Langþráður draumur að rætast Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 13. október 2021 09:01 Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu segir að viðburðurinn verði á heimsmælikvarða. Vísir/Vilhelm Concertgebouw hljómsveitin, ein allra besta sinfóníuhljómsveit heims, kemur fram í Eldborg í Hörpu þann 10. nóvember næstkomandi. Er þetta í fyrsta sinn sem hljómsveitin kemur til Íslands en stjórnandi á tónleikunum er hinn bráðungi og eftirsótti hljómsveitarstjóri, Klaus Mäkelä.
Um er að ræða viðburð á heimsmælikvarða sem örsjaldan býðst að upplifa á Íslandi. Á efnisskránni eru tvær stórbrotnustu sinfóníum tónbókmenntanna, hin epíska sjötta sinfónía Dímítríj Shostakovitsj og hin tregafulla sjötta sinfónía Pjotr Tsjajkovskíj, með undirtitilinn „Pathétique“. Tónleikarnir eru því tvímælalaust einn af hápunktum ársins í fjölbreyttri dagskrá í tilefni af 10 ára afmæli Hörpu. Miðasala hefst föstudaginn 15.október kl. 12. Klaus Mäkelä er aðeins 25 ára gamall en er nú þegar einn eftirsóttasti hljómsveitarstjóri heims. Hann hefur starfað sem aðalhljómsveitarstjóri Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Ósló frá 2020 og verður auk þess aðalhljómsveitarstjóri Orchestre de Paris frá haustinu 2022. Klaus Mäkelä stjórnar reglulega bestu sinfóníuhljómsveitum heims, þar á meðal Concertgebouw hljómsveitinni. Hinn efnilegi Klaus MJerome Bonnet Draumur sem varð að veruleika „Það hefur verið draumur beggja aðila að koma á tónleikum með þessari stórkostlegu hljómsveit í Hörpu, enda húsið byggt til að geta tekið á móti bestu listamönnum í heimi. Þessi draumur er nú að rætast á þessu óvenjulega afmælisári hússins. Aðeins verður um eina tónleika að ræða. Þetta einstaka tækifæri í samstarfi Hörpu og hljómsveitarinnar bauðst núna og vart hægt að hugsa sér glæsilegra innlegg í upprisu menningar- og listalífsins á Íslandi,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu. Concertgebouw hljómsveitin þykir skara fram úr fyrir silkimjúkan hljóm, mikla dýnamíska breidd og gífurlega blæbrigðaríka og næma túlkun. Hljómsveitin var stofnuð árið 1888 og á heimili sitt í hinu einstaka tónlistarhúsi Concertgebouw, í miðborg Amsterdam. Með sveitinni starfa á hverjum tíma færustu listamenn sígildrar tónlistar og hafa til dæmis mörg þekktustu tónskáld sögunnar stjórnað flutningi hljómsveitarinnar á sínum verkum, þar á meðal Richard Strauss, Gustav Mahler og Igor Stravinsky. Hljómsveitin leikur um 80 tónleika í aðalsal sínum á ári hverju en leggur auk þess áherslu á að heimsækja bestu tónleikasali heims. Það er því einstakt að fá hljómsveitina í fyrsta sinn til Íslands og hlýða á flutning hennar í Eldborg Hörpu.
Tónlist Harpa Mest lesið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Lífið Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Fleiri fréttir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira