Erlent

Byggðu eftir­líkingar af banda­rískum her­skipum til að skjóta eld­flaugum á

Samúel Karl Ólason skrifar
Lestarteinarnir sem sjá má á þessari mynd eru notaðir til að líkja eftir skipum á siglingu.
Lestarteinarnir sem sjá má á þessari mynd eru notaðir til að líkja eftir skipum á siglingu. AP/Maxar Technologies

Kínverjar hafa byggt eftirlíkingar af bandarískum herskipum og skotmörk í eyðimörk þar sem tilraunir eru gerðar með eldflaugar.

Þetta sést á gervihnattamyndum sem birtar voru um helgina. Gervihnattarmyndirnar frá Taklamakan-eyðimörkinni sýna útlínur bandarísks flugmóðurskips og eftirlíkingar tveggja Arleigh Burke eldflauga-tundurspilla, samkvæmt greiningu U.S. Naval Institute.

Myndirnar sýna einnig að minnst einu líkani hefur verið komið fyrir á stórum lestarteinum sem sérfræðingar segja notað til að æfa það að skjóta á skip á siglingu, samkvæmt Reuters fréttaveitunni.

Eftirlíkingar af bandarískum tundurspillum eru sögð töluvert nákvæm en sjá má byggingar sem líkja eftir vopnum og brú skipanna.AP/Maxar Technologies

Herafli Kína hefur á undanförnum árum gegnið í gegnum mikla nútímavæðingu og uppbyggingu. Mikið púður hefur verið lagt í þróun langdrægra eldflauga sem eru hannaðar til að granda flugmóðurskipum og öðrum herskipum Bandaríkjanna.

Eldflaugar þessar geta grandað skotmörkum í þúsunda kílómetra fjarlægð frá skotstað.

Kínverjar gerðu fyrstu tilraunirnar með þessar eldflaugar árið 2019 þegar sex eldflaugum var skotið í sjóinn skammt frá Spratly-eyjum í Suður-Kínahafi. Kína hefur gert ólöglegt tilkall til nánast alls hafsins.

Kort sem sýnir drægni eldflauga sem Kínverjar hafa þróað til að granda skipum.Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í síðustu viku skýrslu um herafla Kína þar sem segir að geta þessara eldflauga hafi aukist til muna á undanförnu. Frá meginlandinu geti Kínverjar gert árásir víðsvegar um Asíu, á Indlandshafi og í Kyrrahafinu.

Þá hafa fregnir borist af því að Kínverjar hafi þróað eldflaugar sem hannaðar eru til að granda skipum og geta verið bornar af sprengjuflugvélum til að auka drægni þeirra.

AP fréttaveitan segir starfsmenn Varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna hafa sífellt meiri áhyggjur af ætlunum Kínverja varðandi Taívan. Kína gerir tilkall til eyríkisins og forsvarsmenn Kommúnistaflokks Kína hafa heitið því að Taívan verði sameinað meginlandinu og mögulega með valdi.

Bandaríkin og önnur ríki hafa heitið því að koma Taívan til aðstoðar geri Kína árás á eyríkið. Þær eldflaugar sem Kínverjar eru að þróa og hafa þróað gætu verið notaðar til að granda flugmóðurskipum Bandaríkjanna í Kyrrahafinu eða koma í veg fyrir að hægt væri að nota þau til að aðstoða Taívan.

Útlínur bandarísks flugmóðurskips í eyðimörkinni.AP/Maxar Technologies

Tengdar fréttir

ESB til Taívana: „Þið eruð ekki ein“

Fyrsta opinbera sendinefnd Evrópuþingsins til Taívan tilkynnti ráðamönnum þar að íbúar eyríkisins stæðu ekki einir gegn sífellt auknum þrýstingi frá Kína. Taívanar leita bandamanna um víða veröld.

Biden gagnrýndi fjarveru leiðtoga Kína og Rússlands

Joe Biden Bandaríkjaforseti gagnrýndi leiðtoga Kína og Rússlands fyrir að láta ekki sjá sig á COP26-loftslagsráðstefnunni í Skotlandi í dag. Sakaði hann Kína um að snúa baki við vandamálinu og Rússland sömuleiðis.

Sigldu á ó­þekkt neðan­sjávar­fjall

Kafbátnum USS Connecticut var siglt á neðansjávarfjall sem hafði aldrei verið kortlagt. Minnst tólf sjóliðar slösuðust og kjarnorkukafbáturinn skemmdist töluvert þegar honum var siglt á fjallið í grennd við Suður-Kínahaf í upphafi síðasta mánaðar.

Æfðu að lenda hermönnum á strönd skammt frá Taívan

Her Kína hélt nýverið æfingar í að lenda hermönnum af sjó. Þær æfingar voru gerðar í héraðinu sem er andspænis Taívan. Æfingarnar hafa þó ekki verið beintengdar mjög aukinni spennu milli Kína og Taívans.

Heitir því að Taí­van verði sam­einað Kína á ný

Xi Jinping forseti Kína hefur heitið því að Taívan muni „sameinast“ Alþýðulýðveldinu Kína að nýju. Forsetinn sagðist í dag, laugardag, vona að sameiningin takist án þess að beita þurfi valdi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×