Fótbolti

Sjóðheitur Ronaldo skaut Al Nassr í undanúrslit

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ronaldo og Mane byrjaðir að tengja.
Ronaldo og Mane byrjaðir að tengja. vísir/Getty

Portúgalska ofurstjarnan Cristiano Ronaldo byrjar nýtt tímabil með Al Nassr af miklum krafti og hefur skorað í öllum þremur leikjunum sem hann hefur byrjað í Arab Club Champions Cup.

Ronaldo kom Al Nassr á bragðið í dag þegar liðið mætti Raja Casablanca frá Marokkó í 8-liða úrslitum keppninnar.

Sultan Al Ghannam tvöfaldaði forystuna fyrir Al Nassr áður en Seko Fofana kom stjörnum prýddu liði Al Nassr í 3-0 en Marokkóarnir náðu að klóra í bakkann og lauk leiknum með 3-1 sigri Al Nassr sem stillti upp Anderson Talisca og Sadio Mane í fremstu víglínu ásamt Ronaldo.

Ronaldo og félagar munu mæta Al Shorta frá Írak í undanúrslitum en í hinni undanúrslitaviðureigninni eigast við Al Hilal og Al Shabab.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×