Hrútar orðnir að kóreskum kálfum Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. október 2026 14:33 Kvikmyndin Hrútar hefur verið endurgerð í annað sinn. Íslenska kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson hefur verið endurgerð í annað sinn. Ástralir endurgerðu hana fyrst árið 2020 með stórstjörnunni Sam Neill og í vikunni verður suður-kóresku endurgerðina Cattle Run frumsýnd með kálfum í stað hrúta. „
Það er ekki á hverjum degi sem bíómynd eftir mann er endurgerð í Suður-Kóreu. Cattle Run, sem er endurgerð af Hrútum, verður frumsýnd á Alþjóðlegu Kvikmyndahátíðinni í Busan í vikunni,“ skrifar leikstjórinn og handritshöfundurinn Grímur Hákonarson. „Ég er búinn að sjá myndina og er nokkuð ánægður með útkomuna en vil ekki segja of mikið ef ske kynni að hún rati hingað á klakann. Ég get þó sagt að Kóreumennirnir eru búnir að skrúfa rækilega upp í dramanu og hasarnum, eins og þeim einum er lagið, og breyta kindunum í kálfa,“ skrifar hann jafnframt. Hrútar kom út árið 2015 með Sigga Sigurjóns og Theodóri Júlíussyni í aðalhlutverkum og fjallar um tvo sauðfjárbændur á sjötugsaldri, bræðurna Gumma og Kidda, sem búa hlið við hlið í afskekktum dal á Norðurlandi en hafa ekki talast við í fjóra áratugi. Þegar riðuveiki grípur um sig í dalnum standa bræðurnir frammi fyrir því að missa allt fé sitt og grípa til sinna ráða. Hrútar hlutu verðlaunin Un Certain Regard á kvikmyndahátíðinni í Cannes og var myndin framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna sem besta erlenda mynd en var ekki tilnefnd. Ástralska endurgerðin Rams kom svo út árið 2020 með Sam Neill og Michael Caton í aðalhlutverkum og hlaut góðar viðtökur. Suður-kóreska endurgerðin heitir á ensku Cattle Run, er frumraun leikstjórans Kim Ji-hyun á stóra skjánum og er með Ryu Seung-ryong og Park Hae-joon í aðalhlutverkum. Hrútunum í fyrstu myndinni hefur verið skipt út fyrir kóreska kálfa og í stað riðu þurfa bændurnir að eiga við gin- og klaufaveiki sem gýs upp á bæjum þeirra. Hér að neðan má sjá stiklu fyrir kóresku myndina:
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Suður-Kórea Mest lesið Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Lífið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Elegant herrar selja perlu í 101 Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Áskorun Fleiri fréttir Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira