Breikkun Suðurlandsvegar kannski flýtt 4. júlí 2010 19:06
Samgönguráðherra segir koma til greina að flýta breikkun Suðurlandsvegar til að koma til móts við slæma verkefnastöðu verktakafyrirtækja. Hann vísar hins vegar gagnrýni um aðgerðarleysi á bug og bendir á að um 62 milljörðum verði veitt í samgönguframkvæmdir á næstu fimm árum. Eins og margoft hefur komið fram í fréttum er verkefnaskortur að gera útaf fjölmarga verktaka. Nú síðast sagði Ístak upp um 50 starfsmönnum og KNH verktakar boða uppsagnir. Samtök iðnaðarins segja ríkið þurfi að gera meir til að dempa þessa miklu niðursveifli. Meðal annars þurfi að flýta mannaflsfrekum framkvæmdum. „Ég er nú ekki sammála þessum mönnum um að það sé ekkert framundan í framkvæmdum á vegum ríkisins. Ég bendi á að ef að viðræður við lífeyrissjóðina ganga upp þá erum við að fara í verkefni upp á eina 36 milljarða. Við erum með 26 milljarða í ár og næstu tvö ár til hefðbundna ríkisframkvæmda til vegagerðar. Þarna eru við með hvorki meira en 62 milljarða fyrir næstu fimm ár og það er nú töluverður peningur," segir Kristján. Vandamálið sé ekki ríkið heldur að einstaklingar fyrirtæki og ekki síst sveitarfélög sem halda að sér höndum. Eitt mesta áhyggjuefnið nú er að öll stærstu verkin sem búið er að bjóða út á þessu ári eru að klárast. Verktakar kvíða því verkefnaleysi og áframhaldandi uppsögnum seinniparts sumars. „Þessi verkefni sem eru í gangi eru að ganga út í september, október og nóvember og þá verðum við búin að bjóða út nokkur verk," segir Kristján og bætir við framkvæmdir geti hafist við þau verkefni strax á næsta ári. Kristján nefnir Suðurstrandarveg, Suðurlandsveg, Vaðlaheiðargöng, vegi á Vestfjörðum og ýmsar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu máli sínu til stuðnings. „Það er ekki svartnætti framundan. Ríkið er að gera mikið. Ég bendi á Tónlistarhúsið, Landspítalann, fangelsi og það hefur verið gefið í hvað varðar viðhald. Það er heilmikið að gera en það vantar fleiri inn á markaðinn," segir Kristján.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Sjá meira