Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Valur Páll Eiríksson skrifar 31. október 2025 10:48 Gareth Owen er nýr tæknilegur ráðgjafi hjá knattspyrnudeild Vals. X/@coachgarethowen Gareth Owen hefur verið ráðinn sem tæknilegur ráðgjafi hjá Val í fótbolta. Hann mun hafa yfirumsjón með fótboltatengdum málum hjá félaginu. Owen yfirgefur Fram til að taka við starfinu.
Owen hefur starfað fyrir Fram undanfarin tvö ár sem yfirmaður markmannsþjálfunar og verið markmannsþjálfari meistaraflokks í Úlfarsárdal. Áður starfaði hann hjá Gróttu hérlendis en hefur einnig unnið fyrir Chelsea á Englandi og velska knattspyrnusambandið, FAW. Greint var frá því á Vísi fyrir um mánuði síðan að hann myndi færa sig um set til Vals og vera þar yfirmaður knattspyrnumála en hann mun bera starfstitilinn tæknilegur ráðgjafi (e. technical director) „Sem tæknilegur ráðgjafi Vals er Gareth fyrst og fremst ætlað að leiða langtímastefnu knattspyrnudeildar og innleiðingu á henni. Líkt og fram hefur komið hefur verið vinna í gangi með sænska ráðgjafarfyrirtækinu GoalUnit þar sem horft er til framtíðar og verður eitt af fyrstu verkum nýs tæknilegs ráðgjafa að kynna þá framtíðarsýn fyrir félagsfólki,“ segir meðal annars í yfirlýsingu Vals um ráðninguna sem má sjá að neðan. Valsmenn leita enn þjálfara fyrir meistaraflokk karla eftir að Srdjan Tufegdzic var sagt upp störfum í byrjun vikunnar. Hauki Páli Sigurðssyni, aðstoðarþjálfara, og Kjartani Sturlusyni, markmannsþjálfara, var einnig sagt upp störfum og mun Owen eflaust koma að því að finna nýtt teymi. Hermann Hreiðarsson hefur verið orðaður við þjálfarastarfið, en hann stýrði HK í Lengjudeildinni í fyrra. Chris Brazell er einnig orðaður við aðstoðarþjálfarastarfið. Karlalið Vals lenti í öðru sæti í Bestu deild karla og hlaut silfur í Mjólkurbikarnum. Kvennalið Vals átti sitt versta tímabil í áraraðir og hafnaði í 6. sæti Bestu deildar kvenna. Yfirlýsing Vals: Gareth Owen ráðinn tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar Vals Það er okkur mikil ánægja að tilkynna um ráðningu Gareth Owen sem nýs tæknilegs ráðgjafa (Technical Director) Knattspyrnudeildar Vals. Gareth er með UEFA A þjálfaragráðu, UEFA A markmannsþjálfaragráðu auk þess að hafa lokið meistaragráðu í afreksþjálfun í knattspyrnu (MSc in Performance Football Coaching). Þá býr Garreth sem er frá Wales yfir víðtækri alþjóðlegri reynslu og hefur byggt upp nokkuð farsælan feril innan afreksumhverfa í fótbolta – bæði sem leikmaður og þjálfari. Áður en hann hóf þjálfaraferil sinn lék Gareth sem markvörður með Swansea City og Sheffield United, auk þess sem hann lék fyrir landslið Wales í U16, U17 og U19. Síðustu fjögur ár hefur hann starfað á Íslandi þar sem hann hefur getið sér góðs orðs fyrir uppbyggingu afreksstarfs og þróun leikmanna. Gareth hefur einnig gegnt áhrifamiklum hlutverkum hjá stórum félögum og stofnunum á borð við Chelsea FC og Knattspyrnusamband Wales (FAW). Hjá Chelsea hafði hann umsjón með leikmannamenntun og samfélagsverkefnum víða um heim – í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum – þar sem hann vann að því að efla alþjóðlegt þjálfunarumhverfi félagsins. Á Íslandi hefur Gareth starfað sem aðstoðarþjálfari og yfirmaður markmannsþjálfunar hjá Gróttu og síðast hjá Fram, þar sem hann var hluti af þjálfarateymi meistaraflokks karla síðustu tvö tímabil. Sem tæknilegur ráðgjafi Vals er Gareth fyrst og fremst ætlað að leiða langtímastefnu knattspyrnudeildar og innleiðingu á henni. Líkt og fram hefur komið hefur verið vinna í gangi með sænska ráðgjafarfyrirtækinu GoalUnit þar sem horft er til framtíðar og verður eitt af fyrstu verkum nýs tæknilegs ráðgjafa að kynna þá framtíðarsýn fyrir félagsfólki. Garreth mun hefja störf þann 1. nóvember n.k. Frábær að vinna með ungum leikmönnum „Við réðum Arnór Smárason í svipað starf í upphafi síðast tímabils en hann flutti til Svíþjóðar á miðju tímabili og vinnur nú fyrir kvennalið Hammarby. Við ákváðum síðan að taka okkur tíma í að finna rétta aðilann og aðeins þróa starfið. Gareth hefur sýnt það, sértaklega hjá Fram, að hann er mjög fær í að ná í unga leikmenn og gera þá betri. Hann er þrælmenntaður og hefur svipaða sýn á fótbolta og við í stjórn og er meðvitaður um hvert við viljum komast. Okkur hlakkar mikið til samvinnunnar,“ segir Björn Steinar Jónsson formaður knattspyrnudeildar Vals. Valur er félag sem getur orðið stórt – ekki bara á Íslandi „Valur hefur auðvitað sterka sögu og er eitt af stóru félögunum á Íslandi og hefur alla burði til þess að verða stórt félag út fyrir landsteinana. Ég hef búið á Íslandi í nokkur ár og náð góðum tengslum við íslenskan fótbolta. Eftir samtöl sem ég átti við forsvarmenn Vals fann ég samhjóm og ég upplifi metnaðarfulla framtíðarsýn og mikla möguleika til vaxtar. Ég hlakka til að vinna með frábæru fólki innan félagsins, stuðla að áframhaldandi fagmennsku og leggja mitt af mörkum til að efla bæði leikmenn og þjálfara. Ég elska Ísland, var að kaupa mér íbúð og er byrjaður að læra íslensku, svo skemmir ekki fyrir að kærastan mín er mikill valsari,“ segir Gareth Owen nýráðinn tæknilegur ráðgjafi knattspyrnudeildar Vals.
Valur Besta deild karla Besta deild kvenna Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið Mætir með medalíu af ÓL í jarðarför föður síns Sport Sögulegur áfangi Örnu sem brýtur blað í íþróttasögu Íslendinga Sport Sögð þéna milljónir á því að sýna brjóstahaldarann á Ólympíuleikunum Sport Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Enski boltinn „Við vitum hvað við gerðum við konunga Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Typpið í lagi en skórnir of stórir Sport „Ung kona vinnur gull og verður fyrir fordómum og niðurlægingu“ Sport „Ég er ekki kærastan“ Sport Börsungar töpuðu og glutruðu um leið tækifæri til að komast á toppinn Fótbolti Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Enski boltinn Fleiri fréttir FH hafði betur gegn Stjörnunni Breiðablik kaupir Ívar af KA Blikar að landa Ívari KA vann meistarana og Stígur Diljan sá rautt KSÍ dregur úr verðhækkunum KR lenti tveimur undir en er enn án taps Keflavík og HK á sigurbraut Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ „Þetta er allt annað dæmi“ Íslenska deildin byrjar langsíðust Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Hallgrímur bætist við landsliðshópinn Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Sjá meira