Telur að ríkið eigi að fjárfesta í vegagerð í kreppu 29. júní 2011 18:49
Fyrrum samgönguráðherra segir þörf á að koma umfangsmikilli vegagerð af stað sem fyrst. Hún sé umferðaröryggismál og nú sé hagstætt að bjóða út þessi verkefni. Samtök atvinnulífsins stóðu í morgun fyrir opnum fundi um samgöngumál. Meðal frummælenda á fundinum var Kristján Möller, alþingismaður og fyrrverandi samgönguráðherra. „Vandamálin eru náttúrulega þau að við höfum takmarkað fé frá ríkissjóði til að leggja í hefðbundnar ríkisframkvæmdir. Þð eru einungis 6 milljarðar á þessu ári og ég óttast að það verði minna næsta ári. Þannig okkur vantar að gefa í og þess vegna var rætt um þessar stórframkvæmdir upp á 40 milljarða bæði hér Suðvestanalands og með Vaðlaheiðargöngum í stöðugleikasáttmálanum 2009." Margt í stöðugleikasáttmálanum á hins vegar enn eftir að koma til framkvæmda en Kristján segir það mikilvægt til að auka hagvöxt í landinu og minnka atvinnuleysi. Hann segir að skapa þurfi sátt meðal allra aðila um hvernig eigi að fjármagna þessar framkvæmdir. „Þessar vegaframkvæmdir sem verið er að tala um hér eru fyrst og fremst umferðaröryggismál og bættar samgöngur þó svo það fylgi svo með að það er hagstætt að bjóða út núna og ríkið á að vera að framkvæma í kreppu en ekki í þenslu," segir Kristján. Þá telur hann málflutning FÍB varðandi vegtolla ekki hafa verið réttmætan. „Ég held að ef að þeir myndu setjast að borðinu og fá allar upplýsingar og vinna með þeim eins og við höfum verið að gera þá sjá þeir að þetta er vel framkvæmanlegt. Svipað og gerðist með Vaðlaheiðargöng þegar þeir fengu réttar upplýsingar þá lágu útreikningar okkar eiginlega nákvæmlega saman."
Mest lesið „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Innlent Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Innlent Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi Erlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Innlent Fleiri fréttir Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Skemmdarverkið setti svip sinn á útför Reyndi að stela verkfærum iðnaðarmanna Fannst blautur og kaldur eftir fimm tíma leit Ætla aftur að mála regnbogafánann Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Rússneska herskipið aftur innan lögsögunnar Jón Ingvar vildi níutíu milljónir en fær ekki krónu Kristrún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“ Ríkisútvarpið braut ekki gegn siðareglum Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Evrópusambandið sé verkfæri til að ná stöðugleika Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssumaðurinn dæmdur Aukin framlög til varnarmála og öflugur stuðningur við Úkraínu á leiðtogafundi NATO Talið að tveir hafi staðið að meintum hatursglæp Gæsluvarðhald framlengt í Straumsvíkurmálinu Lögreglan leitar þessara manna Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Sjá meira