Innlent

Fimm mótmælendur mættir

Frá mótmælunum í gær.
Frá mótmælunum í gær.

Um klukkan þrjú í dag voru fimm mótmælendur mættir fyrir utan þinghúsið en boðað hefur verið til mótmæla klukkan þrjú alla vikuna.

Alls hafa 20 þúsund manns skráð sig gegn Icesave-samkomulaginu á Facebook. Deilt er um samkomulagið á þingi þessa daganna.

Samkvæmt fréttaritara Vísis þá er einn mótmælandi búinn að leggja skilti upp að þinghúsinu. En á því eru mótmæli sem beinast gegn kvótakerfinu, ekki Icesave.

Í gær mættu um þúsund manns á mótmæli gegn samkomulaginu og voru fimm handteknir. Því má búast við að það muni bætast í hópinn eftir því sem á líður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×