Fótbolti

Åge Hareide : Við þurfum að venja okkur á það að vinna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Åge Hareide var sáttur með leikina í þessari ferð en næst á dagskrá er umspil um sæti á EM í mars.
Åge Hareide var sáttur með leikina í þessari ferð en næst á dagskrá er umspil um sæti á EM í mars. Vísir/Hulda Margrét

Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide var sáttur eftir velheppnaða æfingaferð til Bandaríkjanna þar sem íslenska liðið vann báða leiki sína á móti Gvatemala og Hondúras og fékk ekki á sig mark.

„Ég er mjög ánægður með hugarfar leikmanna því þeir vildu spila þótt þeir væru ekki í sinu besta formi á þessum árstíma. Þeir gerðu það besta sem þeir gátu, fylgdu fyrirmælum og fóru eftir leikplaninu. Það skiptir öllu máli og ekki síst á móti liðum eins og þessu,“ sagði Åge Hareide við KSÍ TV eftir leikinn.

„Strákarnir gerðu vel, lögðu mikið á sig í báðum leikjunum. Við þurfum að venja okkur á það að vinna leikina okkar. Við þurfum líka að hætta að fá á okkur mörk sem er eitthvað sem Íslendingar hafa náð áður. Við þurfum líka að nýta færin okkar þegar við fáum þau. Að ná sigri í þessum tveimur leikjum gefur öllum sjálfstraust og við þurfum það þegar við förum í marsleikina,“ sagði Åge.

„Það var líka mikilvægt að fá tækifæri til að skoða fleiri leikmenn sem geta spilað fyrir okkur. Við getum lent í meiðslum og ég hef áhyggjur af slíku því breiddin okkar er ekki það mikil. Í dag voru margir ungir leikmenn inn á vellinum, leikmenn sem hafa staðið sig vel með 21 árs landsliðinu. Þessir strákar hafa farið í gegnum góðan skóla hjá þjálfurunum á Íslandi og hjá Davíð (Snorra Jónassyni) í 21 árs landsliðinu,“ sagði Åge.

„Við bjóðum þessa ungu stráka velkomna í landsliðið og fögnum því að þeir hafi fengið tækifæri til að spila. Sumir af þessum strákum munu koma til greina í mars en það er líka mikilvægt að átta sig á því að það er mikill munur á leikjum með 21 árs landsliðinu og alvöru landsleikjum með A-liðinu,“ sagði Åge.

„Í þeim leikjum þarftu á reynslu að halda. Þessir leikir gáfu þessum strákum alþjóðlega reynslu og hæfileikarnir eru þarna. Þeir eiga bjarta framtíð,“ sagði Åge.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×