Upptaka skattsins ekki mistök 11. júní 2011 20:13 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Mynd/GVA
Tíu stórfyrirtæki hafa hætt starfsemi hér á landi vegna skattlagningar á vaxtagreiðslur, en þrátt fyrir það segir fjármálaráðherra að ekki hafi verið gerð mistök við upptöku skattsins. Nú stendur til að afleggja hann. Afdráttarskattar voru festir í lög sumarið 2009, en þeir fela í sér að erlendir aðilar greiða tekjuskatt af vöxtum sem þeir innheimta hér á landi, nema sérstaklega sé tekið fyrir það í tvísköttunarsamningi. Afdráttarskatturinn hefur verið harðlega gagnrýndur frá upphafi, en í september á síðasta ári birtust fregnir af því að tíu fyrirtæki hefðu lagt niður starfsemi árið áður gagngert vegna skattsins. Þau höfðu áður greitt milljarða í skatta hér á landi. Þá hafi skattinum verið velt út í lántökukostnað innlendra aðila vegna ákvæða í lánasamningum, svo íslensk fyrirtæki hafi þurft að greiða hærri vexti fyrir vikið. Í bandormi fjármálaráðherra stóð til að láta afdráttarskattinn falla niður þegar um lán milli ótengdra aðila er að ræða, en ráðherra segir að þetta hafi verið vegna vandkvæða við framkvæmd skattlagningarinnar á borð við það sem áður var nefnt. Efnahags- og skattanefnd hefur lagt til að málið verði látið bíða haustsins. Þrátt fyrir að nú standi þannig til að breyta ákvæðum um afdráttarskattinn segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, að ekki sé hægt að tala um að mistök hafi verið gerð við upphaflegu lagasetninguna. „Nei, grunnprinsippið við þessa skattlagningu er fullkomlega eðlilegt," segir Steingrímur. „Það er í samræmi við samskiptareglur ríkja og tvísköttunarsamninga, sem í sumum tilvikum fella þessa skatta niður á báða bóga. Þetta er eðlilegt fyrirkomulag við skattlagningu, en þegar menn rekast á hluti af þessu tagi í framkvæmdinni, þá leiðrétta menn það. Við erum ekki yfir það hafin að horfast í augu við það ef framkvæmdin kemur öðruvísi út en ætlað var og laga það." Hins vegar hefur gagnrýni komið fram á framkvæmd skattlagningarinnar allt frá því síðasta sumar, en fjöldi hagsmunaaðila varaði sömuleiðis við skattinum áður en hann var tekinn upp. Af hverju var ekki löngu búið að bregðast við gagnrýninni? Aðspurður hvers vegna ekki hafi verið brugðist við gagnrýninni fyrir löngu segir Steingrímur: "Þetta var í rauninni að koma til framkvæmda núna, og fyrstu greiðslurnar falla til á þessu ári. Við vildum sjá hvernig það væri í reynd og fá gögn um það til að sannreyna hvernig þetta væri. Málið er síðan þróað áfram á þeim grunni."
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira