu. Boltinn söng upp í fjærhorninu. Staðan 1-0 fyrir Arsenal og þar við sat. Lærisveinar Mikel Arteta eru því sem stendur í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar með þremur stigum meira en Manchester City sem á þó leik til góða. Arsenal varð fyrir blóðtöku í leik dagsins því Kai Havertz og téður Eberechi Eze fóru báðir meiddir af velli. Útlitið dökkt hvað Havertz varðar, hann var í uppnámi er hann yfirgaf völlinn og hélt beint inn til búningsherbergja. Fjórar umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni. Toppbaráttan galopin. Enski boltinn Arsenal FC Newcastle United