Setti líkið í þyngdan poka 30. júlí 2004 00:01
Hákon Eydal, sem hefur játað að hafa banað fyrrum sambýliskonu sinni og barnsmóður með þungu barefli á heimili sínu í Stórholti sunnudaginn fjórða júlí, er enn í einangrun. Hákon segist hafa komið líki Sri fyrir í stórum drapplituðum sænskum póstpoka úr næloni. Samkvæmt heimildum blaðsins þyngdi hann póstpokann áður en hann varpaði honum í sjóinn. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ástæða Hákonar fyrir morðinu hafi bæði verið langvarandi og skyndileg. Degi fyrir játninguna hafði hann vísað lögreglu á þann stað sem hann varpaði líkinu fram af klettum á Presthúsatanga í Hofsvík. Þá segir einnig að voðaverkið tengist hvorki vímuefnanotkun Hákonar né öðrum getgátum sem ýjað gæti hafa verið að. Hákoni var gert að sæta geðrannsókn sem er ólokið. Markvisst hefur verið unnið að rannsókn málsins, rætt hefur verið við fjölda fólks og hugsanleg vitni, segir í tilkynningu frá Lögreglunni. Þar er jafnframt vísað á bug þeirri gagnrýni að málinu hafi verið sýndur minni áhugi þar sem sú látna er útlendingur. Það hafi ekki haft nein áhrif á gang rannsóknarinnar né umfang. Leit hefur farið fram á nokkrum stöðum þar sem lögregla hefur meðal annars notið aðstoðar björgunarsveita og þyrla hafi verið notuð til að kanna ákveðin svæði. Þá hefur lögregla með leitarhunda leitað á ákveðnum stöðum. Lögreglan segir að verra hefði verið að auglýsa eftir ferðum jeppa Hákonar á upphafsdögum rannsóknarinnar þar sem lögregla hafi verið á réttri leið. Þurft hefði mikinn tíma og mannafla til að vinna úr öllum ábendingum sem hefðu borist. Leit kafara á því svæði sem Hákon hefur bent á hefur ekki borið árangur. Frekari leitaraðgerðir verða metnar þegar búið er að kanna rek og stefnu hafstrauma á svæðinu. Stefnt er að því að rekald verið sett út frá Presthúsatanga eftir helgi. Um er að ræða drumb með áföstum belg sem fylgst verður með úr björgunarbáti.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Kominn undan feldi og svarið er nei Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Innlent Fleiri fréttir Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Líkamsárásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Sjá meira