„Slétt sama hvað fólki finnst um mig“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 28. september 2023 07:01 Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, jafnan þekktur sem Villi Vill, er viðmælandi í nýjasta þætti af Einkalífinu. Vísir/Vilhelm Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson er með þekktari lögmönnum landsins og hefur meira að segja fengið viðurnefnið stjörnulögmaðurinn. Hann er viðmælandi í nýjasta þætti af Einkalífinu en þáttinn má sjá í heild sinni hér í pistlinum.
Villi, eins og hann er gjarnan kallaður, segir lögmannsstarfið órjúfanlegur hluti af sjálfum sér en finnst þó fólk þurfa að vera meðvitað um að aðskilja skjólstæðinginn og lögmanninn. Það hafi oft vafist fyrir fólki og segir Villi lögmenn auðvitað eiga rétt á því að vera ekki samsamaðir skjólstæðingum sínum, rétt eins og aðrar starfsstéttir. Villi ræddi meðal annars um þetta í Einkalífinu ásamt tengingu sinni við Ítalíu, fjölskyldulífið, æskuna, að sigrast á hræðslu, ýmis ævintýri og margt fleira. Þáttinn í heild sinni má horfa á í spilaranum hér að neðan: Klippa: Einkalífið - Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson Allir eigi rétt á sinni skoðun á öðrum Villi missir ekki svefn yfir áliti annarra en hann hefur verið áberandi í íslensku samfélagi í dágóða tíð. „Lengst af hefur mér verið alveg slétt sama um það hvað fólki finnst um mig. Þeir sem þekkja mig þeir þekkja mig, þeir sem þekkja mig ekki geta kynnst mér ef þeir hafa áhuga á því. En ef að það gerist ekki og fólk ákveður að hafa einhverja skoðun á mér byggt á einhverju sem það hefur séð eða lesið eða heyrt eða annað þá verður það bara svo að vera. Það verða allir að fá að hafa hlutina eins og þeir vilja og það á líka við um skoðanir fólks á öðrum.“ Unnið hvern einasta dag síðastliðinn áratug Aðspurður hvort að honum finnist ósanngjarnt að ekki sé gerður greinarmunur á lögmannsstarfinu og einkalífinu svarar Villi: „Ég starfa sem lögmaður, er þekktur sem slíkur og ég vinn einn. Skilin árið 2023 á milli vinnu og einkalífs eru alltaf að verða óskýrari og ég held að það hafi ekki liðið dagur síðastliðinn tíu ár þar sem ég hef ekki unnið eitthvað. Þannig að mörkin þarna á milli, þegar að staðan er sú sem ég er í, þau eru auðvitað töluvert óljós. Og ég geri engar athugasemdir við það að fólk greini ekki á milli mín sem persónu og mín sem lögmanns. Hinsvegar er það annað mál þegar fólk greinir ekki á milli mín og umbjóðenda minna. Það er kannski það sem vefst fyrir mörgum.“ Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson segist ekki gera athugasemd við það að fólk tengi hann alltaf við lögmannsstarfið. Hann krefst þess þó að fólk geri greinarmun á honum og umbjóðendum sínum.Vísir/Vilhelm Krafa um að skilið sé á milli sín og umbjóðenda sinna Nefnir Villi þá dæmi um Hlíðamálið svokallaða á sínum tíma, þar sem fólk fjölmennti á lögreglustöðina og gerði kröfu um að tveir tilteknir menn yrðu hnepptir í gæsluvarðhald. Mótmælin voru byggð á frétt sem hafði birst í fjölmiðlum um að íbúð sem annar mannanna hafði verið með á leigu hafi verið sérútbúinn til nauðgana. „Sem að síðan reyndist enginn fótur vera fyrir og rannsókn þessa máls var hætt mjög hratt og örugglega. Þá meðal annars gerðist það að ég var með vini mínum á veitingahúsi. Hann var þá að þjálfa knattspyrnulið eða var aðstoðarþjálfari, ég man það ekki nákvæmlega. En um leið og við komum inn á veitingahúsið þá fær hann smáskilaboð frá eiginkonu eins leikmannsins sem að segir: „Hvað ert þú að gera með þessum nauðgara?