Innlent

Höfuðpaur í fíkniefnamáli með níu dóma

Maðurinn var dæmdur fyrir smygl á sterum í föstu og fljótandi formi.
Maðurinn var dæmdur fyrir smygl á sterum í föstu og fljótandi formi.
Höfuðpaurinn meinti í umfangsmiklu fíkniefnamáli, sem kom upp í síðasta mánuði, á að baki níu refsidóma. Síðast var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrr á þessu ári fyrir fíkniefnasmygl til landsins og fleiri sakir.

Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er rökstuddur grunur um að smygltilraunin á amfetamíni, kókaíni, e-töflum og sterum í kílóavís í síðasta mánuði, hafi verið að hans undirlagi. Lögreglan og tollgæslan fundu efnin falin í gámi sem kom með hollensku flutningaskipi til Straumsvíkur.

Maðurinn var nú í júní dæmdur fyrir að fjármagna og smygla rúmum 300 grömmum af kókaíni frá Bandaríkjunum árið 2009. Hann var tekinn með efnið, sem hann hafði drýgt og var þá orðið nær 500 grömm, auk rúmlega 300 gramma af amfetamíni.

Þá var hann dæmdur fyrir að fela nær 150 grömm af kókaíni og mikið magn steralyfja, í föstu og fljótandi formi, í ferðatöskum sem hann sendi með fraktflugi frá Amsterdam til Íslands árið 2008.

Enn fremur var maðurinn dæmdur fyrir að hafa árið 2009 smyglað til landsins fjórtán stykkjum af vefaukandi steralyfjum frá Hollandi. Að auki ræktaði hann í íbúð á Seltjarnarnesi 39 kannabisplöntur. Hann reyndist einnig vera með kannabislauf í fórum sínum.

Auk þessa var maðurinn dæmdur fyrir að vera með kannabisefni í vörslu sinni og fyrir umferðarlagabrot, þar sem hann ók sviptur ökuréttindum. Hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir manninum sem verður í gæsluvarðhaldi til 11. nóvember.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×