Mustanginn sigraði montbílakeppnina 6. nóvember 2006 13:00 Sigfús B. Sverrisson mun ekki spóka sig á montbíl ársins næstu mánuði þar sem hann er kominn í vetrardvala undir ábreiðu í skúr. „Ég er samt búinn að fara og klappa honum,“ segir eigandinn stoltur og játar fúslega að heiðurinn kitli hégóma bíladellukarlsins. „
Ég brosi í gegnum tárin eins og fegurðardrottning,“ segir bíladellukallinn Sigfús B. Sverrisson sem sigraði montbílakeppnina Show Off of the Year 2006 með Ford Mustang Fastback kagganum sínum í síðustu viku. Fréttablaðið greindi frá því nýlega að Mustanginn væri kominn í úrslit keppninnar ásamt fjórum öðrum drossíum en úrslitin réðust í netkosningu á heimasíðunni CarDomain.com og voru kynnt á SEMA bílasýningunni í Bandaríkjunum. „Þetta er mjög ánægjulegt,“ segir Sigfús og viðurkennir að þessi heiður kitli stoltið. „Ég brosi allan hringinn enda kom þetta nokkuð á óvart þar sem ég var þarna að keppa við fulltrúa milljónaþjóðar og þó ég hafi beðið nokkra vini og kunningja um að kjósa mig átti ég ekki von á að það myndi duga til.“ Sigfús efast þó ekki um að Mustanginn hafi verið vel að verðlaununum kominn. „Ég held að Mustanginn sé sá flottasti af þessum fimm. Það var einn Camaro þarna sem var búið að leggja töluvert í en hann var bara smekklaus. Þetta voru samt verðugir andstæðingar.“ Sigfús sleppti því að fara á sýninguna og var því ekki viðstaddur þegar úrslitin voru tilkynnt. „Ég hefði farið ef ég hefði fengið að vita þetta fyrirfram en sá ekki ástæðu til að leggja í þetta ferðalag þar sem líkurnar á sigri voru einn á móti fimm.“ Sigfús segist ekki vita hversu mörg atkvæði liggi að baki sigrinum en telur víst að heitar tilfinningar Bandaríkjamanna til Mustang bíla hafi haft sitt að segja. Þá telur hann víst að umfjöllun Fréttablaðsins um keppnina hafi aflað honum stuðnings hér heima. „Ég vil því skila þakklæti til þeirra Íslendinga sem lögðu mér lið og stuðluðu að því að Mustanginn endar örugglega sem frægasti bíll landsins.“
Menning Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Sjá meira