Uppgjörið: FH - Valur 1-2 | Valur nældi sér í ofboðslega langþráðan sigur Hjörvar Ólafsson skrifar 21. júní 2025 15:46 Fanndís Friðriksdóttir og stöllur hennar í Val geta loks leyft sér að fagna. Vísir/Anton Valur fór með sigur af hólmi þegar liðið sótti FH heim á Kaplakrikavöll í 10. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta í dag. Gengi Valsliðsins hefur verið slæmt upp á síðkastið og sigurinn því vel þeginn. Eftir tíðindalitlar fyrstu mínútur leiksins vakti Elísa Lana Sigurjónsson, miðjumaður FH, áhorfendur með langskoti sínu sem small í þverslánni þegar um það til tíu mínútur voru liðnar af leiknum. Stöllurnar Maya Lauren Hansen og Jordyn Rhodes fengu svo báðir fín færi til þess að brjóta ísinn sem Thelma Karen Pálmadóttir og Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir en inn vildi boltinn ekki og staðan markalaus í hálfleik. Seinni hálfleikur hófst fjörlega en áfram voru Thelma Karen og Ragnheiður Þórunn aðgangsharðar upp við mark andstæðinga sinna. Hvorug náði þó að finna netmöskvana. Það var svo téð Ragnheiður Þórunn sem skoraði markið sem skildi liðin af eftir rúmlega klukkutíma leik. Ragnheiður Þórunn skoraði með skoti af stuttu færi eftir hornspyrnu Helenu Óskar Hálfdánardóttur. Helena Ósk var svo sjálf á skotskónum þegar skammt var eftir af leiknum en skot hennar utan vítateigs hafnaði þá í fjærhorninu og staðan 2-0 Val í vil. Ingibjörg Magnúsdóttir sem kom inná vinstri vænginn í hálfleik strengdi líflínu fyrir FH með marki sínu skömmu síðar. Lengra komust heimakonur í FH ekki og Valur innbyrti stigin þrjú sem í boði voru . Valur hafði fyrir þennan leik spilað sex leiki í deildinni án sigur en liðið hafði tapað fjórum af þeim leikjum og gert tvö jafntefli. Þessi sigur var því allt í senn langþráður, kærkominn og nauðsynlegur til þess að mjaka liðinu upp töfluna. Valur klifrar upp í fimmta sæti deildarinnar með þessum sigri en liðið hefur 12 stig líkt og Stjarnan sem er sæti neðar þar sem liðið hefur lakari markatölu. FH er hins vegar í þriðja sæti með sín 22 stig en Þróttur og Breiðablik sem lagði Stjörnuna að velli í dag eru á toppnum með 25 stig hvort lið. Fram undan er um mánaðar hlé frá leikjum í deildinni vegna þátttöku Íslands á Evrópumótinu í fótbolta kvenna. Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals, var sáttur við lærimeyjar sínar. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Kristján: Breyttum aðeins upplegginu „Við breyttum aðeins nálgunin á æfingunum í aðdraganda þessa leiks og upplegginu í leiknum. Uppleggið var gott og leikmenn framkvæmdu það svo vel. Við höfum svo sem verið að spila heilt yfir vel í sumar og öll tölfræði sýnir það. Nú kláruðum við færin og náðum þar af leiðandi í sigur,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals að leik loknum. „Við færðum Fanndísi fremst á miðjuna og hún var mikið í boltanum. Svo fengum við Helenu Ósk inn eftir meiðsli og það skipti sköpum. Sóknarleikurinn var skilvirkari en hann hefur verið í sumar og leikmenn eiga hrós skilið fyrir það,“ sagði Kristján enn fremur. „Við vissum það vel að við myndum á einhverjum tímapunkti snúa blaðinu við og nú er bara að halda áfram að safna stigum þegar við förum aftur af stað eftir landsleikjahléið. Við munum halda áfram að vinna í því að bæta liðið í hléinu,“ sagði hann um framhaldið. Guðni: Færanýtingin varð okkur að falli „Þetta var bara hörkuleikur sem endaði með tapi að þessu sinni. Þetta var kaflaskipt frammistaða hjá okkur en við sköpuðum klárlega nógu margar stöður og færi til þess að fá eitthvað út úr þessum leik. Slæm færanýting varð okkur hins vegar að falli,“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH. „Við vissum það vel að þetta yrði erfiður leikur þar sem það eru mikil gæði í Valsliðinu. Við vorum öflugar á köflum í þessum leik en það dugði því miður ekki til. Við vorum heilt yfir fínar en svo var annað sem var ekki nógu gott,“ sagði Guðni þar að auki. „Næsta verkefni er bara að sleikja sárin eftir þetta tap. Það er verst hvað það er rosalega langt í næsta deildarleik. Við þurfum bara að æfa vel í hléinu og sjá til þess að við mætum sterkar til leiks þegar baráttan í deildinni hefst á nýjan leik,“ sagði hann um komandi tíma. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, á hliðarlínunni í leik hjá liðinu. Vísir/Hulda Margrét Atvik leiksins Fögnuður Valskvenna í leikslok var innilegur og ástríðufullur enda langt síðan þær fundu fyrir sigurtilfinningunni að loknum deildarleik. Stiginn var hæfilega trylltur sigurdans. Stjörnur og skúrkar Sandra Sigurðardóttir varði nokkrum sinnum vel í leiknum og nærvera hennar færir ró í varnarlínu FH fyrir framan hana. Elísa Lana Sigurjónsdóttir átti góðan leik inni á miðsvæðinu hjá FH. Thelma Karen ógnaði sífellt með hraða sínum og krafti. Ingibjörg Magnúsdóttir kom vel inn á vinstri kantinn hjá FH-liðinu í háfleik. Tinna Brá Mangnúsdóttir kom Valsliðinu nokkrum sinnum bjargar með góðum markvörslum. Ragnheiður Þórunn var hættulegust í sóknarleik Vals en hún skoraði svo sigurmark gestanna frá Hlíðarenda Fanndís Friðriksdóttir var mikið í boltanum að reyna að skapa fyrir samherja sína. Elísa Viðarsdóttir var góð bæði í bakvarðarstöðunni sem og djúp á miðjunni. Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Jens Elvar Sævarsson, Arnþór Helgi Gíslason, Kristófer Bergmann og Atli Björn E Levy höfðu einkar góð tök á þessum og bara ekkert upp á þá að klaga. Af þeim sökum fá þeir níu í einkunn fyrir vel unninn störf. Stemming og umgjörð Fínasta stemming í Kaplakrika í dag og flöturinn á grasvellinum sjálfum skartaði sínu fegursta. Ljóst er að veðurbrigði síðustu daga með sól og rigningu í bland við natni Sigmundar Péturs Ástþórssonar, vallarstjóri FH-inga, hefur orðið til þess að völlurinn er í sínu bestu ásigkomulagi. Völlurinn var rakur og aðstæður til fótboltaiðkunar nánast fullkomnar. Besta deild kvenna FH Valur