Stjórnlagaráð leggur til að kosningakerfinu verði bylt 11. júní 2011 08:30 Alþingiskosningar verða framvegis með töluvert breyttu sniði ef tillögur ráðsins verða að veruleika. Mynd/GVA
Kjósendur munu geta valið frambjóðendur þvert á flokka og kjördæmi í alþingiskosningum verði róttækar tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á kosningakerfinu að veruleika. Þar er lagt til að atkvæðavægi skuli vera jafnt alls staðar á landinu. C-nefnd stjórnlagaráðs, sem meðal annars hefur alþingiskosningar og kjördæmaskipan á sinni könnu, kynnti tillögur sínar um breytingar á kosningakerfinu á 12. fundi ráðsins í gær. Þar er lagt til að hægt verði að bjóða sig fram til þings bæði einsamall og sem hluti af framboðslista. Kjósendur geti svo valið sér frambjóðendur þvert á listana. Lagt er til að hin hefðbundna kjördæmaskipting heyri sögunni til, hins vegar verði hægt að kveða á um það í lögum að tiltekinn hluti þingsæta – þó aldrei meira en tveir fimmtu – verði bundnir kjördæmum, sem flest geti verið átta, en kjósendur geti eftir sem áður valið frambjóðendur þvert á kjördæmin. Þessari skipan verði ekki hægt að breyta nema með auknum meirihluta á Alþingi. Í tillögunum er gert ráð fyrir því að bundið yrði í stjórnarskrá að atkvæðavægi yrði alltaf eins jafnt og unnt væri milli kjördæmi. Þá er lagt til að Alþingi geti sett lög um lágmarkshlutfall kynja á þingi. Nefndin hafði einnig til umfjöllunar atriði sem varða lýðræðislega þátttöku almennings og kemur með tillögur í þá veru. Meðal þeirra er að þriðjungur þingmanna geti skotið samþykktum lögum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá skuli einnig bera lög undir þjóðaratkvæði ef fimmtán prósent kosningabærra manna krefjast þess innan þriggja mánaða frá samþykkt þeirra. Atkvæðagreiðslan skuli þá fara fram innan árs frá samþykktinni. Samkvæmt tillögunum yrðu þó ýmis lög ótæk í þjóðaratkvæði. Þannig væri ekki hægt að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um fjárlög og fjáraukalög, lög um skattamálefni og ríkisborgararétt og lög sem sett eru fram til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira