Ekkert leitað að Sri í dag 30. júlí 2004 00:01
Björgunarsveitarmenn á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, sem leita að líkinu af Sri Rhamawati, hafa frestað því fram á sunnudag eða mánudag, að setja út rekald við Kjalarnes. Þá verða sjávarföll með svipuðum hætti og daginn sem fyrrverandi sambýlismaður hennar varpaði líkinu í sjóinn. Ekkert verður leitað í dag vegna veðurs. Á annað hundrað björgunarsveitamanna hefur tekið þátt í leitinni að Sri Ramawati, sem saknað hefur verið frá fjórða júlí síðastliðinn. Hákon Eydal, fyrrverandi sambýlismaður hennar, hefur viðurkennt að hafa orðið henni að bana með þungu barefli í íbúð sinni við Stórholt í Reykjavík, og síðan varpað líkinu í hafið við Hofsvík á Kjalarnesi. Síðasta sólarhringinn hafa leitarskilyrði verið slæm út af Kjalarnesi og hefur því ekki farið fram skipulögð leit. Til stóð að setja út rekald við Kjalarnes í dag, til þess að kanna rek við ströndina, þar sem líkinu af Shri Rahmawati var varpað í sjóinn, en vegna veðurs hefur verið ákveðið að fresta því fram á sunnudag eða mánudag, því samkvæmt veðurspám verða sjávarföll þá með svipuðum hætti og daginn, þegar líkinu var varpað í sjóinn. Að sögn Valgeirs Elíassonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, mun björgunarskip fylgja rekaldinu eftir í tólf klukkustundir. Þannig geti björgunarsveitamenn, með þessum hætti, gert sér grein fyrir því hvert líkið kann að hafa rekið. Það verði þó aldrei nákvæmlega eins, því vegna rotnunar myndist gas í líkinu eftir ákveðinn tíma, sem valdi því að það fari að fljóta. Valgeir segir að ef rekaldið fari strax langt út á haf, þá sé það vísbending um að líkið af Sri Ramawati hafi farið sömu leið. Í tilkynningu lögreglu segir að tvívegis hafi verið leitað að Sri þar sem Hákon henti líki hennar í sjóinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira