Lífið

Könnun: Hver sigrar í Söngva­keppni sjón­varpsins?

Bjarki Sigurðsson skrifar
Fimm atriði keppast um að verða framlag Íslands í Eurovision í Liverpool.
Fimm atriði keppast um að verða framlag Íslands í Eurovision í Liverpool. Mummi Lú

Úrslitakvöld Söngvakeppni sjónvarpsins fer fram annað kvöld í Söngvakeppnishöllinni í Gufunesi í Reykjavík. Fimm atriði taka þátt og virðast þau öll eiga mikinn séns á að vinna keppnina. Siguratriðið keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision í Liverpool í maí. 

Hér fyrir neðan geta lesendur Vísis kosið það lag sem þeir telja að vinni keppnina annað kvöld. 

Á morgun verður greint frá því hvaða atriði sigraði þessa óformlegu kosningu.

Útsending frá úrslitakvöldinu hefst annað kvöld klukkan 19:45 hjá RÚV og lýkur upp úr klukkan 22.

Hér fyrir neðan má hlusta á framlögin fimm. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×