Arteta vill bæta við hópinn í dag Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir líklegt að félagið styrki sig á lokadegi félagsskiptagluggans í dag. Enski boltinn 1.9.2026 10:00
Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Arsenal vann Aston Villa 1-0 í tíðindalitlum leik í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Englandsmeistararnir eru þá búnir að vinna tvo fyrstu leiki tímabilsins í deildinni. Enski boltinn 31.8.2026 18:31
Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Alex Baena sá til þess að Sevilla-menn yrðu teknir til bæna þegar hann skoraði tvö mörk fyrir Atlético Madrid í 3-1 útisigri liðsins í spænsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. Julian Alvarez var hvergi sjáanlegur en tíminn er að renna út ætli Arsenal að landa honum. Fótbolti 29.8.2026 21:32
Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Forráðamenn Englandsmeistara Arsenal telja sig geta fengið Argentínumanninn Julián Álvarez til liðs við sig frá Atletico Madrid. Þeir muni hins vegar aðeins leggja fram tilboð opni hann á að koma aftur í enska boltann. Enski boltinn 25. ágúst 2026 09:00
Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Samband Julian Alvarez við Atletico Madrid virðist vera að versna og ekki er víst hvort að hann fari frá félaginu í þessum félagsskiptaglugga eða ekki. Alvarez vill fara til Barcelona en Atletico Madrid vill ekki missa hann þangað. Fótbolti 24. ágúst 2026 23:16
Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Gary Neville, sparkspekingur hjá Sky Sports og fyrrverandi leikmaður Manchester United, telur Manchester City og Liverpool ekki geta barist um Englandsmeistaratitilinn á þessu tímabili. Enski boltinn 24. ágúst 2026 08:30
Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Arsenal hóf titilvörn sína í ensku úrvalsdeildinni með sannfærandi hætti þegar liðið vann nýliða Coventry City 3-0 í gærkvöld. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Enski boltinn 22. ágúst 2026 10:21
Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Arsenal hóf titilvörn sína í ensku úrvalsdeildinni með sannfærandi hætti í kvöld þegar liðið vann nýliða Coventry City 3-0 á Emirates Stadium. Enski boltinn 21. ágúst 2026 18:30
Konsa orðinn leikmaður Arsenal Enski landsliðsmaðurinn Ezri Konsa er orðinn leikmaður Arsenal. Hann er keyptur til Englandsmeistaranna frá Aston Villa fyrir um 51 milljón punda. Enski boltinn 21. ágúst 2026 09:16
Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Sérfræðingar Messunnar á Sýn Sport voru ekki sammála um það hversu góð kaup Arsenal hafi gert með því að fá Bruno Guimaraes til liðs við sig frá Newcastle United á 75 milljónir punda. Eiður Smári Guðjohnsen hefði viljað sjá Arsenal taka annan miðjumann frá Newcastle. Enski boltinn 20. ágúst 2026 11:05
Arsenal nálgast kaup á Konsa Arsenal er að nálgast samkomulag við Aston Villa um kaup á varnarmanninum Ezri Konsa. Enski boltinn 19. ágúst 2026 10:47
Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Mikel Arteta lítur ekki svo á að verkefni sínu hjá Arsenal sé lokið þrátt fyrir að hafa unnið ensku úrvalsdeildina á síðasta tímabili. Hann ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi. Enski boltinn 18. ágúst 2026 23:15
Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Englandsmeistarar Arsenal hófu nýtt keppnistímabil með afar sannfærandi hætti þegar þeir rúlluðu yfir bikarmeistara Manchester City, 3-0, í leiknum um Samfélagsskjöldinn í gær. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi. Enski boltinn 17. ágúst 2026 12:40
Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Drykkjarhlé og vatnsskortur fótboltamanna hefur verið mikið í umræðunni í sumar vegna allra drykkjarhléanna í hverjum hálfleik á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Vatnsskortur íþróttamanna er hættulegur fylgikvilli íþróttafólks og ber að varast. Mörg fótboltafélög eru hins vegar vakandi fyrir þessu og nýta sér tæknina. Enski boltinn 17. ágúst 2026 06:33
Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca Knattspyrnustjórarnir Mikel Arteta hjá Arsenal og Enzo Maresca hjá Manchester City tjáðu sig eftir 3-0 stórsigur Arsenal á City í leiknum um Samfélagsskjöldinn í dag en Englandmeistarar Arsenal byrja tímabilið af miklum krafti. Enski boltinn 16. ágúst 2026 17:23
„Við spiluðum frábæran fótbolta“ Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, var kátur eftir 3-0 sigur á Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn í dag. Englandsmeistararnir voru komnir yfir strax á fyrstu mínútu og unnu mjög sannfærandi sigur á bikarmeisturunum. Enski boltinn 16. ágúst 2026 16:32
Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Arsenal hóf nýtt tímabil með titli þegar liðið vann Manchester City 3-0 í Samfélagsskjöldinum á Principality Stadium í Cardiff í dag. Enski boltinn 16. ágúst 2026 13:30
The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Leikurinn um Samfélagsskjöldinn fer vanalega fram á Wembley-leikvanginum í London en svo verður ekki raunin í dag. Enski boltinn 16. ágúst 2026 09:03
Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Englandsmeistarar Arsenal hafa áhuga á því að fá enska landsliðsmanninn Jarrel Quansah til liðs við sig frá Bayer Leverkusen. Quansah er opinn fyrir því að ganga í raðir Arsenal. Enski boltinn 14. ágúst 2026 10:24
Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Myles Lewis-Skelly, 19 ára leikmaður Englandsmeistara Arsenal hefur engan áhuga á því að yfirgefa uppeldisfélag sitt nú þegar hann er orðaður við lið á borð við Manchester United og Chelsea. Enski boltinn 13. ágúst 2026 15:01
Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að Englandsmeistararnir séu enn að leita að leikmönnum fyrir titilvörn næsta tímabils. Enski boltinn 13. ágúst 2026 07:31
Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Ensku úrvalsdeildarfélögin Manchester United og Arsenal gerðu bæði 1-1 jafntefli í æfingarleikjum sínum í kvöld. Báðir leikir fóru í vítakeppni og þar höfðu United og Arsenal betur. Enski boltinn 12. ágúst 2026 20:25
Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tyrkneska félagið Fenerbahce hefur tilkynnt um kaup á framherjanum Romelu Lukaku frá Napoli sem gæti rutt brautina fyrir Brasilíumanninn Gabriel Jesus að yfirgefa Arsenal. Enski boltinn 12. ágúst 2026 17:02
Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Ensku liðin áttu misjöfnu gengi að fagna í æfingaleikjum dagsins í fótboltanum. Englandsmeistarar Arsenal töpuðu öðrum leik sínum í röð á undirbúningstímabilinu og Liverpool missti niður tveggja marka forystu yfir í tapaðan leik. Enski boltinn 9. ágúst 2026 15:20