Innlent

Dorrit hljóp í Kvennahlaupinu

Dorrit var á meðal þeirra fyrstu sem lögðu af stað.
Dorrit var á meðal þeirra fyrstu sem lögðu af stað. mynd/jmg
Hátt í fimm þúsund konur lögðu af stað í Kvennahlaupinu í Garðabæ í dag en hlaupið er einn fjölmennasti íþróttaviðburður sem fer fram hér á landi ár hvert. Á meðal þeirra sem hljóp var Dorrit Moussaieff forsetafrú. Hlaupið var frá áttatíu stöðum hér landi og sextán stöðum erlendis. Blíðskaparveður var í Garðabænum í dag þegar konurnar „jogguðu" af stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×