200 bíða eftir flugi 30. júlí 2004 00:01
Um 200 manns bíða eftir því að geta flogið til Vestmannaeyja, en ekkert hefur verið hægt að fljúga til Eyja frá því í gær, sökum veðurs. Herjólfur er þessa stundina að leggja af stað frá Þorlákshöfn með um 500 manns. Mikil umferð hefur verið til Akureyrar. Samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands átti að athuga næst með flug til Vestmannaeyja klukkan 12:05. Þrjár vélar voru á áætlun til Eyja í morgun, bæði frá Flugfélagi Íslands og Íslandsflugi, en vegna slæms veðurs hefur ekkert verið flogið, og sömu sögu var að segja í gær. Um 200 manns bíða eftir flugi til að komast á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, en vonir eru bundnar við að hægt verði að fljúga síðar í dag, þar sem spáð er betra veðri. Ekkert hefur verið flogið frá Bakkakotsflugvelli í Landeyjum síðan í gærkvöldi, en Flugfélag Vestmannaeyja flutti þá um áttatíu manns þegar fært varð í um tvær klukkustundir. Samkvæmt upplýsingum þaðan er stöðugt í athugun hvort hægt sé að fljúga, en starfsmaður flugfélagsins sagði fyrir stundu að miklir sviptivindar væru við Vestmannaeyjar. Herjólfur er þessa stundina að leggja af stað frá Þorlákshöfn með um 500 gesti á þjóðhátíð. Þetta er fyrri ferð skipsins til Eyja í dag, en það fer aðra ferð frá Þorlákshöfn klukkan hálfátta í kvöld. Að sögn skipstjóra Herjólfs, er sjólag heldur leiðinlegt og tefur það lítillega fyrir ferðunum. Fullbókað er í allar ferðir með skipinu í dag, en eitthvað er enn laust frá Þorlákshöfn í hádeginu á morgun. Veðurstofan spáir besta veðrinu norðan og austanlands um helgina. Mikil umferð hefur verið til Akureyrar frá því í gærmorgun. Umferðarstofa mun fylgjast vel með gangi mála umferðarinnnar alla verslunarmannahelgina. Björn Stefánsson sýslumaður á Blönduósi segir von á mikilli umferð um Húnavatnssýslurnar þessa helgi enda gott veður á norðanverðu landinu. Af þessu tilefni verður löggæsla á vegum stóraukin, og verður meðal annars ein lögreglubifreið útbúin myndbandsupptökuvél. Þá verður sérstök hálendisvegagæsla. Björn segir að aðgerðir lögreglu miði að því að fyrirbyggja umferðarslys og að hart verði tekið á hraðakstri. Fjölmargar útihátíðir hafa verið skipulagðar um verslunarmannahelgina. Auk einnar með öllu á Akureyri, er meðal annars boðið upp á Neistaflug á Neskaupstað, Fjölskylduhátíðina í Galtalæk, Sæludaga í Vatnaskógi, og Klausturlíf á Kirkjubæjarklaustri, og Kristilegt fjölskyldumót haldið að Hlíðardalsskóla í Ölfusi.
Fréttir Innlent Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira