Fékk 10 milljónir í bætur vegna ógreiddra launabónusa 27. febrúar 2009 17:13 Bílasalur Ingvars Helgasonar.
Ingvar Helgason ehf. var í dag dæmt til greiða fyrrverandi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs fyrirtækisins tæpar tíu milljónir króna auk dráttarvaxta vegna vangoldinna launa. Í ráðningasamningi sem maðurinn gerði við fyrirtækið árið 2004 var ákvæði um að ef félagið næði 150 milljónum í EBITDA á árinu 2004 ætti launabónus að greiðast sem næmi einum mánaðarlaunum, ef félagið næði 200 milljónum króna í EBITDA greiðist launabónus sem næmi tveimur mánaðarlaunum og við hverjar 50 milljónir sem myndu bætast við EBITDA eftir það þá myndu bætast við ein mánaðarlaun í bónus. Manninum var sagt upp starfi sínu hjá félaginu þann 14. janúar 2005. Tekið var fram í bréfinu, að uppsagnarákvæði væru í samræmi við ákvæði ráðningarsamnings og ekki væri gert ráð fyrir frekara vinnuframlagi af hálfu stefnanda. Í framhaldi af uppsögninni fékk stefnandi greidd laun í uppsagnarfresti, en launabónusinn var ekki greiddur. Maðurinn stefndi því fyrirtækinu og krafðist þess að fá bónusinn greiddann. Fyrirtækið krafðist sýknu, einkum á forsendu þess að maðurinn fékk greidd laun í hálft ár eftir að hann lét af störfum jafnvel þó að hann hafi verið komin í starf hjá öðru fyrirtæki. Jafnframt var sýknukrafan byggð á þeirri forsendu að EBIDTA er hvorki skilgreind í samningi aðila, lögum né reikningsskilareglum eða stöðlum, og hafi því ýmsar leiðir verið farnar við útreikning á henni. Héraðsdóm ur Reykjavíkur tók hins vegar undir kröfur starfsmannsins og dæmdi fyrirtækið til að greiða 9.992.416 í bætur auk dráttarvaxta.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Fleiri fréttir Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sjá meira