Innlent

Hófu fram­kvæmdir við byggingu 87 nýrra í­búða við Skógar­veg

Atli Ísleifsson skrifar
Fyrsta skóflustungan af leiguíbúðum fyrir aldraða við Skógarveg.
Fyrsta skóflustungan af leiguíbúðum fyrir aldraða við Skógarveg. Aðsend

Fyrsta skóflustunga vegna uppbyggingar 87 nýrra leiguíbúða fyrir sextíu ára og eldri var tekin við Skógarveg í Reykjavík síðastliðinn föstudag.

Íbúðirnar tengjast þjónustumiðstöðinni Sléttunni við Sléttuveg en við Skógarveg munu rísa tvö ný fjölbýlishús með alls 87 íbúðum sem verða hluti af lífsgæðakjörnum Sjómannadagsráðs, Naustavarar og Hrafnistu.

Í tilkynningu segir að Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hafi verið viðstaddir þegar að Guðbjörn Guðjónsson gröfumaður hjá undirverktaka Þarfaþings hafi tekið fyrstu skóflustunguna vegna framkvæmdanna. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki seinni hluta ársins 2024.

Aðsend

„Sjómannadagsráð hefur þegar til útleigu í gegnum dótturfyrirtæki sitt, Naustavör, 60 íbúðir við Sléttuveg 27. Verða því alls 147 íbúðir fyrir þennan aldurshóp til útleigu í lífsgæðakjarnanum að framkvæmdum loknum. Gæði og búnaður íbúðanna verður sambærilegur og í núverandi íbúðum við Sléttuveg. Innangengt er úr öllum húsunum í þjónustumiðstöð á Sléttuvegi. Auk þess annast dótturfélagið Hrafnista rekstur hjúkrunarheimilis með 99 íbúðum auk þjónustumiðstöðvarinnar Sléttunnar sem er samstarfsverkefni með öðrum félagsmiðstöðvum eldri borgara í Reykjavík.

Hugmyndafræði lífsgæðakjarnans er fædd hjá Sjómannadagsráði og hefur þar verið í þróun í áratugi. Hún gengur út á að reka samhliða hjúkrunarheimili, leiguíbúðir og þjónustumiðstöðvar þar sem eldra fólki eru búnar aðstæður til að hámarka lífsgæði sín,“ segir í tilkynningunni.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri var viðstaddur skóflustunguna.Aðsend

Nýjar íbúðir Naustavarar verða í tveimur samtengdum húsum við Skógarveg 4 og 10. „Íbúðirnar eru ýmist tveggja eða þriggja herbergja á bilinu 54 til 90 fermetrar, en þrjár íbúðir verða um 120 fermetrar að stærð. Í íbúðunum er allt aðgengi gott og þær sérhannaðar með þarfir eldra fólks í huga. Hurðaop og gangar eru breiðari en gengur og gerist, einnig eru baðherbergi og eldhús sérhönnuð svo auðvelt sé að nota ýmiss konar stuðningstæki. Reiknað er með að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar um mitt árið 2024.

Undir báðum húsum verður ein stór bílageymsla þar sem stæði verða leigð út sérstaklega. Einnig verða útistæði við húsin og þar verða föst stæði einnig leigð út til íbúa með sama fyrirkomulagi og í leiguíbúðunum sem eru við Sléttuveg,“ segir í tilkynningunni.

Aðsend


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×