Segja fámennan hóp starfsmanna Icelandair bera ríka ábyrgð Randver Kári Randversson skrifar 21. maí 2014 16:42 Um 90 ferðum hefur nú verið aflýst vegna aðgerða starfsmanna Icelandair. Vísir/GVA
Samtök ferðaþjónustunnar segja fámennan hóp flugstjóra, flugmanna og flugliða Icelandair bera ríka ábyrgð á því að ferðaþjónustunni, stærstu útflutningsatvinnugrein landsins sé stefnt í voða. Eins og fram hefur komið á Vísi í dag hefur Icelandair fellt niður tæplega 100 flug á undanförnum vikum, nú síðast í dag þegar hætt var við þrjú flug vestur um haf. Í ályktun frá samtökunum kemur fram að þrátt fyrir að lög hafi verið sett á verkfall og flugstjóra og flugmanna Icelandair í síðustu viku hafi flugsamgöngur til og frá landinu ekki gengið sem skyldi. „Þegar stærsta ferðamannasumar sögunnar er hafið er ólíðandi að stærstu atvinnugrein landins landsins sé stefnt í voða með þessum hætti. Þar ber fámennur hópur flugstjóra, flugmanna og flugliða Icelandair ríka ábyrgð.“ Nú hafi samtals 90 ferðum verið aflýst vegna verkfallsins, og yfirvinnubannsins, sem hafi haft áhrif á hátt í 12 þúsund farþega og ef fram heldur sem horfir geti aflýstum ferðum farið að skipta hundruðum með tilheyrandi tjóni fyrir ferðaþjónustuna. Einnig krefjast Samtök ferðaþjónustunnar þess að flugliðar láti af aðgerðum sínum og hvetja samningsaðila til að leita allra leiða til að ná sáttum í deilunni sem fyrst. Ályktun Samtaka ferðaþjónustunnar í heild má sjá hér. Ólíðandi að ferðaþjónustunni sé stefnt í voða Þrátt fyrir að í síðustu viku hafi lög á verkfall flugstjóra og flugmanna Icelandair verið samþykkt á Alþingi, hafa flugsamgöngur til og frá landinu ekki gengið sem skyldi. Þegar stærsta ferðamannasumar sögunnar er hafið er ólíðandi að stærstu útflutningsatvinnugrein landsins og almannahagsmunum sé stefnt í voða með þeim hætti sem raun ber vitni. Þar ber fámennur hópur flugstjóra, flugmanna og flugliða Icelandair ríka ábyrgð. Á síðasta ári var ferðaþjónustan stærsta útflutningsatvinnugrein landsins og námu gjaldeyristekjur hennar 274 milljörðum króna. Þá hlaupa beinar og óbeinar skatttekjur á tugum milljarða. Á degi hverjum er fjárhagslegt tjón fyrir þjóðarbúið því gífurlegt.Undanfarna daga hafa fjölmörg fyrirtæki í ferðaþjónustu stigið fram og lýst yfir áhyggjum sínum og vonbrigðum með stöðu mála. Frá því verkfallið og yfirvinnubannið hófst og þar til lögbannið var samþykkt var 68 flugferðum aflýst. Þá hefur enn fleiri flugferðum verið aflýst síðustu daga. Eins og staðan er í dag hefur samtals 90 ferðum verið aflýst sem haft hefur áhrif á hátt í 12 þúsund farþega. Ef fram heldur sem horfir kann aflýstum flugferðum að skipta hundruðum með tilheyrandi tjóni fyrir ferðaþjónustuna. Samtök ferðaþjónustunnar krefjast þess að flugliðar láti af aðgerðum sínum. Hægt er að reikna tapaðar tekjur en ímynd og orðspor Íslands sem áfangastaðar fyrir ferðamenn er ómetanlegt. Sem fyrr hvetjum við samningsaðila til að leita allra leiða til að ná sáttum í deilunni sem fyrst. SAF skorar á báða aðila deilunnar, flugstarfsmenn og Icelandair, til að ná saman sem allra fyrst. Ábyrgð þeirra er mikil, enda eru samgöngur lífæð ferðaþjónustunnar. Óásættanlegt er að samgöngum sé stefnt í voða með þessum hætti. Samþykkt á fjölmennum félagsfundi SAF, 21. maí 2014
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sjá meira