Barca vann 1-0 sigur í fyrsta leiknum undir stjórn Xavi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Xavi var líflegur á hliðarlínunni í kvöld.
Xavi var líflegur á hliðarlínunni í kvöld. vísir/Getty

Barcelona goðsögnin Xavi Hernández stýrði liði Barcelona í fyrsta sinn í kvöld þegar liðið fékk Espanyol í heimsókn í borgarslag í spænsku úrvalsdeildinni.

Hefur ráðningin á Xavi gefið stuðningsmönnum félagsins nýja von eftir allar hörmungarnar sem dunið hafa á þessu spænska stórveldi undanfarið ár og var leiksins í kvöld því beðið með mikilli eftirvæntingu.

Fyrri hálfleikur var markalaus en strax í upphafi síðari hálfleiks var vítaspyrna dæmd til heimamanna.

Memphis Depay fór á vítapunktinn og skoraði það sem reyndist eina mark leiksins. 

Lokatölur 1-0 fyrir Barcelona.

Góð byrjun í stjóratíð Xavi en Börsungar voru án sigurs í fjórum leikjum í röð áður en kom að leik kvöldsins. Fleytir sigurinn liðinu upp í sjötta sæti deildarinnar en þeir eru átta stigum á eftir toppliði Sevilla.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira