Bíó og sjónvarp

Nýtt sýnis­horn úr Napóleon­­skjölunum: „Leyndar­­mál sem getur breytt gangi sögunnar“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Napóleonskjölin var þriðja bók metsöluhöfundarins Arnaldar Indriðasonar.
Napóleonskjölin var þriðja bók metsöluhöfundarins Arnaldar Indriðasonar. Samsett

Út er komin nýtt sýnishorn úr íslensku kvikmyndinni Napóleonsskjölin. Myndin verður frumsýnd hér á landi í lok janúar á næsta ári. 

„Áhorfendur hafa áður fengið örlítinn smjörþef af myndinni en nú er frumsýnd lengri stikla úr henni sem ætti að auka enn meira á spenninginn,“ segir í tilkynningu um stikluna.

Kvikmyndin er byggð á samnefndri bók eftir metsöluhöfundinn Arnald Indriðason og var ein af hans fyrstu bókum.

Myndin segir frá Kristínu, metnaðarfullum lögfræðingi sem dregst inn í óvænta atburðarás þegar bróðir hennar rambar fram á flugvélaflak úr seinni heimsstyrjöldinni uppi á Vatnajökli. Kristín og háskólaprófessorinn Simon Rush þurfa á öllu sínu að halda til þess að komast undan valdamiklum aðilum sem svífast einskis til þess að komast yfir leyndardóminn sem flugvélaflakið geymir.

Klippa: Napóleonsskjölin - Nýtt sýnishorn

Leikstjóri myndarinnar er Óskar Þór Axelsson en fyrri myndir hans eru Svartur á Leik og Ég man þig sem báðar nutu mikilla vinsælda.

Sagafilm framleiðir myndina í samstarfi við þýska fyrirtækið Splendid Films en Beta Cinema sér um alþjóðlega dreifingu sem hefur farið vel af stað. Með dreifingu innanlands fer Samfilm, dreifingarfyrirtæki Sambíóanna, en eins og fyrr segir verður myndin frumsýnd í lok janúar 2023.

Með aðalhlutverk fara Vivian Ólafsdóttir (Leynilögga), Jack Fox (Riviera), Iain Glen (Game of Thrones), Ólafur Darri Ólafsson, Adesuwa Oni (The Witcher), Annette Badland (Ted Lasso), Atli Óskar Fjalarsson og Þröstur Leó Gunnarsson.


Tengdar fréttir

Gera kvikmynd úr bók Arnaldar

Íslenska framleiðslufyrirtækið Sagafilm og hið þýska Splendid Film vinna nú að kvikmyndinni Operation Napoleon. Myndin er byggð á skáldsögu Arnaldar Indriðasonar, Napóleonsskjölunum, sem kom út árið 1999.

Seldi kvikmyndaréttinn að Napóleonsskjölunum

Arnaldur Indriðason hefur undirritað samning við tvo erlenda kvikmyndaframleiðendur, Yellow Bird og Molten Rock Media, sem hafa hug á að kvikmynda bók hans Napóleonsskjölin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×