“ Þetta kannski kristallar aðeins vanþekkingu fólks á hlutverki og stöðu lögmanna. Lögmenn eiga auðvitað rétt á því eins og aðrir að vera ekki samsamaðir skjólstæðingum sínum,“ segir Villi og nefnir þá dæmi um ýmsar aðrar starfsstéttir sem það sama gildir um. „Ég geri kröfu um það að það sé skilið á milli mín og umbjóðenda minna en á milli mín sem persónu og mín sem lögmanns, það læt ég algjörlega liggja á milli hluta.“ Dómstóll götunnar Dómstóll götunnar hefur verið áberandi á undanförnum árum og þá sérstaklega í kynferðisbrotamálum, þar sem fólk hefur tjáð sig um ófullkomleika réttarkerfisins. Villi segir dómstól götunnar hluta af tjáningarfrelsinu en það geti verið vant með farið hvernig það er notað. „Réttarkerfið er auðvitað mannanna verk og eins og öll önnur mannanna verk þá er það ekki fullkomið. Það er hinsvegar sú leið sem við höfum sammælst um að sé rétt til þess að halda uppi lögum og reglum. Það er hluti af réttarríkinu og réttarríkið er órjúfanlegur hluti af lýðræðinu þannig að það fer lang best af því að við látum þá aðila sem að til þess eru bærir halda uppi lögum og reglum og dómum. Dómstóll götunnar er auðvitað hluti af tjáningarfrelsinu sem er auðvitað stjórnarskrárvarið.“ Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, Villi Vill, starfar einn og rekur lögmannsstofu.Vísir/Vilhelm „Það finnst mér alvarlegt“ Hann segir sumt hafa valdið sér áhyggjum í þróun á umræðunni á undanförnum árum en í dag hafi hann þó meiri áhyggjur af því hvert afmörkuð skoðun getur ratað. „Það eiga auðvitað allir rétt á því að tjá sig og hafa skoðun á hlutum. Tjáningarfrelsisákvæðið í Stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu var auðvitað ekki sett til að vernda vinsælar og almennar skoðanir heldur þvert á móti til þess að vernda óvinsælar skoðanir sem eru eftir atvikum til þess fallnar að vekja umræðu og andúð og hneyksla og særa jafnvel. Nú er auðvitað staðan sú að hver og einn einasti einstaklingur í heiminum er nánast orðinn sinn eigin fjölmiðill og það verður bara að vera þannig. Það sem ég hef meiri áhyggjur af er það sem gerist þegar hinir almennu fjölmiðlar sem að lúta ritstjórn og eiga að ástunda vönduð vinnubrögð sem fara eftir siðareglum blaðamanna, þegar þeir taka það sem einhver Jón út í bæ skrifar á Facebook og birta það gagnrýnislaust sem fréttir í þessum almennu fjölmiðlum.“ Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson í Mannréttindadómstól Evrópu.Aðsend Nefnir Villi nýlegt dæmi í tengslum við þetta. „Það er nærtækt dæmi núna til dæmis úr Morgunblaðinu þar sem maður var að brúka tjáningarfrelsi sitt og halda uppi að mínu mati fráleitum skoðunum sem hann á þó rétt á. Og bara gott og vel ef það hefði bara stoppað þar og þetta hefði bara verið á Facebook hjá viðkomandi aðila. En þá tekur víðlesinn fjölmiðill þetta efni upp, birtir það og veitir þar af leiðandi þessum manni platform fyrir þessa orðræðu sína, sem í mínum huga getur ekki fallið undir neitt annað heldur en hatursorðræða. Þetta finnst mér alvarlegt.“ Einnig er hægt að hlusta á Einkalífið á helstu hlaðvarpsveitum.
Einkalífið Lögmennska Ástin og lífið Mest lesið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Áskorun Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Lífið Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Lífið Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Lífið samstarf Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Sjá meira